Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 12
Samtök launþega og fyrirtækja eru því um margt samstiga
og kalla eftir skýrri efnahagsstefnu stjórnvalda.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
A Allt stefnir í að næstu kjarasamningar verði til tiltölulega skamms tíma. Samningsaðilar líta svo á að óvissa sé það mikil að óráðlegt sé að semja til lengri tíma. Vinnumarkaðurinn, hvort heldur eru samtök launamanna
eða fyrirtækja, vill skýra efnahagsstefnu
stjórnvalda en metur það svo að enn liggi
hún ekki fyrir. Þegar flest aðildarfélög Al
þýðusambands Íslands undirrituðu samning
við Samtök atvinnulífsins í
maí 2011 var gildistími hans
til 31. janúar 2014 en með
samkomulagi í janúar síðast
liðnum var sá tími styttur um
tvo mánuði þannig að kjara
samningarnir falla úr gildi 30.
nóvember næstkomandi.
Aðildarfélög Starfsgreina
sambandsins funduðu í liðinni
viku en sextán félög hafa veitt
sambandinu umboð til samn
inga á hinum almenna mark
aði og kröfugerð hefur borist frá flestum
þeirra. Fram kom á fundinum að töluverð
óvissa væri um framhald viðræðna enda
lægi ekki fyrir endanleg viðræðuáætlun við
Samtök atvinnulífsins auk þess sem óvíst
væri hvaða áhrif ákvarðanir ríkisstjórnar
innar myndu hafa á ráðstöfunartekjur
heimilanna. Vegna þessarar óvissu í efna
hagsmálum var það niðurstaða fundarins að
semja bæri til stutts tíma. Hilmar Harðar
son, formaður Samiðnar, talaði á sömu nót
um á kjaramálaráðstefnu nýverið. Þar varp
aði hann fram þeirri spurningu hvort stuttur
kjarasamningur, til vors eða fram á haust,
sem hefði það að markmiði að tryggja kaup
mátt, væri vænlegri en samningur til lengri
tíma. Á meðan efnahagsstefna stjórnvalda
væri ekki að fullu komin fram gætu aðilar
vinnumarkaðarins í samstarfi við stjór
nvöld nýtt samningstímann til undirbúnings
kjarasamningi til lengri tíma sem byggði á
efnahagslegum vexti og stöðugleika og þar
með vaxandi kaupmætti. Fundurinn tók
undir þessi sjónarmið formannsins.
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmda
stjóri Samtaka atvinnulífsins, sér heldur
ekki fram á kjarasamninga til langs tíma,
miðað við núverandi aðstæður. Fram kemur
hjá honum að í kjarasamningunum 2011 hafi
meðal annars verið byggt á ákveðnum for
sendum um hagvöxt, fjárfestingar, gengis
þróun, verðbólgu og lækkun trygginga
gjalds. Þær forsendur hafi ekki gengið eftir
heldur hafi í kjölfar samninganna fylgt
vaxandi verðbólga, minni hagvöxtur og
lægra atvinnustig en ella. Samtökin hyggist
því ekki endurtaka þá aðferð sem samn
ingarnir 2011 byggðu á sem var að ráðstafa
svigrúmi sem ekki var til en átti að skapa á
samningstímanum með ýmsum aðgerðum
stjórnvalda. Í stað þess verði kjarasamning
ar byggðir á raunverulegri stöðu þjóðarbú
skaparins. Samtökin vilji því að samið verði
til tólf til átján mánaða og að sá tími verði
nýttur til að skýra efnahagsstefnu stjórn
valda til lengri tíma, eyða óvissu og mynda
víðtæka samstöðu um markmið. Undir lok
árs 2014 verði unnt að horfa til lengri tíma
og gera kjarasamninga sem samrýmist verð
stöðugleika og stöðugu gengi krónunnar.
Þannig geti vextir lækkað, fjárfestingar
aukist og þar með hagvöxtur.
Samtök launþega og fyrirtækja eru því
um margt samstiga og kalla eftir skýrri
efnahagsstefnu stjórnvalda. Aðalmarkmið
kjarasamninga er að auka kaupmátt fólks
en forsenda góðra lífskjara almennings er
öflugt atvinnulíf. Framkvæmdastjóri Sam
taka atvinnulífsins bendir á að samningsað
ilar geti stuðlað að því að störfum fjölgi,
verðbólga hjaðni, vextir lækki og kaupmátt
ur atvinnutekna heimilanna aukist. Til að
það takist þurfi skýra framtíðarsýn og sam
ræmda afstöðu samtaka aðila vinnumarkað
arins og stjórnvalda. Niðurstaða samning
anna gæti samt, segir hann, stuðlað að hinu
gagnstæða; að verðbólga verði áfram langt
yfir markmiði Seðlabankans, vextir fari
hækkandi, greiðslubyrði skuldugra heimila
aukist, fjárfestingar fyrirtækja verði enn
um sinn í sögulegu lágmarki, störfum fjölgi
ekki og atvinnuleysi fari vaxandi á ný.
Síðari kosturinn er allt of kunnuglegur
en fráleitt fýsilegur. Það hlýtur því að vera
sameiginlegt markmið allra sem að koma
að stuðla að kjarasamningum sem halda
verðbólgu niðri og tryggja kaupmátt. Verði
samið til skamms tíma, eins og líkur eru á,
verða sömu aðilar að nýta tímann á næsta ári
þegar horft verður lengra fram á veg.
Líkur á kjarasamningum til tiltölulega stutts tíma
Sameiginleg markmið
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Kattasmölun
Finnið Nuk, fangið hana og hringið
strax í mig. Ég kem um leið, hvort sem
það er um dag eða nótt.
Susanne Alsing, eigandi kattarins
Nuk, sem stakk af úr einkaþotu á
Reykjavíkurflugvelli fór í mikið uppnám
en góðu heilli skilaði læðan sér áður
en þurfti að gera út kattasmala síðustu
ríkisstjórnar.
Veðurstofan í Hádegismóum
Þá þyrfti ég ekki að vakna
á hverjum morgni og gá
til veðurs, í pólitískum
skilningi.
Gísli Marteinn Baldursson
sagði skilið við
borgarpólitíkina í vikunni
og þarf ekki lengur að hafa
áhyggjur af stormviðvörunum úr
Hádegismóum.
Eru spólur ennþá til?
Til að útvega klámspólu eða blöð nú
til dags þarf ekki að fara í laumulegan
leiðangur.
María Hjálmtýsdóttir, kynjafræði- og
spænskukennari við Menntaskólann
í Kópavogi, gerði klámvædda
tilveruna að umtalsefni í grein á vef
Kennarasambands Íslands.
Alvöru mál
Hann spurði um heilsu
Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar og
hvernig fóturinn væri
að jafna sig.
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra hitti
Barack Obama sem spurði
hann frétta.
Netveiðiblús
Ég er brjálaður út í Bubba að vera
að bera þennan óhróður út
á netinu.
Jóhann Hauksson,
fyrrum upplýsingafulltrúi
ríkisstjórnarinnar, var
saltvondur þegar Eiríkur
Jónsson ræddi við hann
eftir að Bubbi Morthens sakaði
hann um ólöglegar netaveiðar.
Bekkurinn gerði það
Ég er saklaus af þessu.
Lögreglumaðurinn sem hefur verið
ákærður fyrir harkalega handtöku á
Laugavegi fyrr í sumar lýsti sig saklausan
fyrir dómi.
Eins og krókódíll
Ég er ekki inni í skáp, en ég er með
þykkan skráp.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
ræddi leikritið Maður að mínu skapi
í Kastljósinu en fáum dylst að þar
er Hannes hafður til fyrirmyndar
aðalpersónunni.
Heyr, heyr!
Við þurfum að fá fólk á
völlinn og ég hvet fólk til
þess að koma og styðja
við bakið á okkur og
ekki síst til að sýna
Katrínu Jónsdóttur þá
virðingu og það þakklæti
sem hún á skilið með góðu
lófaklappi í lok leiks.
Knattspyrnukempan Margrét Lára
Viðarsdóttir hvatti fólk til þess að
fjölmenna á völlinn og hylla fyrirliðann
Katrínu Jónsdóttur sem lauk glæstum
ferli í landsleik gegn Sviss á fimmtudag.
VikAn sem VAr
Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar:
Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af
hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun,
nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi
skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn
ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi
fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum
(NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum
asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið.
Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri.
Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða
augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi
lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar
hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð
ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum
aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði
við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem
börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Fæst án lyfseðils
Veldur síður
lyfjaáhrifum um
allan líkamann eins
og þegar töflur eru
teknar inn
Verkjastillandi
bólgueyðandi
12 viðhorf Helgin 27.-29. september 2013