Fréttatíminn - 28.03.2013, Page 15
5 stjörnu FIT
Innifalið:
• Lokaðir tímar 3x í viku
• Leiðbeiningar um mataræði sem er
sérstaklega samsett til að tryggja
þátttakendum 5 stjörnu árangur
• Hvatning, fróðleikur og hollar og góðar
uppskriftir frá Ágústu Johnson
• Mælingar og vigtun fyrir og eftir
fyrir þær sem vilja
• Dekurkvöld í Blue Lagoon spa
• Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal
og opnum tímum
• Aðgangur að glæsilegri útiaðstöðu
- jarðsjávarpotti og gufuböðum
• 10% afsláttur af öllum meðferðum Blue Lagoon spa
Nýttu þér reynslu okkar og þekkingu til að ná
5 stjörnu formi. Hentar jafnt byrjendum sem vönum.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin,
tímasetningu og skráningu finnur þú á
www.hreyfing.is
Breyttu línunum og tónaðu
líkamann í sitt fegursta form
Við höfum sett saman nýtt æfingakerfi byggt á kerfi
sem hefur slegið rækilega í gegn í New York. Það
sameinar margar ólíkar styrktaræfingar sem móta
og tóna vöðva líkamans á áhrifaríkan hátt.
Æfingarnar eru rólegar, krefjandi og gerðar til að
breyta línum líkamans á kerfisbundinn hátt.
Áhersla er lögð á þægilega tónlist.
Náðu 5
stjörnu formi
Úr rannsóknarskýrslunni
arssonar. Albert Klahn Skaftason sat
87 daga í gæsluvarðhaldi. Hann var
dæmdur í eins árs fangelsi fyrir aðild
að dauða Guðmundar Einarssonar.
Ósamræmi vegna þekkingar-
leysis á málunum
„Það er mjög áberandi við fram-
burði sakborninganna í Guðmund-
ar- og Geirfinnsmálunum hversu
mikið ósamræmi var á milli þeirra
og hversu oft og mikið þau breyttu
framburði sínum. Það er greinilegt
að rannsakendurnir túlkuðu þetta
misræmi sem mótþróa og vísvit-
andi tilraunir sakborninganna til að
flækja málin," segir í skýrslu rann-
sóknanefndarinnar. „Það er eins og
rannsakendurnir hafi ekki litið á aðra
möguleika en sekt sakborninganna.
Mun líklegra er að ósamræmið hafi
stafað af þekkingarleysi sakborn-
inganna á málunum og að þeir hafi
hvergi komið þar nálægt."
Hafið yfir skynsamlegan vafa
Niðurstöður sálfræðimats
Gísla H. Guðjónssonar og
Jóns Friðriks Sigurðs-
sonar eru að það sé hafið
yfir allan skynsamlegan
vafa að framburðir fimm
ungmennanna, bæði hjá
lögreglu og fyrir dómi,
hafi verið óáreiðan-
legir en að framburður
eins þeirra, Guðjóns
Skarphéðinssonar, hafi
verið falskur. Fram kom í
sjónvarpsviðtali við Gísla
H. Guðjónsson, að lengra
væri gengið í ályktun um
framburð Guðjóns en
hinna þar sem hann hélt
nákvæmar dagbækur
meðan hann sat í gæslu-
varðhaldi og því er unnt
að styðja ályktunina betri
gögnum en hvað hina
varðar.
„Síðastliðin 30 ár hafa
margar rannsóknir
farið fram í tengslum
við falskar játningar,
sem hafa sýnt fram á
að falskar játningar eru
mun algengari en lengi
var talið og varpað ljósi
á hvernig þær koma til.
Þegar DNA rannsóknir
voru kynntar til sögunnar
á níunda áratugnum varð
auðveldara að komast
að sakleysi þeirra sem
sögðust hafa gefið falska
játningu, en þann 26.
febrúar 2013 höfðu 302
dómar verið ógiltir vegna
DNA prófa í Bandaríkj-
unum frá árinu 1989.
Vísindagrunnurinn á bak
við falskar játningar nú
orðinn töluverður og
hefur hann haft áhrif
á dómaframkvæmd á
alþjóðavísu"
Erfitt að draga framburð til baka
„Þegar litið er á hvernig
staðið var að gæsluvarð-
haldi sakborninganna í
þessum tveimur málum
er greinilegt að það hefur
verið mjög erfitt fyrir þau
að draga framburð sinn til
baka við yfirheyrslur hjá
lögreglu eða fyrir dómi og
þegar þau drógu til baka
var hvorki tekið mark á
þeim hjá rannsakendum
né fyrir dómi"
Óáreiðanlegir framburðir
„Ósamræmið á milli
sakborninganna í þessum
tveimur málum, sem voru
stöðugt að breyta fram-
burði sínum, og skortur á
áþreifanlegum stað-
festingum, s.s. að aldrei
var unnt að finna út hvar
lík mannanna tveggja eru
niðurkomin, styrkir mat
höfunda þessa kafla á því
að framburðir sakborn-
inganna í Guðmundar- og
Geirfinnsmálunum voru
fullkomlega óáreiðanlegir.
viðtal 15 Helgin 28. mars-1. apríl 2013