Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 30
Háskólagáttin á Bifröst
veitir aðgang að háskóla-
námi. Hún er rétta byrjunin
fyrir þá sem eru að hefja
nám eftir hlé og hafa ekki
lokið stúdentsprófi.
haskolagatt.bifrost.is
Í gamla daga var
vinnandi fólk
sjaldnast með
háskólapróf.
Það er ekki
þannig lengur.
Innritunargjald er 89.000,- fyrir skólaárið 2013-14.
Lánshæft nám.
Engin skólagjöld!
433-3000 bifrost@bifrost.is
Íslensk/suður-afrísku hjálparsamtökin Enza empowering
women voru stofnuð af Ruth Gylfadóttur árið 2008.
Starfsemi samtakanna fer fram í Mbkweni fátækrahverfinu,
50 km norður af Höfðaborg í Suður Afríku. Nafn sam-
takanna; „Enza“, hefur jákvæða tilvísun og merkir að
framkvæma eða gera á Zulu og Xhosa, sem er móðurmál
meirihluta landsmanna. Enza er með starfandi stjórnir á Ís-
landi, í Suður-Afríku og í Bretlandi. Athygli vekur að ekki eru
þegin laun fyrir stjórnarsetu og hefur Ruth því helgað líf sitt
hjálparstarfinu.
R uth Gylfadóttir flutti til Suður Afríku fyrir 7 árum ásamt fjölskyldu sinni og hefur síðan varið öllum sínum tíma í sam-tökin Enza. Hún bjó fyrst þar sem barn og svo aftur sem
ung kona þar sem hún fór að vinna sem sjálfboðaliði í þágu ófrískra
kvenna, sem vegna vanefna gefa börn sín til ættleiðingar til Vestur-
landa. Þaðan segir hún að fræinu hafi verið sáð fyrir Enza samtökin
sem hún stofnaði árið 2005. Samtökin stækka við sig ár hvert og
hafa hlotið heimsathygli fyrir vinnu sína.
„Oft hefur konunum verið nauðgað og þær geta ekki framfleytt
sér og barni eftir fæðinguna,“ segir Ruth en Suður-Afríka er eitt
það land þar sem flestar nauðganir eiga sér stað í heiminum. Sagt
er að stúlku eða konu sé nauðgað í landinu á 17 sekúndna fresti.
Þessar stúlkur og konur sem verða barnshafandi vegna nauðg-
unar eru oftar en ekki gerðar ábyrgar bæði fyrir nauðguninni og
þunguninni og þeim gert erfitt fyrir og þær sjá sér ekki fært að sjá
sjálfum sér og barni farborða.
Börnin eru ættleidd til Vesturlanda þar sem nýju foreldrarnir
gera sér sjaldnast grein fyrir því úr hvernig aðstæðum börnin
koma.
Ruth segir það ríkt í fólki að réttlæta ættleiðingarnar með þeirri
hugsun að börnin hafi verið yfirgefin einhverstaðar. Það sé hins-
vegar ekki algengt, en um 400 hvítvoðungar fundust á víðavangi í
Hjálpar konum að fóta
sig í miðju fátækrahverfi
Ruth Gylfadóttir er stofnandi hjálparsamtakanna Enza. Þar er markmiðið að hjálpa konum
í fátækrahverfi í Suður Afríku að fóta sig innan samfélagsins með menntun og þjálfun.
Allt er nýtt. Stúlkurnar eru í kjólum sem konurnar á námskeiðum Enza sauma úr gömlum
flugstjóraskyrtum frá Íslandi. Sniðið gerði Ruth sjálf. Skyrtukjólarnir eru svo seldir á
mörkuðum.
Haldin er vegleg útskriftarveisla fyrir hvern hóp. „Þá er oft mikið grátið og hlegið til
skiptis,“ útskýrir Ruth.
30 viðtal Helgin 28. mars–1. apríl 2013