Fréttatíminn - 27.09.2013, Side 34
34 bílar Helgin 27.-29. september 2013
Chevrolet Aukin hlutdeild
Fimm hundruð
Chevrolet bílar
Bílabúð Benna afhenti fyrr í þessum mánuði fimm hundr-
aðasta Chevrolet bílinn á þessu ári. „Það er meira magn
en skráð var af Chevrolet allt árið 2012. Chevrolet er þriðja
söluhæsta vörumerki landsins, hvort sem litið er til heildar-
sölu eða sölu til almennings, með 8,4% markaðshlutdeild,“
segir á síðu fyrirtækisins.
„Við erum gríðarlega ánægð með árangurinn hér á bæ
og erum að auka hlutdeild Chevrolet umtalsvert milli ára,“
segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna. Við höfum
fundið greinilega fyrir auknum vinsældum Chevrolet
síðustu árin og að viðskiptavinir kunna vel að meta hönnun
þeirra og gæði.“
Jónas Guðmundsson frá Búðardal tók
við 500. Chevrolet bíl ársins, Captiva
LTZ. Með honum á myndinni eru Sigur-
vin Jón Kristjánsson, sölumaður nýrra
bíla hjá Bílabúð Benna og Benedikt
Eyjólfsson forstjóri. Mynd/Bílabúð Benna
Í sumar bauð Toyota mér og fleiri ís-lenskum blaðamönnum sem fjalla um bíla til Mallorca að prófa tvo nýja bíla,
annars vegar nýja kynslóð Toyota Corolla
og hins vegar nýja kynslóð Toyota Auris
Touring Sports. Þeir eru mjög áþekkir
en Aurisinn þó meiri fjölskyldubíll og
Corollan sportlegri, ef eitthvað er.
Einungis Aurisinn er þó fáanlegur með
hinni bráðsnjöllu Hybrid Synergie drive-
tækni sem Toyota hefur verið að þróa
undanfarin ár sem gerir það að verkum
að eldsneytiseyðsla er talsvert undir því
sem best gerist í hefðbundndum dísil- eða
bensínvélum. Hybrid-tæknin nýtir hreyfi-
orku bílsins til að framleiða rafmagn sem
geymt er í rafhlöðum sem endurhlaða
sig sjálfkrafa. Rafmagnið knýr bílvélina
upp að vissu marki en þá tekur eldsneytið
við. Tæknin er orðin svo fullkomin að
ökumaður finnur ekki fyrir því að hann
sé að keyra rafmagnsknúinn bíl, að því
undanskildu að vélin er hljóðlaus á meðan
rafmagnið knýr bílinn. Krafturinn í hy-
brid-vélunum er orðinn slíkur að hann
gefur bensínvélunum ekkert eftir, það
fengum við að prófa í Mallorca þegar við
prófuðum Aurisinn annars vegar með hy-
brid-vél og hins vegar dísil eða bensín. Ég
var ekki frá því að hybrid-vélin væri kraft-
meiri en vélin á bensínbílnum sem ég
prófaði og að auki er mun skemmtilegra
að aka hybrid-bílnum, bæði vegna þess
að hann er á tíðum algerlega hljóðlaus og
hins vegar tilhugsunin um hversu miklu
mun lægri bensínreikningurinn er – svo
ekki sé talað um mengunarreikninginn.
Að innan eru bílarnir áþekkir, nánast
eins. Ég var satt að segja ekki viss hvorn
bílinn ég væri að keyra, enda ekki þekkt
fyrir að taka eftir smáatriðum í umhverfi
mínu. Báðir voru búnir nýjustu tækni svo
sem tölvuskjá með stýringu fyrir hljóm-
kerfið (sem getur spilað þráðlaust tónlist
úr símanum), handfrjálsan símabúnað,
bakkmyndavél og fleira. Einnig er hægt
að fá leiðsögukerfi í tölvuna, sem er ansi
handhægt fyrir þá sem eiga erfitt með
að rata. Einnig er hægt að fá svokallaða
bakkaðstoð – en hún sér um að bakka
bílnum í stæði fyrir bílstjórann, bókstaf-
lega. Á öllum hliðum og hornum bílsins
eru skynjarar sem bakkaðstoðin notast
við til að smeygja bílnum inn í stæði sé
ýtt á þar til gerðan takka. Snilld fyrir þá
sem eru ekki alveg með rúmskynjunina
á tæru.
Þó svo að ég hefði – eðli málsins vegna
– ekki haft tök á að máta börn og bíl-
stóla í bílinn sýndist mér að hvorugur
bíllinn hefði rúmað þrjá bílstóla – enda
ekki margir bílar sem gera það. Tískan
í bílahönnun er einnig þannig í dag að
aftursætisgluggarnir eru staðsettir helst
til ofarlega þannig að börn sjá ekki jafn-
vel út eins og ákjósanlegt væri. Skottið
á Aurisnum er hins vegar mjög rúmgott
og hentar vel fólki með mikinn farangur
enda var það haft að markmiðið við
endurhönnun bílsins að gera hann eins
rúmgóðan og mögulegt var. Öll stýritæki
voru mjög handhæg og innan seilingar
og aksturseiginleikar þeirra beggja til
fyrirmyndar. Aurisinn stóð þó upp úr hjá
mér í þessum reynsluakstri, bæði er hann
rúmbetri en Corollan og einnig fáanlegur
í Hybrid útgáfu.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
reynsluAkstur toyotA CorollA og toyotA Auris touring sport
Tvær nýjar Toyotur
Ný kynslóð tveggja vinsælla Toyota, Corolla og Auris, litu nýverið dagsins ljós. Bílarnir eru mjög
áþekkir en Corollan þó ögn sportlegri og Aurisinn meiri fjölskyldubíll og því rúmbetri.
Aurisinn
stóð þó upp
úr hjá mér
í þessum
reynslu-
akstri, bæði
er hann
rúmbetri
en Corollan
og einnig
fáanlegur í
hybrid út-
gáfu.
Toyota Auris Touring Sport er hér nær á myndinni og Corollan fjær. Aurisinn er mun rúmbetri en Corollan sportlegri.
Skoda Octavia var
valinn bíll ársins
2014 á Íslandi
og hlaut Stál-
stýrið svokallaða.
Bandalag íslenskra
bílablaðamanna,
BÍBB, stóð að
valinu. Octavia
hlaut flest stig
dómnefndarinnar,
742 en hver bíll í
valinu gat mest
fengið 960 stig. 21
bíll var í undanúr-
slitum á þessu ári.
Meðaltalseinkunn
Octavia er 7,7.
Næstflest stig
yfir heildina hlaut
rafbíllinn Tesla S
með 706 stig og
í þriðja sæti varð
VW Golf með 701
stig.
VW Golf var
efstur í flokki minni
fólksbíla með 701
stig. Í öðru sæti
var Renault Clio
með 649 stig og
því þriðja rafbíllinn
Nissan Leaf með
642 stig.
Í flokki stærri
fólksbíla var Skoda
Octavia efstur með
742 stig. Í öðru
sæti var Tesla S
með 706 stig og
því þriðja tvinnbíll-
inn Lexus IS300h
með 699 stig.
Í flokki jeppa
og jepplinga var
Honda CRV efstur
með 682 stig.
Næstur var Toyota
RAV4 með 563
stig og Ford Kuga
í þriðja sæti með
555 stig.
stálstýrið BÍBB
Skoda Octavia var valinn Bíll ársins 2014.
Skoda Octavia valinn bíll ársins 2014
Eftirlitsmyndavél fyrir sumarbústaði og heimili
· Tekur venjulegt GSM SIM kort
· Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
· SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
· Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
· Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
· Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o..
S. 699-6869 · rafeindir@internet.is · www.rafeindir.is