Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 16
við Sigurþór vorum litlir keypti
pabbi stóran legókafbát handa
okkur. Við vorum mjög hrifnir
af legó og dunduðum okkur við
að setja þennan flotta kafbát
saman. Síðan varð það ólán að við
misstum hann í gólfið og hann
datt í sundur í mola. Við gerðum
dauðaleit að leiðbeiningabækl-
ingnum sem fylgdi með til að
geta búið aftur til eins kafbát. En
pabbi glotti bara við örvæntingu
okkar og ráðlagði okkur að láta
leiðbeiningarnar lönd og leið. Við
skyldum búa til eitthvað nýtt úr
legóinu, eitthvað sem okkur dytti
sjálfum í hug og kæmi frá okkur.
Mér hefur alltaf fundist þetta
svolítið táknrænt, pabbi var mjög
skapandi og listrænn. Lífinu fylgir
heldur enginn leiðbeiningarbækl-
ingur. Nauðsynlegt er að geta
hugsað út fyrir kassann en ekki
aðeins byggja á fyrirframgefnum
forsendum.“ segir Hafþór.
Skrifaði ritgerð um
pabba sinn
Victor á líka margar fallegar
minningar um föður sinn. „Hann
kom oft til okkar og ég talaði mik-
ið við hann í síma. Hann kenndi
mér að spila á gítar og kenndi
mér á tölvur,“ segir
hann. Fyrir aðeins
örfáum vikum
skilaði Victor
ritgerð í íslensku-
tíma í skólanum
þar sem hann
skrifaði um föður
sinn. „Ég valdi að
skrifa um baráttuna
hans og um okkar
samband,“ segir
Victor. Kenn-
arinn var mjög
ánægður með
afraksturinn.
„Hann hrósaði
mér mikið fyrir
ritgerðina og
sagði að pabbi
hefði orðið stolt-
ur af mér ef
hann hefði
fengið
að
lesa hana,“ segir hann.
Sævar lést í Danmörku í júlí
2011. „Ég heyrði síðast í honum 7.
júlí,“ segir Sóley. „Hann hringdi
í mig og tilkynnti mér glaðlega
að hann ætti afmæli. Ég sagð-
ist auðvitað vita það og óskaði
honum til hamingju,“ segir hún.
Sævar glímdi lengi við veikindi en
sagðist þarna hafa átt góðan dag.
„Það var högg að hann færi svona
snögglega. Ég sakna hans afskap-
lega mikið,“ segir Sóley. Örfáum
vikum eftir andlátið fóru Hafþór
og Sigurþór á fund Ögmundar
Jónassonar innanríkisráðherra,
fyrir hönd allrar fjölskyldunnar,
með beiðni um að stofna rann-
sóknarnefnd til að fara yfir Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið. „Við
erum öll þakklát Ögmundi. Þar
fékk Sævar loks áheyrn,“ segir
Sóley.
Þórdís segist ekki vera reið,
þrátt fyrir allt það mótlæti sem
Sævar varð fyrir. „Mig þyrstir ein-
faldlega eftir réttlætinu og þeirri
hreinsun sem sannleikurinn er
fær um að gefa okkur öllum. Mitt
ákall er að niðurstaða nefndarinn-
ar fái að lýsa upp áframhaldandi
vinnu. Auðvitað verður það óþægi-
legt gagnvart þeim sem voru í
sterkri stöðu gagnvart þeim sem
minna máttu sín á þessum tíma,
en þannig verður það að vera. Það
er hægt að fyrirgefa ranglæti en
við megum ekki gefa afslátt af
réttlætinu, að hið sanna og rétta
fái að koma í ljós. Í því mun upp-
reisnin felast, fyrir fórnarlömb
þessa máls og á sama tíma
fyrir íslenskt réttarkerfi,“
segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
„Ekkert hjarta sé í Sævari“
Sævar Ciecielski sat í
615 daga í einangrun af
þeim 1.533 dögum sem
hann var í gæsluvarð
haldi. Kristján Viðar Við
arsson var í einangrun í
503 daga. Tryggvi Rúnar
Leifsson var 655 daga í
einangrun en 1522 daga
í gæsluvarðhaldi. Albert
Klahn Skaftason var
vistaður í einangrun alla
þá 87 daga sem hann
sat í gæsluvarðhaldi.
Guðjón Skarphéðinsson
var í einangrun í 420
daga en sat í 1202 daga
í gærluvarðhaldi. Erla
Bolladóttir sat 239 daga
í gæsluvarðhaldi og var
þá aðskilin frá nýfæddri
dóttur sinni. Þau voru
öll um tvítugt nema
Guðjón Skarphéðinsson
sem var 32 ára.
Fjarvistarsönnun ekki könnuð
Í báðum þessum málum
virðist sem rannsak
endur hafi ekki aðeins
verið sannfærðir um
sekt Sævars frá byrjun,
heldur hafi þeir einnig
haft rörsýn á aðkomu
hans því ljóst er að
ekki var kannað hvort
hann segði satt frá
þegar hann sagðist hafa
verið í Hveragerði og hjá
vinkonu sinni í Kópavogi
kvöldið sem Guðmundur
Einarsson hvarf.
„Ekkert hjarta sé í Sævari“
12. júlí 1976 bókaði
fangavörður eftirfarandi
í dagbók Síðumúlafang
elsis: „Sævari var boðið
lyf að venju en neitaði
í tvígang að taka það „Í
votta viðurvist tjáði hann
okkur, að um væri að
kenna hjartveiki sinni. En
áður hefur komið fram,
að mati læknis, að ekkert
sé að hjartanu í honum.
Sævar fær engin lyf þar
til annað verður ákveðið
af lækni. Hinsvegar er
það mitt mat, og jafnvel
annara, (svo!) að ekkert
hjarta sé í Sævari Marinó
Ciesielski.“
Einangrun veldur ruglástandi
Í skýrslunni kemur
fram um áhrif langrar
einangrunarvistar:
„Löng einangrunarvist
geti valdið ruglástandi
hjá sakborningum, sem
í alvarlegum tilfellum
hafi einkenni óráðs í frá
hvarfi, með ofsóknar
kennd og ofskynjunum.
Einnig veldur einangrun
oft alvarlegum svefn
truflunum sem veikir
mótstöðu sakborninga
við yfirheyrslur og
eykur sefnæmi þeirra
og undanlátssemi. Í
flestum sakamálum þar
sem réttarspjöll hafa
átt sér stað hefur það
verið eðli yfirheyrsla,
tímasetning þeirra (t.d.
yfirheyrslur seint að
kvöldi eða að nóttu til)
og lengd, sem hefur
valdið áhyggjum frekar
en löng einangrunarvist.
Löng einangrunarvist
er líkleg til að ýkja
veikleika hinna grunuðu,
valda viðbótarþrýstingi
og auka verulega hættu
á óáreiðanlegum fram
burðum.”
Þórdís og Hafþór ásamt þeim Sóleyju og Victori settust niður með blaðamanni. Öll þekkja
þau baráttuna sem hann tileinkaði líf sitt, og þann toll sem hún tók af honum. Ljósmynd/Hari
Fermingarmyndin af
Sævari. Hann fermdist
að kaþólskum sið. Victor
er einnig kaþólskur og
fermist síðar á þessu ári.
Lilja fermdist um liðna
helgi í Dómkirkjunni.
MYND/ÚR EINKASAFNI
TEMPL ARASUND 3 … 101 RE YKJAVÍK … SÍMI: 571 1822 … W W W.BERGSSON.IS
OP I Ð UM PÁ S K A N A
B R Ö N S O G L É T T I R R É T T I R Á S É R S T Ö K U M PÁ S K A M AT S E Ð L I .
H Ö F U M O P I Ð K L . 9 -17 A L L A PÁ S K A H E L G I N A F R A M A Ð Þ R I Ð J U D E G I .
G L E Ð I L E G A H ÁT Í Ð
…
…
…
16 viðtal Helgin 28. mars1. apríl 2013