Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 24
Megas tók í fyrstu treglega í að semja tónlist við Jeppa á Fjalli en þegar hann sá mögu-
leikana sem fólust í verkinu sló hann til og gerðist málsvari hins drykkfellda Jeppa.
„Ég var nú ekki mikið til
í þetta fyrst í stað,“ segir
Megas. „En svo þegar ég
fór að kynna mér leikritið
og upp á hvað það bauð þá
fór mér að finnast þetta
svolítið spennandi. Þetta
reyndist nú síðan verða
dálítil yfirlega. Sumt greip
maður ekki alveg fyrsta
kastið en svo fór þetta
að lýsast fyrir manni og
maður áttaði sig betur á
hlutunum. Vinnan fólst
ekki síst í að reyna að hafa
þetta svolítið sannfærandi
og viðeigandi þannig að
þetta hentaði þessu gamla
leikriti sem er búið að vera
rosalega vinsælt alveg frá
1720- og eitthvað.“
Þótt Jeppi sé kominn til
ára sinna virðist hann alltaf
eiga erindi og Megas bend-
ir á að verkið hafi gengið
í gegnum alla síðustu öld
á Íslandi. „Ég held að það
séu alveg óteljandi skipti
sem þetta hefur verið sett
upp og fólk sem er komið á
einhvern aldur það þekkir
allt Jeppa. Ég man nú ekki
hvenær hann var síðast
sýndur í borginni en ég
held að leikklúbbar og leik-
félög úti á landi hafi tölu-
vert verið með einhvern
Jeppa í gangi.“
Málsvari fyllibyttunnar
Jeppi á Fjalli er í meira
lagi vínhneigður og væri
líklega best lýst sem
fyllibyttu og sumir þeirra
söngva sem Megas leggur
honum til draga dám af því.
„Fíkn er náttúrlega ekki til
á þessum tíma en ég samdi
þrjú lög sem hann syngur
nánast í beit. Þetta er lag
um þurrafyllirí, annað um
glaðafyllirí og það þriðja
um blindafyllirí. Hvert með
sínu móti eins og vill verða
í slíku ástandi.“
En hvernig fór á með
þeim Megasi og Jeppa á
meðan tónlistarmaðurinn
glímdi við hann í höfðinu?
„Ég tók nú eiginlega að
mér að vera hans advókat
og það fór vel á með okkur
að vissu marki. Hann
drekkur sig full leiðinleg-
an. Er svolítið lítill í sér og
verður einvaldur heimsins
þegar hann er orðinn nógu
ölóður og það stýrir ekki
góðri lukku. Hann er því
nokkuð venjuleg, þekkt
stærð. Dæmi um menn
sem eru litlir en vex ás-
megin þegar hugrekkið í
brennivíninu rennur út í
blóðið.“
Hrist upp í pempíu-
legum texta
Megas segir hugmyndina
hafa verið að reyna að bæta
einhverri vídd við verkið
með lögunum og hann hafi
í raun samið þau jafnóðum
eftir því hvernig Braga
Valdimar sóttist þýðingin.
„Ég las þetta leikrit nú
bara fyrst í gömlu þýðing-
unni sem var svolítið svona
pempíuleg. En svo fór ég
að gera texta eftir því sem
Braga sóttist þýðingin og
ég fékk það sem hann var
búinn að þýða. Einn kafla
í einu. Hann var svo vænn
að merkja inn tilgátur um
hvar mætti skreyta með
lagi og ég fór mestan part
eftir því sem hann benti
á og reyndi þá aðeins að
smeygja inn aðeins öðrum
órum en leikritið virðist
í fljótu bragði hafa að
geyma.“
Bragi leggur sjálfur til
fjögur lög en Megas sér
um rest. Fjöldinn er að vísu
slíkur að Megas reiknar
ekki með að öll lögin rati í
sýninguna en þau verði þó
öll á geisladiski sem kemur
út á næstunni. „Bragi kom
nú fyrst með ein fjögur lög
og eitthvað af þeim verður
notað en ég var það snögg-
ur að taka við mér í göt-
unum að hann lét þetta nú
nægja. Ég gerði átján lög
í allt en veit ekki hversu
mikið af því verður notað
og er ekki alveg kunnugur
því hvernig endanlega út-
gáfan verður. Ég gerði alla
vegana texta þar sem mér
fannst þá helst þurfa.“
Megas segir að það hafi
ekki beinlínis verið um
samstarf hjá þeim Braga
að ræða og hvor hafi sýslað
í sínu horni og það hafi
gengið vel. „Hann er garg-
andi talent í bæði málum
og tónum. Það vantar
ekki.“
Hrært í mörgum pottum
Megas gerir ráð fyrir að
nokkuð yfirfall verði af
lögum enda séu átján lög
frá honum og fjögur frá
Braga ríflegur skammtur
fyrir leikritið. Öll þessi lög
verða þó á geisladiskinum
þar sem Megas syngur lög
Jeppa.
„Meiningin var eigin-
lega að diskurinn yrði
tilbúinn áður en æfingum
væri lokið og þetta yrði
svona banki fyrir Benedikt
að sækja í eftir því hvenær
honum þætti lag viðeig-
andi svoleiðis. Þannig að
það verður sennilega eitt-
hvað meira efni á plötunni
heldur en er í leikritinu.“
Megas segir engar
hugmyndir uppi um að
fylgja diskinum eftir með
tónleikahaldi. „Nei, nei.
Ég held að þetta verði bara
diskurinn sem fylgir Jeppa
og veit ekki til þess að það
sé planið.“
Megas segist ekki hafa
fylgst með æfingum á verk-
inu og láti duga að legga
til sönglögin. „Ég held það
þurfi ekkert að vakta Bene-
dikt. Hann virðist hafa það
til að bera að verkin sem
24 viðtal Helgin 27.-29. september 2013