Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 62
Theódór Helgi Kristinsson, eða Teddi eins og hann er alltaf kallaður, er blindur gutti á tíunda ári. Hann er mikill aðdáandi Steinda jr. og fyrir milligöngu góðs fólks fékk Teddi símanúmer Steinda og sló á þráðinn til grínarans sem tók honum að sjálfsögðu vel. Teddi og Steindi ræddu hin ýmsu mál vítt og breitt í um tíu mínútur og Teddi notaði meðal annars tækifærið til þess að upplýsa Steinda um að hann gerði fátt annað þessa dagana en að hlusta á lögin hans Steinda sem honum þykja mjög skemmtileg. Kristinn Theódórsson, faðir Tedda, sagði frá þessum ánægjulega símafundi á Facebook. „Brosti út að eyrum og masaði út í eitt. Virkilega skemmtilegt. Mjög almennilegur hann Steindi.“ Sagt er frá Tedda í bókinni Gleðigjafar sem kom út fyrir jólin en í henni deila foreldrar reynslu sinni af því að eiga börn sem eru sérstök á einhvern hátt, með alvarlega sjúk- dóma eða fötlun. Teddi bræddi síðan hjörtu allra sem sáu hann í Kastljósi í nóvember í fyrra þar sem hann var meðal annars heimsóttur í Rimaskóla þar sem hann stundar nám. Teddi er hugmyndaríkur og fyndinn strákur þannig að ætla má að Steindi hafi ekki síður skemmt sér yfir símtalinu en einlægi aðdáandinn sem fékk loks að heyra í hetjunni sinni. Ég límdi einu sinni egg á höfuð Ragnars Braga- sonar leikstjóra  Hallgerður Hallgrímsdóttir dæmir í ljósmyndakeppni íslands a uðvitað skiptir reynsla máli en það er hægt að komast ansi langt á drifkrafti og ástríðu“ segir Hall- gerður Hallgrímsdóttir. Í gegn um tíðina hefur hún tekið þátt í ýmsum skemmtileg- um myndatökum. „Ég límdi einu sinni egg á höfuð Ragnars Bragasonar leikstjóra, þá var ég stílisti en Vera Pálsdóttir var ljós- myndarinn. Það var fyndið og kom mjög vel út, í minningunni að minnsta kosti, en eggið átti að tákna frjósemi huga hans.“ Hallgerður segir krefjandi en áhugavert að taka þátt í að stjórna Ljósmyndakeppni Íslands, og að þau Páll Stefánsson, sam- stjórnandi hennar, hafi yfirleitt verið sam- mála. „Við höfum mjög mislanga reynslu í faginu og erum ólíkir ljósmyndarar en okkur og gestadómurunum var alltaf ljóst hver ætti að fara heim og hver ætti skilið að sigra hvert verkefni.” Það kom Hall- gerði og dómurunum í Ljósmyndakeppni Íslands mjög á óvart hve jöfn keppnin var, enda mikið hæfileikafólk sem komst í gegn. „Miðað við alla pressuna sem sett var á keppendurna í þáttunum þá stóðu þau sig almennt vel, en þau eru mjög ólíkir ljósmyndarar og því hentuðu verkefnin þeim misvel“, segir Hallgerður. Hún kynntist fyrst ljósmyndun í Listahá- skóla Íslands, þar sem hún var nemi í fatahönnun. Eftir útskrift frá Listahá- skólanum ákvað Hallgerður halda utan og lærði listræna ljósmyndun við Glasgow School of Art. „Síðan þá hef ég verið að reyna að koma mér áfram sem myndlistar- maður. Ég er fyrst og fremst myndlistar- maður sem vinn með miðilinn ljósmyndun. Formið fylgir síðan konseptinu,“ segir Hallgerður. Notkun á myndavélum hefur verið á undanhaldi síðustu misseri enda margir komnir með myndavélasíma sem auðvelt er að grípa í við hvert tækifæri. Hallgerður telur þó ólíklegt að myndavélin bíði lægri hlut fyrir spjaldtölvunum og símunum „Eins og einhver sagði þá dó stiginn ekki út þótt lyftan hefði verið fundin upp. Ég vona að þátturinn veiti innsýn í ferli ljós- myndarans og að fólk verði örlítið með- vitaðra um ljósmyndir. Ljósmyndir eru nefnilega ekki sannleikur heldur túlkun ljósmyndarans á viðfangsefninu“ segir Hallgerður.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Við styrkjum ungt fólk sem vill gera sniðuga hluti ungmennaskipti útgáfa fundir hátíðir stuttmyndir námskeið ... og allt mögulegt annað • • • Umsóknarfrestur 1. maí. Námskeið í að sækja um 6. apríl Kíktu á www.euf.is ef þú ert 13-30 ára Ljósmyndir eru ekki sannleikur Hallgerður er annar þáttastjórn- enda Ljósmyndakeppni Íslands sem hefur göngu sína á Skjá einum nú í lok mars. Hún þreytir nú frum- raun sína í sjónvarpi ásamt ljós- myndaranum Páli Stefánssyni. Hallgerður segir að ljósmyndararnir í keppninni séu afar ólíkir og því hafi verk- efnin hentað þeim misvel. Ljósmynd/Hari Þetta er bara rosalega fínt og mér líst mjög vel á þetta.  Fjömiðlar Hrund Þórsdóttir Úr tímaritum í sjónvarpið Kjánahrollurinn kemur kannski með tímanum Blaðakonan og heimshornaflakkar- inn Hrund Þórsdóttir er nýtt andlit á skjánum en hún gekk í vikunni til liðs við fréttastofu Stöðvar 2. „Þetta er bara rosalega fínt og mér líst mjög vel á þetta. Þetta er skemmtilegur vinnu- staður og mikið af góðu fólki,“ sagði Hrund þegar Fréttatíminn náði tali af henni þar sem hún var á hlaupum í fréttaöflun á sínum þriðja vinnudegi á fréttastofunni. Hrund hóf blaðamennskuferilinn á Morgunblaðinu. Hún færði sig síðan yfir á Vikuna og gerði síðan stuttan stans á Nýju lífi áður en hún tók við ritstjórn tímaritsins Mannlífs 2011. Hrund er einnig efnilegur rithöfundur en árið 2007 hlaut hún íslensku barna- bókaverðlaunin fyrir bók sína Loforðið. „Ég er náttúrlega komin með ágætis reynslu af alls konar prentmiðlum en þarf kannski aðeins að koma mér inn í nýjan hugsunarhátt. Þjappa hlutunum svolítið saman og setja þá fram á annan hátt,“ segir Hrund um taktinn í sjón- varpsfréttunum sem er allt öðruvísi en á tímaritunum. Hrund er nýkomi heim frá Egypta- landi en hún kann vel við sig á faralds- fæti og fór í fyrra í tæplega fjögurra mánaða heimsreisu. „Ég kalla þetta að fara hringinn en við tókum hringinn í kringum hnöttinn og fórum til að mig minnir sextán landa í fimm heims- álfum.“ Hrund sér ekki fram á miklar reisur á næstunni þar sem hún sér fram á spennandi tíma á Stöð 2. „Þetta leggst mjög vel í mig en ég er náttúrlega bara hérna á þriðja degi,“ segir Hrund sem finnur ekki fyrir neinni feimni við tökuvélina. „Nei, nei. Ég held að það þýði nú lítið. Kjánahrollurinn kemur kannski með tímanum en ég veit það ekki.“ -þþ Hrund Þórsdóttir hefur heldur betur söðlað um og er komin úr pappírs- blaðamennsku í sjónvarpsfréttir. Gleðigjafi spjallaði við Steinda Teddi á spjalli við Steindann sinn þar sem farið var vandlega yfir málin. Steindi jr. tók erindi Tedda af stakri ljúf- mennsku og upplýsti drenginn um hvað sé framundan hjá Steindanum. 62 dægurmál Helgin 28. mars–1. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.