Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 26
B
laðamaður hitti þær
mæðgur, Haföldu
Elínu Kristins-
dóttur og Kristnýju
Rós Gústafsdóttur,
á heimili Haföldu og eiginmanns
hennar í Reykjavík. Áður bjó
fjölskyldan í Ólafsvík en eftir að
Hafalda greindist með Alzhei-
merssjúkdóminn, aðeins 48 ára,
fluttu þau til Reykjavíkur til að
vera nær stórfjölskyldunni og
njóta stuðnings hennar. Í Reykja-
vík búa fjórar systur Haföldu og
móðir. Í næstu íbúð við Haföldu
og eiginmann hennar búa svo
mágur hennar og svilkona svo
stuðningsnetið er þétt og allir
leggja sitt af mörkum við að gera
líf Haföldu sem innihaldsríkast
og njóta tímans með henni.
Kristný er elsta barn Haföldu
en að auki á hún tvo syni, tutt-
ugu og fjögurra ára og átján ára.
Fyrir um það bil fimm árum fór
Kristný að taka eftir breytingum
á móður sinni sem henni fannst
orðin mjög gleymin og spyrja
sömu spurninganna aftur og
aftur. „Ég var svolítið pirruð á
þessu og fannst mamma vera
voðalega lítið með á nótunum og
jafnvel að hún væri vísvitandi að
reyna að pirra okkur fjölskyld-
una,“ segir Kristný. Á þessum
tíma bjó Kristný ekki í Ólafsvík
hjá foreldrum sínum heldur var
í skóla í Reykjavík en reyndi að
fylgjast náið með móður sinni
þegar hún kom heim í frí. Til
að byrja með fékk Kristný ekki
miklar undirtektir hjá öðrum
fjölskyldumeðlimum og hafði
faðir hennar ekki eins miklar
áhyggjur af breytingunum á
Haföldu og Kristný. „Mér fannst
ég því svolítið ein með þessar
hugsanir. Síðan veitti móður-
amma mín því athygli líka að
mamma væri ekki eins og hún
á að sér að vera og það var viss
léttir.“
Var send í veikindaleyfi
Þegar veikindin hófust, fyrir
um það bil fimm árum, vann
Hafalda við bókhaldsstörf hjá
Deloitte og Tryggingamiðstöð-
inni í Ólafsvík. Veikindin voru
farin að hafa það mikil áhrif
á hana dagsdaglega að hún
var send í árslangt veikinda-
leyfi úr vinnunni. „Samstarfs-
fólkið í vinnunni og bæjarbúar
í Ólafsvík höfðu tekið eftir því
að það væri ekki alveg í lagi
hjá mömmu. Svo fórum við í
nokkrar heimsóknir til læknis
í Reykjavík sem gerði rann-
sóknir á mömmu og niðurstað-
an var sú að hún væri ekki með
Alzheimerssjúkdóminn en það
kom þó engin önnur sjúkdóms-
greining heldur,“ segir Kristný.
Kristný kveðst ekki hafa
glaðst neitt sérstaklega yfir
tíðindunum af því að móðir
hennar væri ekki með Alzhei-
mers því áfram var fjölskyldan
í lausu lofti, móðirin mjög utan
Lifa í núinu og njóta tímans
Hafalda Elín Kristinsdóttir er
aðeins fimmtug og greindist
með Alzheimerssjúkdóminn
fyrir einu og hálfu ári. Árin
áður höfðu verið erfið því
greinilegt var að Hafalda var
mjög utan við sig en engin
niðurstaða fékkst úr rann-
sóknum. Áður bjó Hafalda
í Ólafsvík en er nú flutt til
Reykjavíkur þar sem hún
nýtur daglega stuðnings fjöl-
skyldunnar.
við sig og ekki vinnuhæf en
samt án sjúkdómsgreiningar.
„Ég vissi alltaf að það væri
eitthvað mikið að. Við vorum
rosalega lengi í nokkurs konar
„hvergilandi“. Það vissi eng-
inn hvað var að og eins og
enginn hefði áhuga á að finna
út úr því. Það var mér mjög
mikilvægt að komast að því
hvað væri að hrjá mömmu svo
hægt yrði að hjálpa henni.“
Barátta við kerfið
Þegar sú niðurstaða kom að
Hafalda væri ekki með Alzhei-
mers tjáði Kristný lækninum
vonbrigði sín. „Ég gat ekki
látið eins og ekkert væri að þó
hún væri ekki með Alzheimers
þá var samt eitthvað að en þá
sagði læknirinn að enginn
annar styddi mína frásögn.
Þá reiddist ég út í lækninn en
er ekki reið lengur. Á þessum
Ég vissi alltaf að það væri
eitthvað mikið að. Við vorum
rosalega lengi í nokkurs konar
„hvergilandi“.
Hafalda greindist með
Alzheimerssjúkdóminn aðeins
48 ára gömul. Fjölskyldan
stendur þétt saman og reynir
að gera eitthvað skemmtilegt
með Haföldu daglega. „Mottóið
okkar er að lifa í núinu og njóta
tímans. Það er mikilvægt að
hafa alltaf í huga að tíminn er
ekki sjálfgefinn hjá neinum,
hvort sem fólk er heilbrigt eða
með sjúkdóm.“ Ljósmyndir/Hari.
26 viðtal Helgin 27.-29. september 2013