Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 8

Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 8
S umarliði Þorsteinsson er ungur smiður sem býr í Svíþjóð. Hann keppir í alþjóðlegum leik á vegum AXE snyrtivöruframleiðandans þar sem vinningshafinn fær ferð út í geim að launum. Keppnin er þrískipt, en byrjun hennar er eins konar vinsældakeppni þar sem þeir einstaklingar sem hljóta flest atkvæði á vefsíðu leiksins komast áfram í næsta hluta. Sumarliði vonast eftir áfram- haldandi stuðningi landa sinna heima á Íslandi til þess að eiga möguleika á því að uppfylla æskudrauminn. „Ég er bjartsýnn, en rólegur og yfir- vegaður yfir þessu öllu saman. Það er óneitanlega spennandi tilhugsun að vera kannski á leið upp í geiminn,“ segir Sumarliði. Hann fékk fyrst veður af keppninni þeg- ar vinur hans búsettur á Íslandi deildi upp- lýsingum um hana á samskiptamiðlinum Facebook. Vinur Sumarliða gat þó ekki tekið þátt þar sem Íslendingar eiga þess ekki kost því keppnin nær ekki hingað. „Það má því segja að ég hafi farið svona bakdyramegin að þessu og keppi því sem fulltrúi Íslands í Svíþjóð,“ útskýrir Sumar- liði sem hyggst leggja sig allan fram kom- ist hann áfram úr þessari fyrstu lotu. „Það sem tekur þá við eru allskonar þolpróf og þrautir. Komist ég upp úr þeirri lotu er aðeins ein eftir. Þá fljúga keppendur út til Orlando þar sem við tekur alvöru geim- þjálfun. Þá er í raun ævintýrið byrjað fyrir alvöru og ég hlakka eiginlega mest til þess að prófa til dæmis þyngdarleysi. Þeir sem eru að skora hæst í þessari þjálfun komast svo út í geiminn.“ Sumarliði er í óðaönn að undirbúa sig fyrir keppnina, en þolprófin hefjast í ágúst, „Ég er kominn með einkaþjálfara sem ætlar að aðstoða mig, ég hef aldrei haft svona mikinn hvata til þess að koma mér í form. Nú líður mér eins og ég verði að standa mig fyrir land og þjóð. Það má segja að þetta sé stórt spark í rassinn, ekki vill maður vera þjóðinni til skamm- ar,“ segir hann og hlær. Fyrir þau sem vilja styðja Sumarliða í gegnum fyrstu lotu er hægt að gera svo í gegnum vefsíðuna www.axeapollo.com. Þar verður svo einnig hægt að fylgjast með framvindu mála. María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is Ég er bjart- sýnn, en rólegur og yfirvegaður.  Sumarliði hyggSt halda út í geim Keppir um æskudrauminn „Ég er kominn með einkaþjálfara sem ætlar að aðstoða mig, ég hef aldrei haft svona mikinn hvata til þess að koma mér í form. Nú líður mér eins og ég verði að standa mig fyrir land og þjóð.“ Snyrtivöruframleiðandinn AXE stendur fyrir risavaxinni alþjóðlegri keppni þar sem verðlaunin eru ekki af lakari endanum. Sigurlaunin eru ferð út í geim. Sumarliði Þorsteinsson er eini Ís- lendingurinn í keppninni en þangað segist hann hafa komist að bakdyramegin. Hann hlakkar mest til þess að prófa þyngdarleysi.  Fjölmiðlar Ný köNNuN CapaCeNt á leStri blaða Enn fjölgar lesendum Fréttatímans Ný könnun Capacent á lestri blaða síðustu þrjá mánuði síðasta árs sýnir að lesendum Fréttatím- ans fjölgar á meðan færri lesa Fréttablaðið og DV. „Við erum mjög ánægð og þakklát,“ segir Valdimar Birgisson, framkvæmdastjóri Frétta- tímans, en 52% kvenna á aldrinum 25-80 ára lesa Fréttatímann á landinu öllu en 60% Fréttablaðið. Lestur á kjarnasvæði Fréttatímans, sem er höf- uðborgarsvæðið, eykst líka í öllum hópum og 69% kvenna á þessu svæði á aldrinum 25-80 ára lesa Fréttatímann. „Það dregur saman með stóru fríblöðunum tveimur á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Valdimar en í sumum markhópum er Fréttatíminn meira lesinn en Fréttablaðið. Valdimar Birgisson, fram- kvæmda- stjóri Frétta- tímans, er að vonum ánægður með nýjar lestrartölur sem sýna að Fréttatíminn er í sókn. Hittu Hófý á kynningarfundi Sikiley, Staint Tropez, Toskana, Róm og Amalfíströndin, Ítalíudraumurinn, Baskahéruðin og Búdapest Skoðaðu ferðirnar á bændaferðir.is Sími 570-2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Opið kl. 8:30-16:00, virka daga Næsta vika: Kíktu í kaffi til Hófýar hjá Bændaferðum, 21. - 25. janúar, kl. 10 til 16. Hittu einn vinsælasta fararstjóra Bændaferða Hófý okkar, Hólmfríður Bjarnadóttir, er einn vinsælasti fararstjóri Bændaferða. Hittu Hófý í næstu viku. Spyrðu hana um Sikiley, Saint-Tropez, Toskana, Róm og Amalfí- ströndina, Ítalíudrauminn, Baskahéruðin og Búdapest. Ferðaskrifstofa allra landsmanna cw130058_ferðaþjónusta bænda_bændaferðir_kynning_hófý_auglblada2x15_18012013_END.indd 1 17.1.2013 16:41:29 Smurostar við öll tækifæri ms.is ... ný bragðtegund H VÍ TA H ÚS IÐ / S ÍA - 11 -0 50 9 Ný bragðtegund með pizzakryddi Ný viðbót í ... ... baksturinn ... ofnréinn ... brauðréinn ... súpuna eða á hrökkbrauðið ÚTSAL A ÚTSAL A Ú ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A Ú A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A lÍs en ku A PARNIR s Úlpur allt að 50% afsláttur Krakkaúlpur 40% afsláttur Útivistarjakkar allt að 60% afsláttur og eira og eira... Ekki missa af þessu Takmarkað magn! Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is 8 fréttir Helgin 18.-20. janúar 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.