Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 27.09.2013, Blaðsíða 56
 Í takt við tÍmann Una StefánSdóttir Fékk taugaáfall á Beyoncé-tónleikum Una Stefánsdóttir er 22 ára tónlistarkona sem ólst upp í Fossvoginum. Hún er að ljúka námi í djasssöng við FÍH og hefur einnig verið í píanónámi. Fyrir skemmstu sendi hún frá sér fyrsta lag sitt, Breathe, sem vakið hefur nokkra athygli. Una stundar hugleiðslu í gegnum snjallsímann sinn og er mikill aðdáandi söngþátta á borð við X-Factor og Idol. Staðalbúnaður Fatastíllinn minn snýst oft frekar um þægindi en tísku- strauma. Ég nenni til dæmis sjaldnast að fara á hljóm- sveitaræfingu í hælaskóm. Stundum þarf maður reyndar að spá í lúkkið, eins og þegar maður spilar á tónleikum. Þá fórnar maður þægindunum fyrir lúkkið. Fatastíllinn minn er einhvers konar blanda af gömlu og nýju. Ég versla svolítið í Nostalgíu en annars á ég mér ekki uppáhalds verslun. Ég elska skartgripi og geng til dæmis oft með stóra eyrnalokka. Ef ég væri eitt- hvað handlagin vildi ég geta búið sjálf til skartgripi en ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því, ég get varla skrifað nafnið mitt. Hugbúnaður Ég er orðin frekar léleg í djamminu enda fer það svo illa með röddina að drekka. Ég fer aftur á móti reglulega á tónleika enda á ég marga vini sem eru tónlistarmenn og hér er einhver besta tónlistarsena í heimi. Það er reyndar ekki mikið af tónleikastöðum eftir. Rósen er klassík en ég sakna Faktorý gríðarlega og líka Hemma og Valda. Mig langar bara að fara að gráta yfir örlögum þeirra. Ef ég á frí frá æfingum og tónleikum finnst mér frekar kósí að kúra bara með kæró. Við vorum að klára House of Cards og nú langar mig í Kevin Spacey-plakat. Ég sit hins vegar ein og græt yfir söngþáttum, það vill enginn horfa á þá með mér. X-Factor, Idol, Voice og hvað þetta heitir allt saman, ég elska þetta og langar að verða dómari í þeim einn daginn. Vélbúnaður Ég á iPhone og Makka. Sím- ann nota ég mest í Facebook, Instagram og fleira slíkt. Mesta snilldin er svo Head Space sem er tíu mínútna hug- leiðsla á hverjum degi. Frábært app fyrir fólk sem er alltaf á fullu. Svo á ég annað heimili í nótnaskriftarforritinu Sibelius. Aukabúnaður Ég er því miður ekki nógu dugleg að elda. Þegar ég panta mér mat finnst mér fásinna að panta mér eitthvað annað en ítalskan mat og vín, ég bara sé ekki tilganginn. Ég tala líka ítölsku eftir að hafa búið á Ítalíu. Ég er tungumálanörd og er alltaf að læra nokkur tungumál í einu. Svo hef ég gaman af ljóðlist en það tengist auðvitað beint inn í tónlistina. Ég ferðast þessa dagana um í strætó en það verður vonandi ekki of lengi í viðbót. Í sumar heimsótti ég vini mína í Róm og fór á Beyoncé-tónleika í Köben. Ég man eiginlega ekk- ert eftir þessum tónleikum því ég grét svo ógeðslega mikið. Ég fékk létt taugaáfall og vinkonur mínar þurftu að hugga mig. Una er dugleg að fara á tónleika í borginni en er ósátt við hversu mörgum tónleikastöðum hefur verið lokað undanfarið. Ljósmynd/Hari  appafengUr Barefoot World Atlas Barefoot World Atlas er ekki aðeins fyrir yngri kynslóðina held- ur geta fullorðnir líka haft gagn og gaman af þessu appi. Notendur sjá þrívíddarútgáfu af heimskringlunni og það gefur skemmtileg- an blæ að þegar flett er á milli heimssvæða hljómar tónlist sem er einkennandi fyrir hvert svæði. Hægt er að velja staði á kortinu eða fletta löndum upp með því að skrifa nafn þeirra. Um hvert land eru helstu upplýsingar á borð við fólksfjölda, mynt og fjölda bíla á hverja manneskju, en einnig kemur upp hitastigið í höfuð- borginni á þeim tíma sem appið er skoðað og hvað klukkan þar er. Þeir sem gefa app- inu aðgang að staðsetningu sinni fá einnig upplýsingar um hversu langt landið er í burtu. Þá er einnig hægt að fletta upp merkisstöðum í heiminum eða einstökum dýrategundum, Eiffel- turninum eða heimskautarefnum, og fá að vita það helsta. Upplýsingarnar eru ekki aðeins skrifaðar heldur einn- ig lesnar á ensku. Mikil natni er lögð í hönnunina og nýtur appið sín því eig- inlega betur í iPad heldur en í iPhone. Appið er aðeins til fyrir Apple-vörur og er eitt vinsælasta appið frá upphafi. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 56 dægurmál Helgin 27.-29. september 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.