Fréttatíminn - 18.01.2013, Blaðsíða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason
mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is .
Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
S
„Skynsemin ræður,“ er frægt slagorð þeirra
sem á sínum tíma óku á Trabant, ódýrum og
einföldum bílum. Þótt um óskylt mál sé að
ræða virðist skynsemin ætla að ráða hjá aðilum
vinnumarkaðarins en útlit er fyrir að kjara-
samningar haldi og gildi til loka nóvember, eins
og fram kom í samantekt Morgunblaðsins á
þriðjudaginn. Samtök atvinnulífsins koma til
móts við sjónarmið verkalýðshreyfingarinnar
með því að stytta samningstímann. Gangi þetta
eftir helst friður á vinnu-
markaði, sem er þjóðhags-
leg nauðsyn, og launþegar
fá umsamdar hækkanir um
næstu mánaðamót. Það er
hvorki í þágu launþega né
fyrirtækja að opna samn-
ingana nú.
Sum verkalýðsfélög hafa
þrýst á forystu Alþýðusam-
bands Íslands að nýta
uppsagnarákvæði kjara-
samninganna nú í janúar.
Á félagsfundi Drífanda í Vestmannaeyjum á
dögunum var til dæmis samþykkt að beina því
til forsendunefndar Alþýðusambandsins að
segja samningunum upp vegna forsendubrests.
Fundarmenn nefndu verðbólgu, verðlag, skatta-
hækkanir, svikin loforð ríkisstjórnarinnar og
augljósa getu fyrirtækja til að greiða hærri
laun. Samtök atvinnulífsins benda hins vegar á
að meginforsenda kjarasamninganna um kaup-
mátt launa hafi staðist. Aðrar forsendur hafi
brostið gagnvart báðum samningsaðilunum.
Gengi krónunnar sé mun lægra og verðbólga
meiri en miðað var við. Fjárfestingar í atvinnu-
lífinu hafi ekki aukist eins og að var stefnt og
erlent fjármagn því ekki streymt til landsins
sem hefði stuðlað að hærra gengi og minni
verðbólgu. Þá komi skattahækkanir niður á
fyrirtækjum sem séu illa undir það búin að taka
á sig þær launahækkanir sem fram undan eru.
Meiri verðbólga en reiknað var með á samn-
ingstímanum er einn helsti vandi samn-
ingsaðilanna. Það hvílir mikil ábyrgð á þeim.
Kjarasamningar mega ekki leiða til aukinnar
verðbólgu enda er það ein helsta kjarabót ís-
lenskra heimila, sem flest búa við vísitölubund-
in lán, að halda verðbólgu í skefjum. Á þessum
tímapunkti hafa Samtök atvinnulífsins varað
við frekari hækkun launa en samið hefur verið
um þann 1. febrúar enda myndi slíkt kynda
undir verðbólgu og á endanum skerða kaupmátt
en ekki auka hann.
Haldi samningarnir nú er mikilvægt að nýta
þann tíma sem gefst til nóvemberloka. Á þeim
tíma verður gengið til alþingskosninga og ný
ríkisstjórn mun taka við völdum. Plagg sem
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambands Ís-
lands gengu frá um liðna helgi kveður á um
að þegar í stað verði hafinn undirbúningur að
næstu kjarasamningum og unnið að því með
markvissum aðgerðum að halda verðbólgu í
skefjum, auk þess sem reynt verði að ná sam-
stöðu um meginþætti atvinnustefnu til að glæða
hagvöxt, skapa störf og bæta lífskjör.
Þessarar samstöðu er þörf svo samfélagið
sem heild nái að vinna sig upp úr þeim öldudal
sem það hefur verið í undanfarin ár. Þar hefur
þokast í rétta átt á sumum sviðum, síður á öðr-
um. Stöðugleiki á vinnumarkaði er meðal undir-
stöðuatriða framþróunar. Grið nú og ábyrgir
kjarasamningar í haust, í samráði ríkisstjórn
sem þá hefur tekið við völdum, beina okkur í átt
til aukinnar hagsældar. Hagsmunir aðila beggja
vegna borðsins fara saman þegar til lengri tíma
er litið. Tryggja þarf raunverulega kaupmáttar-
aukningu samhliða lágri verðbólgu.
Grið á vinnumarkaði og undirbúningur kjarasamninga í haust
„Skynsemin ræður“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Nicotinell
með 15%
afslætti
í janúar
Við hlustum og ráðleggjum þér
15%
afslátt
ur af ö
llum
Nicotin
ell vöru
m
í janúa
r
Allar tegundir, allir styrkleikar
og allar pakkningastærðir.
Allar tegundir, allir styrkleikar
og allar pakkningastærðir.
Höfuðborgar-
svæðið
Austurver
Domus Medica
Eiðistorg
Fjörður
Glæsibær
Hamraborg
JL-húsið
Kringlan
Landsbyggðin
Glerártorg Akureyri
Hrísalundur Akureyri
Dalvík
Hella
Hveragerði
Hvolsvöllur
Keflavík
Selfoss
Vestmannaeyjar
Þorlákshöfn
Atvinna – Starfsmenn í þjónustumiðstöð
Grindavíkurbær óskar eftir tveimur starfsmönnum í þjónustumiðstöð. Leitað er að metnaðarfullum og
traustum einstaklingum sem hafa áhuga á ölbreyttum verkefnum. Um framtíðarstörf er að ræða:
1. UMSJÓNARMAÐUR FASTEIGNA
GRINDAVÍKURBÆJAR:
2. UMSJÓNARMAÐUR GRÆNNA- OG
OPINNA SVÆÐA
Verksvið og ábyrgð
• Umsjónarmaður fasteigna
Grindavíkurbæjar.
• Áætlunargerð og skipulagning.
• Stýrir verkum iðnaðarmanna, verkamanna
og verktaka við viðhald fasteigna.
• Ýmis viðhaldsvinna innan stofnana
bæjarins.
• Dagleg innkaup tengd viðhaldsvinnu.
• Bakvaktir skv. bakvaktarkerfi
Þjónustumiðstöðvar.
• Öll tilfallandi störf í Þjónustumiðstöð, m.a.
afleysingar á þjónustubifreið, snjómokstur o.fl.
Hæfniskröfur
• Sveinspróf, helst í húsasmíði, eða a.m.k. 5
ára starfsreynsla frá sambærilegum
verkefnum sem nýst getur í starfi.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í
vinnubrögðum.
• Bílpróf og vinnuvélaréttindi.
• Rík þjónustulund við íbúa bæjarins.
• Lipurð í mannlegum samskipum.
Verksvið og ábyrgð
• Umsjónarmaður grænna- og opinna
svæða.
• Yfirmaður Vinnuskóla.
• Áætlunargerð og skipulagning.
• Viðhald með götugögnum.
• Umsjón með efnislosun og sorphirðu í
bæjarlandinu auk ýmissar þjónustu við
bæjarbúa vegna þessara verkefna.
• Bakvaktir skv. bakvaktarkerfi
Þjónustumiðstöðvar.
• Öll tilfallandi störf í þjónustumiðstöð,
m.a. afleysingar á þjónustubifreið,
snjómokstur o..
Hæfniskröfur
• Starfsreynsla frá sambærilegum
verkefnum.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í
vinnubrögðum
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Bílpróf og vinnuvélaréttindi.
• Rík þjónustulund við íbúa bæjarins.
• Lipurð í mannlegum samskipum.
Launakjör beggja starfa eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags
Suðurnesja. Umsóknareyðublöð fyrir störfin skal nálgast á heimasíðu
Grindavíkurbæjar: http://www.grindavik.is/gogn/2011/umsoknstarfnytt.pdf.
fyrir bæði störfin er til og með 4. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir byggingafulltrúi í síma 420 1109.
Senda skal umsóknir til Sigmars B. Árnasonar byggingafulltrúa á bygg@grindavik.is, eða skila í afgreiðslu
Grindavíkurbæjar Víkurbraut 62, eða senda á póstfangið:
Grindavíkurbær
„Starfsmenn í þjónustumiðstöð“
Víkurbraut 62
240 Grindavík
Jafnræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust
14 viðhorf Helgin 18.-20. janúar 2013