Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 46

Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 46
46 skák og bridge Helgin 27.-29. september 2013  Skák átta fulltrúar ungmenna á em í Svartfjallalandi Sem hefSt um helgina Gylfi og Vigfús sigruðu á hraðkvöldi Hellis g ylfi Þórhallsson og Vigfús Ó. Vigfússon urðu efstir og jafnir með 6,5 vinninga í sjö skákum á hraðkvöldi Hellis sem haldið var síðastliðinn mánu- dag, 23. september, að því er fram kemur á Skák.is, skákfréttavef Skáksambands Íslands. Þeir gerðu jafntefli í innbyrðis viðureign og unnu aðra andstæðinga. Þeir voru því einnig jafnir að stigum og þurfti að grípa til hlutkestis til að skera úr um sigurvegara. Þá hafði Gylfi betur með því að velja fisk- inn. Jöfn í 3. og 4. sæti voru Vignir Vatnar Stefánsson og Elsa María Kristínardóttir með 4 vinninga. Í lokin dró svo Gylfi Gunnar Niku- lásson í happdrættinu og fengu þeir báðir gjafamiða á Saffran. Næsta skákkvöld í Hellisheim- ilinu verður mánudaginn 7. október klukkan 20. Þá verður atkvöld, að því er segir á vefnum. Lokastaðan á hraðkvöldinu: 1. Gylfi Þórhallsson 6,5v/7 2. Vigfús Ó. Vigfússon 6,5v 3. Vignir Vatnar Stefánsson 4v 4. Elsa María Kristínardóttir 4v 5. Jón Úlfljótsson 3,5v 6. Gunnar Nikulásson 2,5v 7. Pétur Jóhannesson 0,5v 8. Björgvin Kristbergsson 0,5v Jón Viktor og Einar Hjalti efstir á Gagnaveitumótinu Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2409) og Einar Hjalti Jensson (2305) eru efstir með fullt hús að lokinni fjórðu umferð Gagnaveitumótsins – Skákþings Reykjavíkur sem fram fór í á mið- vikudagskvöld, að því er fram kem- ur á Skák.is. Jón Viktor vann Oliver Aron Jóhannesson (2007) en Einar Hjalti hafði betur gegn Degi Ragn- arssyni (2040). Stefán Kristjáns- son (2491) er þriðji með 3,5 vinn- ing en hann gerði jafntefli við Gylfa Þórhallsson (2154). Stefán Bergsson (2131) er svo fjórði með 2,5 vinning eftir sigur á Kjartani Maack (2128). Sverir Örn Björnsson vann Jóhann H. Ragn- arsson (2136) vann svo Jóhann H. Ragnarsson (2037) Í fimmtu umferð, sem fram fer á sunnudag, mætast meðal ann- ars Stefán Kristjánsson og Einar Hjalti. B-flokkur: Ingi Tandri Traustason (1817), Jón Trausti Harðarson (1930) og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (29149) með 3,5 vinninga. C-flokkur: Kristófer Ómarsson (1598) og Elsa María Kristínardóttir eru efst með 3 vinninga. D-flokkur: Hilmir Hrafnsson (1351) er efstur með 3,5 vinning. Guðfinnur efstur í Ásgarði Æsir skákfélag eldri hélt hið viku- lega þriðjudagsmót að Ásgarði Stangarhyl 4 þann 24. september. Ágæt mæting var en alls mættu 22 keppendur til leiks, að því er segir á Skák.is. „Nú var það hinn glað- beitti keppnismaður Guðfinnur R. Kjartansson sem bar sigur úr být- um með 8 vinninga en á hæla hans með 7,5 vinninga kom Páll G. Jóns- son. Á eftir þeim í 3.-5. sæti komu svo Ari Stefánsson, Jón Víglunds- son og Haraldur A. Sveinbjörns- son,“ segir þar. Átta ungmenni á EM Átta fulltrúar frá Íslandi taka þátt í EM ungmenna sem fram fer í Budva í Svartfjallalandi. Mótið hefst á morgun, laugardaginn 28. september og stendur til 9. októ- ber. g unnlaugur Karlsson, fyrirliði í sveit Sölufélags garðyrkjumanna (SFG), spilar og segir oft óvenju- lega þar sem hann lætur tilfinninguna ráða fram yfir venjulegar aðferðir. Það leiðir oft til góðs árangurs eins og þetta spil er gott dæmi um. Spilið kom fyrir í bikarleik sveita SFG og Lögfræðistofu Íslands (sem þeir síðarnefndu unnu) í undanúrslitum bikarkeppninnar. Gunnlaugur græddi 4 impa í vörn gegn 4 spöðum þar sem látið var nægja að spila 3 spaða á hinu borðinu. Spil 3, suður gjafari og AV á hættu: ♠ 95 ♥ K92 ♦ K107654 ♣ 102 ♠ ÁG ♥ ÁD1084 ♦ D2 ♣ 8765 ♠ 86 ♥ G653 ♦ G98 ♣ ÁG93 ♠ KD107432 ♥ 7 ♦ Á3 ♣ KD4 N S V A Suður (Gunnlaugur) opnaði á einu hjarta og norður gaf góða hjartahækkun með gervisögninni 2 tíglum. Austur var ekkert að tvínóna við hlutina og stökk í 4 spaða sem voru passaðir út. Gunnlaugur, trúr sannfæringu sinni, spilaði út tígultvisti. Sagnhafi drap tíu norðurs á ás og spilað spaðakóng. Gunnlaugur drap á ás, tók á tíguldrottningu og undirspilaði lágu hjarta frá ásnum. Þegar Kjartan fékk slaginn á kónginn, sá hann hverju Gunnlaugur var að fiska eftir og spilaði tígli. Þannig tryggði hann Gunnlaugi slag á spaðagosa. Skemmtileg og óvenjuleg vörn. Heimsmeistaramótið í Bali Nú er lokið riðlakeppni í þremur flokkum á heimsmeistaramótinu í Balí. Í keppninni í opnum flokki um Bermúdaskálina varð lokastaða efstu sveita þannig: USA1 .................................................................. 293,89 Ítalía .................................................................. 284,59 Mónakó ............................................................. 280,70 Pólland.............................................................. 257,63 Holland ............................................................. 254,23 England............................................................. 252,84 Kína ................................................................... 246,55 Kanada.............................................................. 243,22 USA2 ................................................................. 239,57 Í kvennaflokki (Venice Cup) varð loka- staða þannig: Holland ............................................................. 297,12 USA1 .................................................................. 281,86 Pólland.............................................................. 280,15 Kína ................................................................... 260,04 USA2 ................................................................. 258,89 Tyrkland ............................................................ 258,55 Frakkland ......................................................... 255,81 England............................................................. 245,47 Japan ................................................................ 238,15 Í flokki eldri spilara (D‘Orsi) varð loka- staða eftir riðlakeppni þannig: Frakkland 304,57 USA2 281,32 Þýskaland 269,89 Belgía 263,07 Pólland 259,17 Indónesía 258,38 Skotland 254,21 Holland 248,33 USA1 247,81 Reglan var sú að 1-4 sæti völdu sér and- stæðinga í sætum 5-8 í útsláttarkeppni, sæti 1 fyrst og svo koll af kolli. Bandarík- in1 völdu Kanada, Ítalía valdi Kína, Móna- kó valdi England og Pólland fékk Holland í opnum flokki. Holland valdi Tyrkland, USA1 valdi England, Pólland valdi USA2 og Kína fékk Frakkland í kvennaflokki. Staðan eftir 3 lotur af 6 (48 spil af 96): Bermúda skálin: Kanada-Bandaríkin ................................... 71,77-99 Ítalía-Kína ................................................... 157-102,3 England-Mónakó ....................................... 119,3-156 Pólland-Holland ......................................... 153-68,3 Venusar skálin: Holland-Tyrkland ....................................... 119-61 England-Bandaríkin1 ................................. 139-55 Pólland-Bandaríkin2 ................................. 60-104 Frakkland-Kína .......................................... 96-118 Íslendingar eiga tilkalls til eins fulltrúa. Hjördís Eyþórsdóttir, atvinnuspilari í Bandaríkjunum, er í sveit Bandaríkjanna2 og staða hennar er vænleg þegar þessi orð eru skrifuð. Risaskor Bridgefélag Reykjavíkur hóf starfsemi sína 17. september á þriggja kvölda Hótel Hamars tvímenningi. Félagarnir Sveinn Rúnar Eiríksson og Þröstur Ingimarsson náðu risaskori á fyrsta kvöldin. Fimm efstu pörin eru þessi: 1.Sveinn Rúnar Eiríksson – Þröstur Ingimarsson 73,0% 2. Guðmundur Baldursson – Steinberg Ríkarðsson 60,9% 3. Ísak Örn Sigurðsson – Sverrir Þórisson 59,2% 4. Ómar Olgeirsson – Júlíus Sigurjónsson 58,5% 5. Gunnlaugur Karlsson – Kjartan Ingvarsson 58,1% Reykjavíkurmót í tvímenningi Reykjavíkurmótið í tvímenningi verður endurvakið eftir nokkurra ára hlé. Það verður haldið föstudaginn 27. sept- ember og laugardaginn 28. september, í Síðumúla 37. Mótið byrjar klukkan 18 á föstudegi og klukkan 10 á laugardegi og búið fyrir klukkan 18. Nánara tímaplan fer eftir þátttöku en stefnt á að spila í kringum 80 spil.  Bridge Það getur Skilað góðum árangri að láta tilfinninguna ráða Óvenjuleg vörn Sveitir SFG og Lögfræðistofunnar. Gunn-laugur Karlsson er þriðji frá vinstri. Hilmir Freyr Heimisson er meðal þeirra ungmenna sem tefla í flokki 12 ára og yngri á EM í Svartfjallalandi. Mynd/Skák.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.