Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 28.03.2013, Blaðsíða 32
Grunnurinn Fullorðinn karlmaður þarf að eiga að minnsta kosti þrjú pör af skóm til að nota dags daglega. Auðvitað ætti hver og einn að eiga miklu fleiri pör en grunnurinn skiptir mestu máli. Sæmilega fína leðurskór, þó ekki lakkskó, hvunndagsleðurskó sem mega gjarnan ná aðeins hærra upp á ökklann, t.d. létta skóarhöggstrampara, og svo sportlega skó – annað hvort úr leðri eða striga. Marg- litir og léttir hlaupaskór falla þó ekki undir skilgrein- inguna sportlegir skór. Það eru íþróttaskór til þess að nota í íþróttum eða ef tærnar eru að detta af vegna mikils labbs í útlöndum. En þá á líka að finna fyrir svolítilli skömm. Litir Bara eitt par má vera svart. Yfirleitt er það fínasta parið. Vanda- málið við svartan er þó að svartur fer í rauninni bara vel við meira svart og kannski gráan. Þannig að ef svört jakka- föt eða gallabuxur í svörtu eru ekki uppistaðan í fataskápnum ætti helst enginn skór í skápnum að vera svartur. Við bláleitar gallabuxur eða chinos ætti brúnn eða rauðbrúnn að verða fyrir val- inu. Jafnvel grænn. Þar koma sportlegu skórnir gjarnan sterkir inn. Gjarnan hvítir eða í lit. En satt best að segja á að nota þá sparlega og helst bara á vorin og sumrin. Muna líka aðal regluna: Alls enga göngugreining- arskó – passa það. Við kakíbuxur, sem oftast eru jú ljósbrúnar, er líka skemmtilegast að nota brúna eða jafnvel leðurskó í lit. En passa að enda ekki eins og listhlaupari á skautum. Það er að liturinn á skónum sé nán- ast sá sami og liturinn á buxunum. Þá er skárra að sporta svörtum. Stíllinn Þegar velja á skó er líka gott að staldra aðeins við. Þeir líta jú ekki allir eins út og eru búnir til í mismunandi tilgangi. Botninn er úr mismun- andi efni og svo eru það auðvitað litirnir. Buxnasnið hafa líka mikil áhrif á hvaða skór henta best. Oft er gott að hugsa að andstæður dragast saman. Þannig að ef skálmarnar eru víðar er best að skórinn sé í nettara lagi. Of víðar og síðar buxur eru reyndar önnur döpur saga karl- mennskunnar sem verður ekki sögð hér. Miðað við grunnpörin þrjú þá stjórnar meðalhófið líkt og yfirleitt. Veljum ekki skó með of grófum botni. Táin á ekki að vera bollulaga en eng- ar gulrótatær heldur. Gjarnan milliháir og halda sig frá of miklum grodda án þess að enda í lakkskóm þó. Var svo búið að minn- ast á hlaupa- og göngu- greiningarskó? Þeir eru bannaðir! Skórnir skapa manninn Það að hugsa vel um fæturna á sér snýst um meira en að þurrka bara á milli tánna þegar komið er úr sturtu. Því það sem við bjóðum tánum upp á er yfirleitt meira ofbeldi en aðrir líkamshlutar þurfa að þola. Andlegt ekki síður líkamlegt. Tánum er svo gott sem aldrei hleypt út undir bert loft. Sem er kannski ekki svo slæmt því þær eru líka einn allra ljótasti hluti líkamans. Krumpaðar og einhvernveginn allar úr hlutföllum. Svo er yfirleitt fýla af þeim. Því skellum við þessum syðstu öngum líkamans yfirleitt bæði í sokka og skó sem ýtir að sjálfsögðu undir táfýluna. Hugsum svo ekki meira um fæturna það sem eftir lifir dags. En í því felst jú vandamálið, sérstaklega hjá körlunum. Þeir eiga það nefnilega til að geyma fæturna í sömu ljótu skónum mánuð eftir mánuð, ár eftir ár. Smá flúr á fínu skóna er einstaklega vel til fundið. Svona lagað eins og á þessum kallast á ensku wingtips. Þeir sem lengra eru komnir í skókaup- unum splæsa að sjálfsögðu í tvo tóna. Svo ekki sé talað um golf- eða keiluskó. Þá er það nú bara glæpur að tvítóna ekki. Hlaupa og göngugreiningarskór eru bannaðir – í það minnsta kosti svona hvunn- dags. Sé hins vegar áhugi fyrir því að líta sportlega út eru Chuck Taylor All Star skórnir gömlu góðu sérdeilis gott val. Reglan er nokkurnveginn þessi: Ef hægt er að ímynda sér Sean Connery circa 1962 uppbúinn í stuttum buxum, þröngum bol og viðkomandi skó. Þá eru þeir í lagi. Það er hægt að finna nettari útgáfur af öllum skóm. En gott par af háum karlmannlegum skóm er nauðsynlegt að sjálfsögðu. Ef höggva á niður mikið magn trjáa er um að gera að fá sér stóra bróður annars dugar sá nettari yfirleitt betur til bæjarferða. Bátaskór eins og þessir eru sumarskór par exelans. Muna bara að fara niður í Nauthólsvík og sletta á þá aðeins af söltum sjó. Svona rétt til að fá bátalúkkið ekta. Sokkar eru eiginlega ekki í boði með þeim þessum. Bátaskór skulu því alltaf vera í það minnsta fjórða par hússins. Haraldur Jónasson hari@ frettatiminn.is Te ik ni ng ar /H ar i www.worldclass.is FJÖLBREYTT NÁMSKEIÐ HEFJAST 8. APRÍL SKRÁNING Í FULLUM GANGI! 32 heimur karlmennskunnar Helgin 28 mars.-1. apríl 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.