Fréttatíminn - 27.09.2013, Side 32
Mannréttindi hversdagsins
föstudaginn 27. september kl. 13.00 – 16.30 á Grand Hóteli
Dagskrá:
13.00 – 13.10 Setning: Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
13.10 – 13.20 Ávarp: Stefán Thors, ráðuneytisstjóri umhverfis- og auðlindaráðuneytisins
13.20 – 13.40 Aðgengi er forsenda þátttöku
– Ný íslensk rannsókn: Steinunn Þóra Árnadóttir, MA í fötlunarfræði
13.40 – 14.00 Algild hönnun: Snæfríður Þóra Egilson, prófessor í fötlunarfræði
14.00 – 14.20 Ný byggingarreglugerð: Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkjastofnunar
14.20 – 14.30 Umræður
14.30 – 15.00 Kaffihlé
15.00 – 15.20 Aðgengi: Upplýsingar og úrbætur: Harpa Cilia Ingólfsdóttir,
ráðgjafi og ferlihönnuður
15.20 – 15.40 Aðgengi að alnetinu: Birkir Rúnar Gunnarsson, vefhönnuður hjá Advania
15.40 – 16.00 Hugleiðingar
• Aðgengi að náttúrunni: Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar
• Aðgengi að menningu: Eva Þórdís Ebenezersdóttir, þjóðfræðingur
• Aðgengi að vörum og þjónustu: Ágústa Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Þjónustu-
og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Málþingsstjóri: Þuríður Harpa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Nýprents
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald
Síðasti skráningardagur er 26. september
Skráning, upplýsingar um túlkun og fleira á vef Öryrkjabandalags Íslands www.obi.is
MÁLÞING
Aðgengi og algild hönnun
Skiptir ekki máli hvort það er eitt brjóst eða tvö
Valdís Alberts-
dóttir greindist með
brjóstakrabbamein
og frumubreytingar
í legi með skömmu
millibili. Fjar-
lægja þurfti
annað brjóstið en
frumubreytingarnar
gengu til baka. Hún
segist heppin að
meinið greindist
þegar hún fór
í reglubundna
skoðun. Hún fann
ekki fyrir neinum
óþægindum og
grunaði ekki að neitt
væri að.
É
g fékk tvö
bréf í röð.
Daginn eftir
að ég fékk
bréf um að
ég þyrfti að koma aftur í
skoðun á brjóstum fékk
ég annað bréf þar sem
mér var tilkynnt að fund-
ist hefðu frumubreyt-
ingar í legi,“ segir Valdís
Albertsdóttir. Hún fékk
brjóstakrabbamein og
þurfti að fjarlægja annað
brjóstið. Frumubreyting-
arnar í leginu gengu aftur
en hún hefur engu að
síður verið auknu eftirliti
vegna þeirra.
Fyrsta alþjóðlega hlaupið
(e. Globeathon) sem
haldið er til að vekja
athygli á krabbameini í
kvenlíffærum fer fram
sunnudaginn 29. septem-
ber 2013.
Hlaupið verður um
allan heim, þar á meðal
á Íslandi, en það er Líf
styrktarfélag Kvenna-
deildar Landspítalans sem
hefur veg og vanda af
hlaupinu hér á landi.
Íslenska hlaupið hefst
við anddyri Kvennadeildar
Landspítalans klukkan
13 á sunnudag og verður
boðið upp á tvær vega-
lengdir, 5 km og 10 km.
Þátttökugjald er 2000
krónur fyrir 16 ára og
eldri og rennur óskipt til
að styrkja þjónustu við
konur sem greinast með
krabbamein í kvenlíf-
færum. -eh
Alþjóðlegt hlaup vegna
krabbameins í kvenlíffærum
Valdís Albertsdóttir tók því af miklu æðruleysi þegar hún greindist með brjósta-
krabbamein en fann fyrir mikilli hræðslu meðal sinna nánustu. Ljósmynd/Hari
Eins og köngulóar-
vefur
Valdís er 53 ára og hafði
alltaf farið reglulega í
krabbameinsskoðun þó
stundum léti hún líða
nokkuð á milli. „Ég mætti
alltaf en stundum hafði
ég fengið ítrekunarbréf
um að koma í skoðun,“
segir hún. Valdís var
ekki með nein óþægindi
þegar hún greindist með
brjóstakrabbamein og
ekkert sem benti til þess
að hún væri annað en
heilbrigð. „Stuttu eftir að
ég var í skoðun var mér
tilkynnt að ég þyrfti að
koma aftur því eitthvað
væri óljóst. Ég kom því
aftur í bæði myndatöku
og sýnatöku. Síðan fór ég
í sónartæki, svona svipað
og maður fer í á fæðingar-
deildinni nema að þetta
var á brjósti. Í ljós kom
eitthvað sem mér fannst
líta út eins og köngulóar-
vefur í brjóstinu. Það var
stungið á og í framhaldi
af því var ég send í segul-
ómun þar sem maður þarf
að liggja alveg grafkyrr
eins og frosið ýsustykki.“
Valdís hlær þegar hún
sleppir þessum orðum þó
32 viðtal Helgin 27.-29. september 2013