Fréttatíminn - 11.01.2013, Side 42
34 heilsa Helgin 11.-13. janúar 2013
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó
nokkurn tíma og var búin að vera að hugsa lengi um að
fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég hef náð góðum
árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu
hressari og með miklu meiri orku. Maður verður að vilja
gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að
megra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma
sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga Einarsdóttir
Vilt þú fá meira út úr lífinu?
Heilsuborg er með lausnina fyrir þá sem vilja læra að lifa heilbrigðu lífi!
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík
Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is
Heilsulausnir
Hentar þeim sem eru í ofþyngd og eru búnir
að prófa „allt“ án árangurs og vilja tileinka sér
heilbrigðan lífsstíl til langframa.
Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10:00, 14:00 eða 19:30
Verð kr. 16.900 á mánuði í 12 mán.
Hefst 21. janúar.
Stoðkerfislausnir
Hentar einstaklingum sem glíma við einkenni
frá stoðkerfi svo sem bakverki, verki í hnjám
eða eftirstöðvar eftir slys.
Mán, mið. og fös. kl. 15:00 eða 16:30
Verð 3x í viku, 8 vikur, kr.19.900 pr. mán.
(Samtals kr. 39.800)
Hefst 14. janúar.
Orkulausnir
Hentar þeim sem vilja byggja upp orku
t.d. vegna vefjagigtar eða eftir veikindi.
Þri. og fim. kl. 10:00 eða 15:00
Verð 2x í viku, 8 vikur, kr. 16.900 pr. mán.
(Samtals kr. 33.800)
Hefst 15. janúar.
Hjartalausnir
Hentar einstaklingum sem hafa greinst
með áhættuþætti hjartasjúkdóma, eru með
kransæðaþrengingu eða hafa fengið hjartaáfall.
Kennsla: Þri. og fim. kl. 07:00 eða 10:00
Verð 2x í viku, 8 vikur, kr. 16.900 pr. mán.
(Samtals kr. 33.800)
Hefst 15. janúar.
AnnA RósA GRAsAlækniR býðuR fólki Að komA líkAmAnum í lAG eftiR jólAátið
Tinktúrur og te eftir jólin
Hún segir að jurtir og grös séu vel til þess fallin og skellti saman í eina glænýja eftir-jóla uppskrift.
e ftir jól er fólk oft fremur illa haldið af bjúg og melting þess í ólagi,“ segir Anna Rósa grasa-læknir en hún býður fólki upp á svokallaðar
tinktúrur til þess að hjálpa því við að koma líkam-
anum í lag eftir jólaátið. Tinktúrur eru jurtablöndur
í vínanda og hægt er að fá þær í ýmsum útgáfum, allt
eftir því hvað best hentar. „Það getur svo margt verið
að hrjá fólk eftir jólin. Það getur verið vindgangur,
bjúgur, hægðatregða og fólk með glúteinóþol kemur
oft mjög illa undan jólunum.“
Anna Rósa segir það nauðsynlegt að hjálpa líkam-
anum að komast í samt lag og jurtaríkið sé vel til þess
fallið. „Það er þekkt að eftir hátíðirnar fyllast líkams-
ræktarstöðvar og fólk reynir að komast aftur í gang og
jurtirnar hjálpa þar mikið. Ég hef verið með tinkt-
úruna Fjallagrasa og fíflarót sem er alveg svakalega
góð fyrir meltinguna en ég nota hana einmitt mikið
sjálf eftir jólin og tek hana jafnvel inn áður en ég fer í
jólaboðin til þess að viðhalda jafnvæginu. Fyrir þá sem
safna bjúgi er hinsvegar tinktúran Fíflablöð og birki
alveg tilvalin en hún er vatnslosandi.“
Anna Rósa setti sérstaklega saman í eina uppskrift
af tei sem ætlað er lesendum Fréttatímans:
Eftir-jólin te
• 2 msk piparmynta
• 1 msk brenninetla
• 1 msk fennel fræ
3–4 msk af teblöndu eru settar í 750 ml hitabrúsa og sjóðandi
vatni hellt yfir. Síið jurtirnar frá þegar hellt er í bolla en setjið þær
svo aftur í hitabrúsann og látið liggja í allan daginn. Drekkið einn
hitabrúsa á dag.
Nánari upplýsingar um tinktúrurnar hjá Önnu Rósu má finna á
www.annarosa.is
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Anna Rósa grasalæknir segir nauðsynlegt að hjálpa
líkamanum að komast í samt form eftir hátíðirnar, til
þess sé tilvalið að leita á náðir náttúrunnar.
Anna Rósa býr til
svokallaðar tinktúrur,
sem eru jurtablöndur
í vínanda.