Fréttatíminn - 03.02.2012, Blaðsíða 2
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Fæst í helstu matvöruverslunum landsins
Lífrænt grænt te
Þingmenn fá 35.900 krónum meira í vasann
27%
hækkun á FERÐA-
OG STARFS kOSnAÐI
ALÞInGISMAnnA
1. febrúar 2012
Skv. heimildum
Fréttatímans
D æmi eru um að læknar og hjúkr-unarfræðingar fyllist ónotum í réttarsal þegar þeim er gert að gefa
upp fullt nafn, kennitölu og heimilisfang
fyrir framan þá sem ákærðir hafa verið fyrir
ofbeldi og nauðgun. Eyrún Jónsdóttir, verk-
efnastjóri Neyðarmóttöku nauðgana, segir
heilbrigðisstarfsfólki ekki hafa verið ógnað
til þessa. En tilfinningin sé óþægileg.
„Fólki stendur ekkert á sama þegar harka
færist í mál og annað þó að það sé aðeins
þarna vegna starfa sinna,“ segir hún. „Lög-
reglan er vön að sýna [dómurum] skilríki
sín. Það hefur verið rætt og beðið um það að
fagfólk sem kemur fyrir dóminn þurfi ekki
að gefa þessar persónuupplýsingar upp. Það
væri því réttmætt að við fengjum sömu með-
ferð og lögreglumenn.“
Lögreglan hefur að undanförnu bent á
aukna hörku í undirheimunum, sérstak-
lega vegna vélhjólagengja eins og Outlaws
og Hells Angels. Búast má við því að heil-
brigðisstarfsfólk þurfi til dæmis á næstunni
að vitna um ástand konu sem í tvígang varð
fyrir árás meðlima Hells Angels í Hafnar-
firði.
Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn segir þekkt að þeir sem beri vitni
verði fyrir hótunum, jafnvel líkamsmeiðing-
um. Hann hafi þó ekki forsendur til að meta
hvort málum hafi fjölgað miðað við það sem
áður var. Málið sé snúið í þessu litla samfé-
lagi. „En auðvitað þarf að skoða þetta með
öryggi vitna og annarra sem koma fyrir
dóm í huga.“
Eggert Óskarsson, dómstjóri Héraðs-
dóms Reykjavíkur, bendir á 122. grein laga
um meðferð sakamála. Þar kemur fram
sú megin regla að dómari skuli fyrst láta
vitni gera grein fyrir nafni sínu, kennitölu
og heimili. Frá þessu megi gera undan-
tekningu. Dómari geti að kröfu ákæranda,
ákærða eða vitnis ákveðið að vitni sem
komi fyrir dóm geri ekki grein fyrir sér í
heyranda hljóði. „En þetta er matsatriði
dómara,“ segir hann. „Við förum eftir þessu
ákvæði réttarfarslaga.“
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Fasteignir eFtirspurn í miðbænum
Lúxusvilla Hannesar seld
„Ég get staðfest það. Húsið er selt,“ segir
Sverrir Kristinsson, framkvæmdastjóri
Eignamiðlunar, sem auglýsti lúxusvillu á
Fjölnisvegi til sölu á föstudaginn fyrir tæpum
tveimur vikum á 190 milljónir. Húsið var áður
í eigu félags í eigu Hannesar Smárasonar en
Landsbankinn tók félagið Fjölnisveg 9 ehf
yfir vegna skulda. Aðspurður um verð segir
Sverrir að ekki sé hægt að gefa það upp en
það hafi verið viðunandi að mati seljandans.
Eignamiðlun auglýsti einnig á sama tíma
einbýlishús við Laufásveg til sölu á rétt tæpar
90 milljónir. Sverrir segir að það sé selt enda
sé mikil eftirspurn eftir eignum á þessu
svæði. Þá auglýsti fasteignasalan tvær glæsi-
villur í Ásahverfinu í Garðabæ. Ásett verð á
eignirnar voru; 149 milljónir á hús í Brekku-
ási í eigu Steinunnar Jónsdóttur, dóttur Jóns
Helga í Byko og manns hennar Finns Reyrs
Stefánssonar og 140 milljónir á hús í Eikarási
en það er í eigu Helga Antons Eiríkssonar,
fyrrverandi forstöðumanns í Glitni og konu
hans. Meðal fyrri eigenda eru Íris Björk
Jónsdóttir, kennd við GK, athafnamaðurinn
Engilbert Runólfsson og hjónin Jón Arnar og
Ingibjörg Þorvaldsdóttir í 3 Smárum. Sverrir
segir margar fyrirspurnir hafi borist í húsin
en meira framboð sé á þessu svæði en í mið-
bænum og því geti það tekið lengri tíma að
selja þau. Fjölnisvegur 11 staldraði ekki lengi við á fasteignasölunni. Ljósmynd/Hari
Dómstólar FagFólk ugganDi vegna aukinnar hörku í unDirheimum
Fagfólk óttast ofbeldis
menn sem fá persónu
upplýsingar um það
Læknar og hjúkrunarfræðingar hafa mætt með hnút í maga vegna áhyggna af því af gefa
upp persónuupplýsingar sínar fyrir framan ofbeldismenn í málum fórnarlamba sem hafa sótt
þjónustu þeirra. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir þekkt að þeir sem beri vitni verði fyrir hót-
unum, jafnvel líkamsmeiðingum.
Ofbeldismenn fá
upplýsingar um
nafn, kennitölu og
heimilisfang fag-
fólks sem vitnar
um heilsuástand
fórnarlamba
þeirra.
hvað ef þú stæðir þarna sem vitni, gæfir upp nafn, heimilisfang og kennitölu fyrir framan mann sem grunaður er um líkamsáras
eða nauðgun? Mynd/Hari
konurnar eiga
PIP-púðana sjálfar
Landlæknisembættið hefur ekki
skipað lýtalæknum að taka fölsku, frönsku
sílikonpúðana af konum sem láta fjarlægja
þá. „konurnar eiga þessa púða,“ bendir
Geir Gunnlaugsson, landlæknir á. Dæmi
eru um að lýtalæknir hafi neitað konum
um að fá púðana afhenta að aðgerð
lokinni. Geir segir að skoðað sé innan
embættisins að konurnar sem beri púðana
taki sjálfar ákvörðun um að láta fjarlægja
þá á Landspítalanum, óháð því hvort þeir
leki eða ekki. „Ég hef fullan skilning á líðan
þeirra kvenna sem líður illa með slíka
púða. Það er klárlega eitt af þeim málum
sem þarf að taka fyrir.“ Geir vill koma því
á framfæri vegna fréttar Fréttatímans frá
síðustu viku að Kolbrúnu Jónsdóttur hafi
verið boðið á fund embættisins. - gag
nýr meirihluti sagður í
burðarliðnum
Viðræður milli Sjálfstæðisflokks, Fram-
sóknarflokks og Lista Kópavogsbúa báru
árangur í gær, að því er fram kom á mbl.
is. Þar sagði að samkomulag hefði náðst
milli flokkanna um að mynda nýjan meiri-
hluta. Margrét Björnsdóttir, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, sagði hins vegar í
frétt Ríkisútvarpsins síðdegis í gær að enn
hefði ekki verið gengið frá meirihluta-
samstarfinu. Kalla þyrfti alla viðkomandi
bæjarfulltrúa saman og fara yfir málefnin.
hún átti von á að þeir funduðu í gærkvöld
eða árla í dag. Ellefu fulltrúar eru í bæjar-
stjórn Kópavogs: Sjálfstæðisflokkurinn er
með fjóra fulltrúa, Framsóknarflokkurinn
einn og Listi kópavogsbúa einn. Meiri-
hlutsamstarf Samfylkingarinnar, Vinstri
grænna, Næstbesta flokksins og Lista
kópavogsbúa sprakk í janúar. Samkvæmt
heimildum Fréttatímans er gengið út frá
því að bæjarstjóri komi ekki úr hópi bæjar-
fulltrúa heldur verði ráðinn sérstaklega til
starfans. -jh
Gott ár hjá Marel
Afkoma Marels á síðasta ársfjórðungi liðins
árs var mjög góð. hagnaður tímabilsins
nam 15 milljónum evra, eða sem nemur
2,5 milljörðum króna, en á sama fjórðungi
árið áður nam hagnaðurinn 5,5 milljónum
evra, um 900 milljónum króna. Sölutekjur
Marels á fjórðungnum námu 183,9 millj-
ónum evra, tæplega 30 milljörðum króna,
og jukust um rétt tæp 10 prósent frá sama
fjórðungi árið áður. Rekstrarhagnaður var
21,6 milljónir evra, 3,5 milljarðar króna,
sem er 11,8 prósent af tekjum. Pantanir
námu 196,2 milljónum evra í árslok, eða
sem svarar nær 32 milljörðum króna.
hagnaður síðasta árs nam 34,5 milljónum
evra, 5,6 milljörðum króna, miðað við 13,6
milljóna evra hagnað árið 2010, eða sem
svarar 2,2 milljörðum króna. - jh
Alþingismenn fengu 27 prósentum meira greitt út vegna
ferða- og starfskostnaðs um mánaðamótin en þau síðustu.
Starfskostnaður fór úr 66.400 krónum í 84.500 og
ferðakostnaður úr 61.400 krónum í 78.200 krónur, sam-
kvæmt heimildum . Samtals nemur hækkunin milli mánaða
því 35.900 krónum. kjararáð afturkallaði launalækkun
þingmanna í kjölfar efnahagshrunsins um 7 til 15 prósent í
desember og 1. október síðastliðinn hækkuðu laun varafor-
manna nefnda og 2. varaforseta. Fyrsti varaformaður fékk
þá tíu prósent ofan á þingfararkaup og 2. varaforseti fimm
prósent. Forsætisnefnd tók ákvörðun um hækkunina nú; að
hún sé leiðrétting. Í henni sitja þingmenn fjögurra flokka,
allra nema Hreyfingarinnar. - gag
2 fréttir helgin 3.-5. febrúar 2012