Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 6
Í fyrsta sinn frá hruni eru færri karlar en konur án atvinnu, sam-kvæmt vinnumarkaðsrannsókn
Hagstofunnar frá febrúar. Fyrir hrun
voru hins vegar fleiri konur atvinnu-
lausar en karlar og er kynjahlutfall
atvinnulausra nú því orðið eins og það
var fyrir hrun.
Að sögn Karls Sigurðssonar, sér-
fræðings hjá Vinnumálastofnun, er
helsta skýringin á þessum viðsnúningi
sú að uppgangur hefur orðið í bygg-
ingariðnaði þar sem karlmenn eru í
meirihluta. Að sama skapi hefur verið
aðhald í opinbera geiranum og heil-
brigðiskerfinu sem hefur haft áhrif á
atvinnuleysi kvenna.
Samkvæmt tölum Hagstofnunar um
fjölda starfandi kvenna eftir atvinnu-
greinum sést að konum hefur einnig
fækkað í landbúnaði, iðnaði og mann-
virkjagerð. Aukning hefur þó orðið á
fjölda starfandi kvenna í verslun, fisk-
iðnaði og í hótel- og veitingastörfum.
Heildaratvinnuleysi í febrúar var
4,7 prósent sem er 2,6 prósentum
lægra en fyrir ári síðan en þá mældist
atvinnuleysi 7,3 prósent. ,,Það hlýtur
að teljast alveg ágætis staða miðað við
það sem verið hefur og líka miðað við
önnur lönd” segir Karl og bendir á að
venjan hafi verið sú að atvinnuleysi
haldist svipað frá janúar og fram í
mars eða apríl og að þessi minnkun í
febrúar sé því óvenjuleg.
Að sögn Þorsteins Víglundssonar,
framkvæmdastjóra Samtaka atvinnu-
lífsins, er erfitt að draga miklar
ályktanir af því að atvinnuleysi hafi
minnkað svo mikið milli mánaða þótt
vissulega sé fagnaðarefni að það fari
minnkandi. Þorsteinn telur því full-
snemmt að fagna um of og bendir á
að það séu nú færri starfandi en fyrir
hrun. „Í venjulegu árferði mætti búast
við að um 1.500 manns bættust árlega
í hóp þeirra sem starfa á vinnumark-
aði. Því er ljóst að enn er langt í land
með að ná viðunandi jafnvægi,“ segir
Þorsteinn.
Þetta komi meðal annars fram í því
að um níu þúsund manns hafi flutt úr
landi, auk þess sem fjöldi einstaklinga
hafi sótt í nám vegna erfiðra aðstæðna
á vinnumarkaði. „Þetta er út af fyrir
sig afar jákvætt, en umtalsvert meiri
hagvöxt þarf til að skapa nægjanlega
mörg störf fyrir þennan hóp,“ segir
Þorsteinn. „Þá stefnir í að liðlega þrjú
þúsund manns muni fullnýta bótarétt
sinn á þessu ári og þar með hætta að
fá greiddar atvinnuleysisbætur,“ segir
hann.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Vinnumarkaðsmál Viðsnúningur Í atVinnuleysi eftir kyni
Uppgangur í byggingariðn-
aði fjölgar störfum karla
Í fyrsta sinn frá hruni eru færri karlar en konur án atvinnu og atvinnuleysi er komið undir fimm
prósent. Sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun segir að skýringin sé uppgangur í byggingariðnaði.
Samtök atvinnulífsins segja að atvinnuleysistölur skekkist vegna þess hve margir hafi flutt úr
landi og séu farnir í nám.
Lækkun
milli ára
Í febrúar voru 4,4%
karla án atvinnu, miðað
við 7,9% í febrúar 2012.
Atvinnuleysi meðal kvenna
í febrúar var 5%, miðað við
6,6% á sama tíma fyrir ári.
Viðsnúningur hefur orðið í atvinnuleysistölum vegna uppgangs í byggingariðnaði. Í fyrsta sinn
frá hruni eru nú færri karlar en konur atvinnulausar, líkt og tíðkaðist fyrir hrun.
Þorsteinn Víglundsson
alþingi frestað eftir að samningar tókust um deilumálin
Jóhanna hætt á Alþingi
eftir 35 ára starf
Tólf þingmenn hættu störfum þegar Alþingi var
frestað í gær.
Meðal þeirra sem ætla ekki að leita endur-
kjörs í kosningunum 27. apríl eftir langan stjór-
nmálaferil eru Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, sem hefur setið 35 ár á þingi og lengst
allra kvenna í sögunni. Einnig eru í þessum hópi
meðal annars Árni Johnsen, Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, forseti Alþingis, Siv Friðleifsdóttir,
Birkir J. Jónsson, Ólöf Nordal, Atli Gíslason, Ás-
björn Óttarsson, Þuríður Backman og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir.
Eftir fleiri daga þref náðist samkomulag um að
afgreiða meðal annars lög um kísilver á Bakka
og um hlutafélag um byggingu nýs Landspít-
ala. Stjórnarskrármálið á að afgreiða með því
að breyta einungis ákvæðinu um hvernig hægt
er að breyta stjórnarskránni. Það verði hægt á
næsta kjörtímabili með bindandi þjóðaratkvæða-
greiðslu ef 40% kosningabærra manna greiða
breytingunum atkvæði.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Gísli Tryggvason
1. sæti Norðausturkjördæmi
Saman getum
við unnið að
auknu lýðræði
PÁSKATILBOÐ
Er frá Þýskalandi
www.grillbudin.is
Hannað fyrir
Ísland
ÞETTA ER AÐEINS BROT
AF ÞEIM VÖRUM SEM
ERU Á TILBOÐI
Yfir 10 ára
reynsla á
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
FULLT VERÐ
109.900
89.900
Íslandi
13,2
kw/h
Lokað skírdag
Opið laugardag til kl. 16
– fyrst og fre
mst
ódýr!
GLEÐILEGAPÁSKA!
6 fréttir Helgin 28. mars–1. apríl 2013