Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 50

Fréttatíminn - 27.09.2013, Page 50
50 bíó Helgin 27.-29. september 2013 Mig lang- ar að gera næstu mynd hér.  Frumsýnd don Jon  This is sanliTun Frumsýnd á riFF l eikstjórinn Róbert Douglas flutti til Beijing í Kína 2007 og er nú mættur til Íslands með sína fyrstu bíómynd, síðan hann sýndi Strákana okkar fyrir átta árum. Myndin This Is San- litun gerist í Beijing og segir frá brölti Englendings sem reynir að hasla sér þar völl með takmörk- uðum árangri. Róbert segir að á vissan hátt megi segja að grunnsöguþráð- urinn í myndinni kallist á við Íslenska drauminn frá árinu 2000. Sú mynd fjallaði um lukk- uriddarann Tóta sem reyndi að auðgast með ýmsum klikkuðum aðferðum. „Grunnsöguþráðurinn er svip- aður og þarna er annar maður í öðru landi að reyna að meika það í Kína og gengur illa. Og er með álíka gáfuleg markmið og Tóti.“ Gary ætlar sér stóra hluti í Beij- ing en eftir að honum mistekst að heilla kínverska fjárfesta tekur hann að sér enskukennslu og nýtur lífsvisku Franks, algerlega misheppnaðs lærimeistara. Raun- verulegur tilgangur Garys með dvölinni í Kína kemur síðar í ljós þegar fyrrverandi eiginkona hans og sonur skjóta upp kollinum. Róbert segir að sjálfsögðu horft á Kína með augum útlendingsins í myndinni. „Já, algjörlega. Hún er um útlendinga sem búa í Peking. Þennan Englending og þau ævin- týri sem hann lendir í.“ Þótt langt hafi liðið á milli mynda Róberts er This Is San- litun ekki búin að vera nema um tvö ár í vinnslu. „Ég var búinn að vera með hin og þessi verkefni í gangi þarna úti. Og eiginlega á Ís- landi líka. Ég ætlaði að gera mynd hérna heima 2008 en þá hrundi allt. Þá ákvað ég að einbeita mér að því að byrja á einhverjum verk- efnum úti í Kína og ákvað síðan bara að fara af stað með þessa mynd fyrir svona tveimur árum. Drífa mig bara í að gera mynd án þess að hugsa um tiltekin leyfi og fjármagn og gera bara ódýra mynd.“ Róbert sýndi myndina í Toronto á dögunum, opnaði RIFF með henni og frágengið er að hún fari í almennar sýningar í Kína og vitaskuld hér heima. Hann segir næstu mánuði munu fara í að sýna hana á fleiri hátíðum og selja hana í dreifingu víðar. Róbert segir að þrátt fyrir að hann sé búinn að koma sér notalega fyrir í Kína stefni hann á flutninga heim á næsta ári. „Ég er með handrit sem ég er búinn að skrifa og mynd í undirbúningi sem gerist á Íslandi og planið er að gera hana. Mig langar að gera næstu mynd hér.“ Kvikmyndaleikstjórinn Róbert Douglas hefur búið í Kína undanfarin ár og látið lítið fyrir sér fara síðan hann frumsýndi gamanmyndina Strákarnir okkar fyrir átta árum. Hann er kominn til lands- ins með sína nýjustu mynd, This Is Sanlitun, sem hann gerði í Kína. Myndin var opnunarmynd Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík, RIFF, í gær og fer í almennar sýningar að hátíðinni lokinni, þann 7. október. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Kínverskt bergmál af Íslenska draumnum Róbert Douglas hefur búið í Kína undanfarin ár og opnaði RIFF með nýjustu mynd sinni This Is Sanlitun þar sem horft er á Kína með augum útlendingsins. Hann gerði Ís- landsheimsóknina einnig að fríi og ætlar að reyna að taka því rólega hérna í þrjár vikur. Ljósmynd/Hari. Það hitnar undir klámfíklinum Jon þegar hann fellur fyrir Barböru.  Frumsýndar BóFahasar og póker Gordon-Levitt dettur í klámið Sá öflugi leikari Joseph Gordon-Levitt stígur sín fyrstu skref sem leikstjóri með gamanmyndinni Don Jon. Hann leikur sjálfur aðalhlutverkið, Jon Martello, myndarlegan, ungan mann sem þykir ákaflega heillandi í viðkynningu. Hann er þó illu heilli forfallinn klámfíkill, liggur yfir netklámi, er lauslátur og hefur engan hug á að festa ráð sitt. Vinir hans kalla hann því Don Jon, með vísan til hins goðsagnakennda elskhuga Don Juan. Þetta breytist þegar hann kynnist Barböru Sugarman, klárri stelpu sem hefur gömul og góð gildi í hávegum. Hún er alin upp við að horfa á rómantískar Hollywoodmyndir og er staðráðin í að finna draumaprinsinn og Jon kolfellur fyrir henni. En eins og við má búast kemur babb í bátinn þegar Barbara kemst að því að draumaprinsinn er klámfíkill. Auk Gordon-Levitt fara Scarlett Johansson, Julianne Moore, Tony Danza og Jeremy Luke með helstu hlutverk í myndinni. Aðrir miðlar: Imdb: 7,5, Rotten Tomatoes: 83%, Metacritic: 52% Krimmi í hefndarhug Tvær spennumyndir eru frumsýndar um helgina. Í Welcome to the Punch takast þeir á harðjaxlinn Mark Strong og mjúkmennið James McAvoy. Strong leikur bankaræningja sem hefur falið sig á Íslandi en snýr aftur til London til þess að hefna sonar síns. Þar bíður McAvoy átekta og tekur fagnandi öðru tækifæri til þess að klófesta kauða. Aðrir miðlar: Imdb: 6,1, Rotten Tomatoes: 50%, Metacritic: 49% Runner Runner fjallar um námsmann sem tapar öllu sínu í netpóker og grunar að brögð hafi verið í tafli. Justin Timberlake leikur þennan óheppna fjárhættuspilara sem heldur til fundar við þann sem stjórnar netpókernum og hittir þar fyrir Ben Affleck sem reynist vera í meira lagi varasamur náungi. Aðrir miðlar: Dómar ekki komnir. SKÓLANEMAR: 25% AfSLáttuR gEgN fRAMvíSuN SKíRtEiNiS! MEÐ StuÐNiNgi REYKJAvíKuRBORgAR & KviKMYNDAMiÐStÖÐvAR íSLANDS - MiÐASALA: 412 7711 BuRNiNg BuSh (14) - Allir þrír hlutAr sAmAn með einu hléi - 3x80 mín. 29/09: 16.00 AÐEINS 1 SÝNING Laugavegi 25 - S: 553-3003 H ö n n u n a r h ú s www.hrim.is Opnunartími Mán-fös 10:00-18:00 Laugardaga 10:00-18:00 Sunnudaga 13:00-17:00 Íslensk hönnun er góð gjöf

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.