Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 32

Fréttatíminn - 18.01.2013, Side 32
32 heilsa Helgin 18.-20. janúar 2013  Heilbrigði Þurfum að minnka saltmagn í mat Karlar borða þriðj- ungi of mikið salt Fjallagrös og FíFlarót Fæst í heilsubúðum og apótekum www.annarosa.is Fjallagrös og fíflarót hafa frá ómunatíð verið notuð til að hreinsa meltinguna en tinktúran er einnig sérstaklega góð gegn uppþembu og vindgangi. Ljósið, Langholtsvegi 43, 104 Rvk. ljosid@ljosid.is Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda Ný námskeið að hefjast • Fyrir karlmenn sem greinst hafa með krabbamein • Fyrir konur sem greinst hafa með krabbamein • Aðstandendanámskeið fyrir börn • Aðstandendanámskeið fyrir fullorðna Nánari upplýsingar í síma 561 3770 eða 695 6636 og á www.ljosid.is – Lifið heil www.lyfja.is ÍS LE N S K A /S IA .I S /L Y F 6 2 4 1 9 1 2 /1 2 Gildir út janúar. Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur af Nicorette QuickMist munnholsúða 15% afsláttur af ölluNicorette fruitmint Áhugasamir ha samband í síma 568 3868 eða sendið póst á matarkn@matarkn.is www.matarkn.is Næsta byrjendanámskeið hefst 28. janúar. Örfá sæti laus á „Fráhald í forgang“ framhaldsnámskeið. Glímir þú við stjórnleysi í áti og þyngd! Vilt þú raunverulegan langtíma árangur! Esther Helga Guðmundsdóttir M.Sc. Síðumúla 6 108 Reykjavík Karlar borða þriðjungi of mikið salt en konur 8 prósentum of mikið samkvæmt upplýsingum frá landlæknisembættinu. Við borðum hins vegar margfalt meira salt en við höfum raunverulega þörf fyrir. Langmesta magnið kemur úr tilbúnum matvælum. Þ rátt fyrir að saltneysla hafi minnkað um 5 prósent frá árinu 2002 borðum við enn of mikið salt. Þetta sýna niður- stöður landskönnunar á mataræði meðal fullorðinna sem fram fór 2010-2011 og kemur fram á vef landlæknisembættisins. Með því að minnka saltneyslu má draga úr hækkun blóðþrýst- ings, en háþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æða- sjúkdóma. Mest eru áhrifin hjá þeim sem eru með of háan blóð- þrýsting og hjá þeim sem eru yfir kjörþyngd en einnig má draga úr þeirri blóðþrýstingshækkun sem yfirleitt fylgir hækkandi aldri. Einnig eru líkur á því að mikil saltneysla valdi aukinni hættu á magakrabbameini. Meðalneysla karla á salti er að minnst kosti 9,5 g og kvenna 6,5 g á dag en samkvæmt ráðlegg- ingum ættu karlar ekki að borða meira en 7 g og konur 6. Þriðj- ungur kvenna neytir salts innan þeirra marka. Dagsþörfin á salti er hins vegar ekki meiri en 1,5 g. Mæling á neyslu miðast við salt við matreiðslu samkvæmt algengum uppskriftum og upp- gefið magn í tilbúnum réttum. Ekki er tekið tillit til þess salts sem hugsanlega er stráð á diskinn við borðhaldið né hversu mikið er í raun saltað við matreiðslu. Því er eiginleg neysla í raun vanmetin. Niðurstöður rannsókna á þvagi barna renna stoðum undir það. Í niðurstöðum landskönnunar á mataræði frá árinu 2002 var raun- neysla á salti vanmetin um nær 2 grömm á dag. Um 75 prósent af því salti sem við neytum salti kemur úr tilbúnum matvælum. Það kemur að stærstum hluta úr kjötvörum (19%), brauðum (13%), ostum (7%), sósum og súpum (6%). Vönduð matvælaframleiðsla, þar sem saltnotkun er stillt í hóf, er því mikilvæg forsenda þess að hægt sé að minnka saltneyslu þjóðarinnar. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Ráð til að draga úr saltneyslu Velja lítið unnin matvæli – tilbúnir réttir, pakkasúpur og -sósur eru yfirleitt saltrík. Takmarka notkun salts við matar- gerð og borðhald – fjöldi annarra krydda getur kitlað bragðlaukana, til dæmis ýmis jurtakrydd. Vert er að taka það fram að tegund salts skiptir ekki máli, NaCl úr hvaða salti sem er getur hækkað blóðþrýsting. Minnka smátt og smátt saltnotkun og venja bragðlaukana við minna salt, en það er hægt að gera án þess að það komi niður á bragðupplifun. Lesa á umbúðir og vanda valið við innkaupin. Vara telst saltrík ef það eru meira en 1,25 g salt (meira en 0,5 g natríum) í 100 grömmum. Þrír fjórðu hlutar af saltinu sem við neytum kemur úr tilbúnum matvælum á borð við pítsu. Draga má úr saltneyslu með því að elda sjálfur og takmarka saltmagnið sem notað er í matreiðsluna. Ljósmynd/Getty Frá natríum yfir í salt Á umbúðum matvæla er oft gefið upp magn natríums en ekki matarsalts, en ráðleggingar um saltneyslu eru gefnar í grömmum salts. Til að umreikna magn af natríum yfir í magn af salti er marg- faldað með 2,5. Ef það eru til dæmis 500 mg af natríum í 100 grömmum af rúg- brauði samsvarar það 1250 mg eða 1,25 g af salti í 100 g af rúgbrauði. Þrátt fyrir að saltneysla hafi minnkað um 5 prósent frá árinu 2002 borðum við enn of mikið salt.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.