Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 36
36 páskamatur Helgin 28. mars–1. apríl 2013
Svei mér þá, ég held ég hafi enn
ekki bragðað hráfæðisköku sem
ég er ekki ánægður með.
Páskamatur albert eldar
Hráfæðiskökur um páskana
Súkkulaðimyntuterta og Sveskju- og döðluterta
a lbert Eiríksson hefur haldið úti matarbloggi á vefsíðunni alberteldar.
com. Hann segist ætla að njóta
þess að vera til um páskana og
borða góðan mat. „Við höfum
yfirleitt verið á faraldsfæti um
páskana en ætlum að vera heima
núna. Planið er að gera eitthvað
sem við höfum ætlað að gera í
mörg ár, að taka til í geymslunni.“
Albert segist vera búinn að safna
saman nokkrum uppskriftum
að hráfæðistertum og ýmsum
uppskriftum sem hann á eftir
að prófa. „Það kæmi mér ekki
á óvart ef ég myndi prófa svona
eins og eina á dag yfir páskana.
Það er líka alltaf gaman að eiga
kaffimeðlæti þegar einhver kem-
ur við í kaffi.“ Við fengum hann
til að deila með okkur tveimur
kökum sem hann ætlar að prófa
um helgina.
Það er afar einfalt og fljótlegt
að útbúa hrákökur og mat-
vinnsluvélin leikur stórt hlutverk.
„Svei mér þá, ég held ég hafi
enn ekki bragðað hráfæðisköku
sem ég er ekki ánægður með. En
það er lykilatriði að eiga góða
matvinnsluvél, hún leikur stórt
hlutverk í þessum uppskriftum, “
segir Albert.
Súkkulaðimyntuterta Botn
1 bolli möndlur
3/4 bolli döðlur
1/4 bolli kakóduft
1/4 bolli kakó nibbur
1 tsk vanilludropar
smá vatn
Setjið allt í mat-
vinnsluvél og maukið
vel. Setjið í form með
lausum botni, þjappið
og maukið.
Fylling:
2 1/2 bolli kasjúhnetur
1/2 bolli mynta, helst
fersk
3/4 bolli vatn
1/3 bolli agave
1 tsk vanilludropar
smá himalyasalt
3 msk brætt kakósmjör
2 msk brædd kókosolía
Setjið allt í mat-
vinnsluvél og maukið
vel. Setjið yfir fyll-
inguna, geymið í ísskáp
í 2-4 klst. Skreytið með
jarðarberjum, ferskri
myntu, kakónibbum
eða kakódufti
Albert Eiríksson
Þegar gesti ber að garði með
stuttum fyrirvara er upplagt að
útbúa hrátertu. Albert leggur til að
það sé ekki haft hátt um það að þetta
sé hráfæði því fólk gæti hrokkið í
baklás. “Enn er til fólk sem heldur
að hráfæði sé hreinasti viðbjóður og
ekki fyrir vinnandi folk. Þessi terta er
afar ljúffeng og auðvelt að búa hana
til, tekur innan við tíu mínútur.“
Sveskju- og döðluterta Sveskju- og
döðluterta
1 bolli döðlur
1 bolli sveskjur
1 bolli valhnetur
1 banani
1 bolli kókosmjöl
safi úr 1/3 sítrónu
1/2 tsk vanilludropar –
eða 1 tsk vanillusykur
1/3 tsk salt
2 msk kókosolía –
fljótandi
1 msk góð matarolía
1 msk vatn
Saxið frekar smátt
döðlur, sveskjur,
valhnetur og banana.
Bætið út í kókosmjöli
sítrónusafa, vanillu og
salti. Blandið saman
kókosolíu, matarolíu
og vatni og setjið út í og
hrærið vel saman. Látið
í form, þjappið vel og
kælið.
Krem
150 g gott dökkt
súkkulaði
1 msk góð matarolía
Bræðið saman við
lágan hita og hellið yfir
kökuna
Ómissandi
Hrein íslensk náttúruafurð
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
6
0
0
7
Brúðkaupsblað
Fallegt sérblað um brúðkaup fylgir Fréttatímanum 19. apríl.
Í blaðinu verður fjallað á skemmtilegan og áhugaverðan máta
um allt mögulegt tengt brúðkaupinu.
Hafið samband við Kristi Jo Jóhannsdóttir í síma 531 3307 eða sendið
póst á netfangið kristijo@frettatiminn.is og fáið nánari upplýsingar.
19.
Apríl
Íslandskex er bragðgott kex sem hentar í öll mál fyrir þig.
NÝTTKEX
fæst ínæstuverslun