Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 34

Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 34
Vegna aukinna umsvifa leitum við að starfsfólki á auglýsingadeild Fréttatímans. Við bjóðum spennandi starfsumhverfi á skemmtilegum vinnustað. Ef þú ert með metnað og brennandi áhuga á fjölmiðlun þá sendu póst á valdimar@frettatiminn.is Upplýsingar ekki veittar í síma. Starfsfólk á auglýsingadeild Súkkulaðiorgía F Fáir frídagar eru kærkomnari en páska fríið. Það er lengsta frí ársins, að frá­ töldu sumarfríinu, fimm dagar. Jólafríið rokkar meira, allt frá útvíkkaðri helgi til fimm daga. Páskafríið er líka á góðum tíma ársins. Dimmir mánuðir, janúar og febrúar, eru að baki, þegar allra veðra er von, en þegar líður að páskum er vorið fram undan. Þeir eru að vísu fremur snemma þetta árið. Páskadag ber ætíð upp á fyrsta sunnudag eftir fyrsta tungl eftir jafndægur á vori. Páskarnir geta því verið frá 22. mars til 25. apríl. Vegna þess hve snemma þeir eru núna getur auðvit­ að brugðið til beggja vona með veðrið en líkur eru þó á því að krókusar, túlipanar og páskaliljur treysti sér til þess að stinga nefi úr mold innan tíðar. Sól er komin það hátt á loft. Þessir langþráðu vorboðar reyndu að sönnu fyrir sér í febrúar, létu sunnanþey blekkja sig, en Vetur kon­ ungur minnti á veldi sitt með frosti og snjókomu. Laukarnir drógu sig því í hlé, biðu betri tíma, enda er mars skilgreind­ ur sem vetrarmánuður norður hér. Páskarnir eru mesta hátíð kristinna manna, upprisuhátíð, hátíð hátíðanna. Hér í norrænu Barbaríi eru menn þó mátulega hátíðlegir þótt margir sæki messu á páskadagsmorgni, láti sig hafa það að rísa úr rekkju fyrir allar aldir. Aðr­ ir slaka á alla þessa morgna, hvíla lúin bein og njóta samvista fjölskyldunnar. Sumir fara á skíði, aðrir í sumarbústaði en flestir njóta frídaganna heima. Allir – eða næstum allir – splæsa í páskaegg, ef ekki fyrir sjálfa sig þá handa börnum og barnabörnum. Páskadagur er sannkölluð súkkulaðiorgía. Þann dag troða menn meira í sig af súkkulaði en alla aðra daga ársins. Það má – og óþarfi er að hafa sam­ viskubit út af því. Minn betri helmingur tók upp þann sið þegar börn okkar voru lítil að koma upp smálegum ratleik á páskadags­ morgni. Þau þurftu því að hafa svolítið fyrir því að finna góðgætið. Þeim þótti þetta skemmtilegt, fengu ábendingar sem leiddu þau á réttan stað þar sem páskaeggið var að finna. Gott ef ung­ viðinu þótti ekki enn fýsilegra að brjóta eggið og borða eftir að hafa haft svolítið fyrir því að finna það. Hún hefur viðhald­ ið sama sið gagnvart barnabörnunum, sem stundum heimsækja afa og ömmu í sumarhúsið um páskana. Þau kunna líka vel að meta ratleikinn hjá ömmu. Afinn ligg­ ur í sófanum á meðan, eins og afar mega gera á páskadags­ morgni, en sá gamli fær kannski að narta í bita úr hverju eggi og les málshætt­ ina. Í fyrra sagði frá því í fréttum að Íslend­ ingar úðuðu í sig vel á aðra milljón páska­ eggja um hverja páska. Það er vel að verki staðið hjá 320 þúsund manna þjóð. Þar kom fram að stærsti páskaeggjafram­ leiðandi landsins, Nói Síríus, framleiddi um 640 þúsund egg, tvö á mann. Freyja sendi frá sér um 400 þúsund egg, meiri­ hlutinn var smáegg en um 100 þúsund stór. Helgi í Góu, sá frægi baráttumaður fyrir réttindum aldraðra, sagði í sömu frétt að hann væri ekkert í hænueggj­ unum, það tæki því ekki. Hins vegar sendi hann frá sér um 100­120 þúsund stór egg. Með hænueggjunum átti Helgi við litlu súkkulaðieggin sem menn kaupa í eggjabökkum eins og hver önnur egg til heimilisbrúks. Þau koma snemma í hillur stórmarkaðanna, mörgum vikum fyrir páska, standa í stæðum og freista þeirra sem þangað fara í þeim góða ásetningi að kaupa brauð, fisk, mjólk og grænmeti – og gera það sjálfsagt en þegar heim er komið finnast litskrúðug egg í innkaupa­ pokunum, innan um þessi sem hænurnar skila frá sér. Ég skil vel þessa freistingu enda hef ég splæst í nokkra bakka undanfarnar vikur. Þetta er skemmtilegur eftirréttur sem hentar ungum sem öldnum, sex súkkulaði egg í bakka í öllum regnbogans litum – og meira að segja málsháttur í þeim öllum. Auðvitað ber að vara sig á þessum freistingum en syndin er lævís og lipur – og holdið veikt. Maður getur líka afsakað sig með því að hvert egg sé vart nema munnbiti. Finni menn alvarlega fyrir sektar­ kennd eftir súkkulaðiátið, fyrir og um páskana, og óttist að sætmetið setjist á læri, rass og maga, er ráð að hysja upp um sig buxurnar og fara út að ganga. Skírdagur er prýðilegur til útiveru og ekki síður föstudagurinn langi, ef ná þarf af sér litlu eggjunum, þessum í bökkunum sem étin voru í aðdraganda hátíðarinnar miklu. Meira þarf sjálfsagt til eftir páskadaginn sjálfan þegar lagt er til atlögu við stóru eggin með öllu inn­ volsinu. Fullorðnir gætu þurft að huga að því þegar börnin lognast út af eftir að hafa sporðrennt báðum helmingum risa­ eggjanna og því girnilegasta sem í þeim leynist. Þá verður stundum eftir ýmislegt gúmmilaði, hlaup, brjóstsykursmolar og jafnvel karamellur sem börnin fúlsa við í ofgnótt súkkulaðisins. Hinir eldri verða bara að gæta að því að slíta ekki úr sér silfurfyllingar tannanna, leggi þeir í karamellurnar. Þetta óhóf geta menn leyft sér núna um páskana af því að föstunni er lokið, að minnsta kosti segir almanakið okkur það. Það er svo sem ekki gefið að menn hafi tekið hana alvarlega, frekar en annað hér í fyrrnefndu Barbaríi – hafi jafnvel úðað í sig smáeggjum úr súkkulaði á þeirri sömu föstu – en það verður þá að hafa það. Gleðilega páska! Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Fermingarguðsþjónusta á skírdag 28. mars kl. 14 Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari. Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista. Helgistund, föstudaginn langa 29. mars kl. 17 Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari. Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir sönginn undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista. Hátíðarguðsþjónusta á páskadagsmorgni 31. mars kl. 9 Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari. Gunnar Gunnarsson, organisti kirkjunnar, og Sigurður Flosason saxófónleikari láta tónlistina hljóma ásamt Sönghópi Fríkirkjunnar. Nýstofnaður barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Veitingar í safnaðarheimili, í boði kvenfélagsins, eftir guðsþjónustuna. Verið hjartanlega velkomin. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir 1. sæti Reykjavíkurkjördæmi norður Saman getum við knúið fram afdráttarlaust uppgjör við hrunið facebook.com/frettatiminn Vertu vinur okkar á og þú getur átt von á glaðningi. ölufólk á augl Si i 34 viðhorf Helgin 28. mars–1. apríl 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.