Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 4
Í slensk fjölskylda, sem er að flytja til Íslands frá Noregi, fær ekki leyfi frá íslenskum yfirvöldum
til að taka hundinn sinn, Rjóma, með
heim þrátt fyrir að enginn haldbær
rök séu fyrir banninu að mati eig-
endanna. Hilmar Jónsson, eigandi
hundsins, hefur sent inn stjórnsýslu-
kæru til atvinnuvegaráðuneytisins
sem fer með innflutning gæludýra.
Rjómi er tæplega tveggja ára
English Bull Terrier og er ekkert í ís-
lenskum lögum eða reglugerðum sem
bannar innflutning á tegundinni. Leyfi
fékkst árið 2004 fyrir innflutningi af
sömu tegund enda er tegundin hvergi
bönnuð í heiminum. „Við höfum átt
hann í tæp tvö ár og er hann orðinn
stór hluti af fjölskyldunni. Rjómi er
hvers manns hugljúfi og geðgóður
hundur sem lyndir vel við aðra hunda
sem og fólk,“ segir Hilmar og bendir á
að fyrir liggi skapgerðarmat á Rjóma
sem gert var af einum virtasta hunda-
þjálfara Noregs þar sem skjalfest er
hversu góður og ljúfur hundur Rjómi
er. Því var skilað inn til Matvælastofn-
unar, sem afgreiðir innflutningsleyfi
fyrir gæludýr á vegum ráðuneytisins.
Hilmar sótti um leyfið í október
síðastliðnum en fékk höfnun á grund-
velli þess að tegundin væri bönnuð.
„Þessi tegund er ekki bönnuð og hafa
þeir sem afgreiddu umsóknina því
ruglað English Bull Terrier saman við
tegundina Pit Bull Terrier, sem er á
bannlista hér sem í mörgum öðrum
löndum, en er alls óskyld,“ segir
Hilmar.
Hilmar andmælti afgreiðslunni og
í svarbréfi MAST var gripið til nýs
rökstuðnings en í fyrri synjun, nú var
stuðst við ákvæði í reglugerð sem
heimilar bann á innflytningi „annarra
hundategundir eða blendinga, sam-
kvæmt ákvörðun landbúnaðarráð-
herra í hverju tilfelli, að fenginni rök-
studdri umsögn yfirdýralæknis,“ eins
og þar segir.
Í synjun sinni hélt MAST því fram
að English Bull Terrier sé „mjög hús-
bóndaholl [tegund] og geti því orðið
hættuleg innan um ókunnuga ef hún
telur húsbónda sínum ógnað, ásamt
því að tegundin sé með sterkt veiði-
eðli sem einkum beinist að köttum og
öðrum dýrum, sem og árásarhneigð
gagnvart öðrum hundum“. Hilmar
mótmælir þessari fullyrðingu. „Þessi
ummæli dæma sig sjálf og eru án
nokkurs rökstuðnings,“ segir Hilmar.
„American Temperament Test Society
sem gerir rannsóknir á hundum gefur
English Bull Terrier mjög háa ein-
kunn hvað varðar lundarfar. Kemur
þar fram að að English Bull Terrier
sé hvorki meira né minna árásargjarn
gegn fólki en aðrar hundategundir,“
segir Hilmar.
Þorvaldur Þórðarson framkvæmda-
stjóri inn- og útflutningsskrifstofu
Matvælastofnunar segir að árið 2007
hafi lögum um innflutning dýra verið
breytt og því sé hægt að banna inn-
flutning hunda sem hætta geti stafað
af. „Við teljum að hætta geti stafað af
þessari hundategund,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Finnur fyrir andúð
vegna árásarmáls
„Ég er enginn boxari,” sagði Ásgeir Þórðar-
son, betur þekktur sem Damon Younger,
við dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur
í vikunni. Leikarinn, sem fór með hlut-
verk glæpaforingjans Bruno í myndinni
Svartur á leik, er ákærður fyrir líkamsárás.
Saksóknari segir að högg sem hann sló
kærandann hafi valdið heilaskaða.
Ásgeir neitaði sök og dró í efa að eitt
högg gæti haft þessar afleiðingar. Fyrir
liggur að sá sem fyrir högginu varð hafði
áður verið að áreita leikarann. Ásgeir sagði
að málið hefði haft slæmar afleiðingar
fyrir sig. „Ég hef þurft að sæta andúð í
samfélaginu,” er haft eftir honum í Frétta-
blaðinu.
Vilja fresta reglum sem
banna mengun
Orkuveita Reykjavíkur ætlar ekki að reisa
nýjar virkjanir á Hengilssvæðinu fyrr
en fundin er lausn á brennisteinsvetnis-
mengun. Fyrirtækið vill hins vegar að
stjórnvöld fresti því að ný reglugerð um
mengun frá virkjuninni taki gildi. Hún
á að afnema heimildir sem OR hefur
samkvæmt núgildandi reglugerð til að
láta loftmengun frá virkjuninni fara yfir
viðmiðunarmörk í allt að fimm daga að
ári. Orkuveitan segist ekki geta framfylgt
nýju reglugerðinni nema með mengunar-
varnarbúnaði. Frá þessu er sagt í Frétta-
blaðinu.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
VíðASt úrkomulAuSt og Sólríkt.
Hægur VinDur
HöfuðborgArSVæðið: Skýjað með
köFLum Og miLt.
fryStir n- og A-til.
Sólríkt.
HöfuðborgArSVæðið: LÉttSkýjað, en
SkúRiR SeinnipaRtinn.
Hægur VinDur, næturfroSt
og áfrAm Sólríkt.
HöfuðborgArSVæðið: a gOLa Og
SóL með köFLum.
Hæglátt páskaveður
Fram á páskadag og jafnvel lengur er útlit
fyrir hæglætisveður á landinu. Víðast verður
hægviðri, en þó a-strekkingur með suður-
ströndinni. Þar verða skúrir, einkum í dag
skírdag, en fara síðan minnkandi. Sólríkt
verður á landinu, heldur kólnar
á laugardag, einkum norðan-
og austantil. talsverð
dægursveifla hitans og þó
hiti komist í um 5°C sums
staðar í sólinni nær að
frysta yfir nóttina.
6
1 4
5
5
5
0 -2 -2
3
5
3 -2 -2
3
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
ágætar veðurhorfur um páska
Veðurspáin um
páskana er nokkuð góð
víðast hvar á landinu,
miðað við heimasíðu
Veðurstofu Íslands.
Björn Sævar einarsson,
veðurfræðingur,
segir við Vísi að hlýjast
verði í Reykjavík og
á Suðvesturlandi. Á
páskadag verði bjart
veður fyrir norðan og
austan.
Horfurnar eru
ágætar fyrir skíðafólk
víðast hvar. Þó gæti
orðið nokkuð hvasst
á austurlandi á
föstudaginn langa.
Rjómi er hvers
manns hugljúfi og
geðgóður hundur
sem lyndir vel
við aðra hunda
sem og fólk
stjórnsýsla Kærir synjun á innFlutningsleyFi gæludýrs sÍns
Fær ekki að flytja
hundinn með heim
Íslensk fjölskylda fékk ekki leyfi frá íslenskum yfirvöldum til að flytja hund sinn með sér heim.
Fyrst var tegundin sögð á bannlista, sem reyndist ekki rétt enda hefur leyfi áður verið veitt fyrir
innflutningi hennar. Rökstuðningur stenst ekki, að mati fjölskyldunnar, sem hefur kært úrskurðinn.
bannlisti*
Óheimilt er að flytja til lands-
ins hunda og sæði hunda af
eftirfarandi tegundum, svo og
blendinga af þeim:
1. pit Bull terrier/Staffords-
hire Bull terrier.
2. Fila Brasileiro.
3. toso inu .
4. Dogo argentino.
5. aðrar hundategundir eða
blendinga, samkvæmt
ákvörðun landbúnaðar-
ráðherra í hverju tilfelli,
að fenginni rökstuddri
umsögn yfirdýralæknis.
* Reglugerð um innflutning gælu-
dýra og hundasæðis nr. 935/2004
Rjómi er að sögn eigenda sinna hvers manns hugljúfi og hefur það verið staðfest með skapgerðarmati,. Yfirvöld á íslandi telja
hins vegar hættu stafa af honum og leyfa eigendum hans ekki að flytja hann með sér heim til Íslands. Ljósmynd/Hilmar Jónsson
4 fréttir Helgin 28. mars–1. apríl 2013