Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 18
Sigríður Beinteins-
dóttir hafði í fyrstu
miklar efasemdir um
Eitt lag enn sem í
upphafi hét Hæ hæ
hó. Grétar Örvars-
son hafði alltaf
trú á laginu sem
Stjórn in flutti síðan í
Eurovision-keppninni
í Zagreb og lentu í 4.
sæti. Þegar sveitin
ferðaðist sem mest
um landið og spilað á
sveitaböllum bjuggu
hljómsveitarmeðlimir
bókstaflega í hljóm-
leikarútunni. Stjórnin
kemur nú saman að
nýju í tilefni af 25 ára
afmæli sveitarinnar
og sendir einnig frá
sér nýtt lag þar sem
þau gera óspart grín
að sjálfum sér.
* BIO pokinn er
framleiddur úr
maíssterkju og
eyðist upp í
náttúrunni.
Oddi – Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Hafðu samband við sölumenn Odda
í síma 515 5000
Bleiki pokinn
- til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
NÝTT
BIO poki*
Allur ágóði af sölu BLEIKA POKANS
rennur til Krabbameinsfélags Íslands.
Hlýjar minningar
um ljótu fötin
Þ etta er upprunalega bandið sem nú kemur saman, bandið sem var með þessa
stóru smelli á borð við Eitt lag enn,
Ég lifi í voninni og Við eigum sam-
leið. Við reyndum að fá alla þessa
menn saman á 20 ára afmælinu en
náðum því ekki. Núna gekk hins
vegar allt upp,“ segir Sigríður Bein-
teinsdóttir söngkona um afmælis-
tónleika Stjórnarinnar í tilefni af
25 ára afmæli hljómsveitarinnar.
Grétar Örvarsson söngvari segir
gömlu hljómsveitarmeðlimina
heldur dreifða og því hafi það verið
nokkuð mál að ná öllum saman.
„Trommarinn sem starfaði með
okkur, Þorsteinn Gunnarsson, er
heilaskurðlæknir í Kanada, Einar
Bragi Bragason saxófónleikari er
skólastjóri Tónlistarskólans á Seyð-
isfirði. Það hefur verið mikill áhugi
innan hópsins að koma saman og
þetta var rétti tíminn að okkar
mati,“ segir hann.
Hljómsveitin Stjórnin fagnar
þessum tímamótum með afmælis-
og ferilstónleikum í Háskólabíói
þann 25. október. Á tónleikunum
verður það Stjórnin eins og hún var
á seinni tímum sem spilar mest-
allan tímann, skipuð Friðriki Karls-
syni og Sigfúsi Óskarssyni, auk
Siggu og Grétars.
Leist ekkert á þetta
Stjórnin sendi frá sér 7 plötur og
geisladiska, hún lék um árabil á
Hótel Íslandi og í Leikhúskjallar-
anum fyrir fullu húsi auk þess að
halda sveitaböll í velflestum félags-
heimilum á landsbyggðinni. Þá tók
hljómsveitin tvisvar þátt í Eurov-
ison fyrir Íslands hönd. Mér finnst
það einhvern veginn hálf undarlegt
en samt svo eðlilegt að hitta „Siggu
og Grétar í Stjórninni,“ setjast niður
með þeim og spjalla um ferilinn.
Ég var 10 ára þegar Stjórnin var
stofnuð árið 1988 og ólst því upp við
alla stærstu smellina og gæti enn
sönglað með nánast öllum þeirra,
rétt eins og eflaust flestir af minni
kynslóð.
Fyrra skiptið þegar hljómsveitin
keppti í Eurovison var árið 1990
þegar hún flutti hið ástsæla Eitt
lag enn. Grétar segist strax hafa
haft mjög góða tilfinningu fyrir
laginu. „Ég var hrifinn um leið og
við fengum þetta lag í hendur og
var viss um að við gætum flutt það
með miklum sóma. Sigga og fleiri
voru meiri rokkarar og voru ekki
jafn hrifin.“ Sigga viðurkennir það
fúslega: „Mér leist ekkert á þetta.“
Upphaflega hét lagið ekki Eitt lag
enn heldur Hæ hæ hó. Textinn var
endurskoðaður sem og lagið. „Ég
stappaði stálinu í mannskapinn og
sagði að við yrðum að taka þetta
lag. Það fékk síðan flotta útsetn-
ingu, við tókum það í forkeppninni
hér heima og unnum. Raunar
lentum við í bæði fyrsta og þriðja
sæti því við sungum líka lag eftir
Jóhann G. Jóhannsson heitinn,
Ef ekki er til nein ást. Við vildum
bara hámarka möguleika okkar.
Þegar öllu var á botninn hvolft þá
vorum við til í allt,“ segir Grétar og
Sigríður Beinteinsdóttir
og Grétar Örvarsson.
Ljósmynd/Hari
18 viðtal Helgin 27.-29. september 2013