Fréttatíminn - 03.02.2012, Blaðsíða 10
Starf slökkviliðsmanns er erfitt og ekki veitir af hollum og góðum mat.
Mataræði Matseðill slökkviliðsManna
Slökkviliðið á próteini
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur gert
samkomulag við Kötlu sem mun framvegis
sjá liðinu fyrir próteindufti. Það var íslenska
próteinduftið Profitt frá Kötlu sem varð fyrir
valinu en fram kemur að það sér án allra
e-efna og innihaldi hvorki gervisætu né
litarefni. Profitt verður hér eftir reglulega
á matseðlinum hjá slökkviliðsmönnum á
höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsmenn
þurfa, öðrum fremur, að vera í gríðarlega
góðu líkamlegu formi.
Að sögn Elíasar Níelssonar, yfirmanns
þjálfunar hjá slökkviliðinu, hafa kröfur um
líkamlegt atgervi slökkviliðsmanna aukist
mikið. „Síðasta sumar voru prófin samræmd
hjá öllum slökkviliðunum á Íslandi og þriðja
stigs prófi bætt við. Slökkviliðsmenn þurfa
að hafa styrk, úthald og þor til að bjarga
fólki, klæddir þungum hlífðarfötum og sam-
tímis að draga á eftir sér slöngur sem láta illa
að stjórn, oftar en ekki inni í þykku reykjar-
kófi og eldi. Björgunaraðgerðir geta tekið
langan tíma eins og dæmin sanna. Ég held
að meðalmaðurinn mundi varla endast í tíu
mínútur við þessar aðstæður.“
Aðspurður um samninginn við Kötlu segir
Elías að mataræði þeirra skipti að sjálfsögðu
miklu máli, og það sé fínt að geta bætt Pro-
fitt við matseðilinn, íslensku mysuprótíni og
megrunarfæði sem sé laust við öll gerviefni.
lewis-taflMennirnir kenningin uM íslenska upprunann
Einar tekur upp
hanskann fyrir
Guðmund
Norskur bréfskákmeistari gagnrýnir Guðmund G. Þórarins-
son harðlega fyrir kenningu um íslenskan uppruna hinna
fornfrægu Lewis-taflmanna. Einar S. Einarsson varði kenn-
ingu Guðmundar og sakaði Norðmanninn um hroka og
smekkleysi.
u ppruni hinna fornfrægu Lewis-taflmanna veldur enn deilum. Fréttatíminn greindi í júní frá þeirri kenningu Guðmundar G.
Þórarinssonar, fyrrverandi forseta Skáksambands Ís-
lands, að taflmennirnir væru hugsanlega íslenskir að
uppruna en ekki norskir, skornir úr rostungstönnum
í Skálholti í lok 11. aldar. Þessir merkilegu skák- og
listmunir fundust grafnir í sand í Uig á eyjunni Lewis
árið 1831 og eru taldir meðal merkustu muna sem
varðveittir eru á breska þjóðminjasafninu og að hluta
á því skoska. Heitið biskup er grundvallaratriði í
kenningu Guðmundar en biskup kemur þarna fyrst
til skjalanna á skákborði svo vitað sé. Guðmundur
telur mörg rök, söguleg og málfræðileg, hníga að því
að taflmennirnir séu íslenskir að uppruna.
Morten Lillören, norskur bréfskákmeistari, skrif-
aði í desember harðorða grein á Chessbase-skák-
fréttasíðuna . Hann gagnrýnir kenningu Guðmundar
um hinn íslenska uppruna harðlega, telur hann
misfara með heimildir og draga rangar ályktanir.
Lillören hefur áður skrifað um þetta álitamál en þá
svaraði Guðmundur á ChessCafe.com og einnig á
Chessbase.
Einar S. Einarsson, fyrrverandi formaður Skák-
sambands Íslands, hefur verið Guðmundi innan
handar vegna málsins. Hann tók upp hanskann fyrir
Guðmund í grein á Chessbase. Þar ítrekar Einar að
kenning Guðmundar sé byggð á mikilli þekkingu,
sögulegum staðreyndum og líkindum. Hann bætir
því við að orðaval og lýsingar Lillören á Guðmundi
og kenningu hans séu í senn hrokafullar og smekk-
lausar. Slíkt sé ekki boðlegur máti vitsmunalegrar
umræðu.
Í grein sinni vitnar Einar til ráðstefnu þeirrar sem
haldin var í Skálholti í ágúst síðastliðnum um upp-
runa taflmannanna frá Lewis. Það þing sóttu meðal
annarra færustu fræðimenn erlendis frá á þessu
sviði. Dr. David H. Caldwell frá skoska þjóðminja-
safninu taldi allar umræður um málið af hinu góða
og hvatti til frekari fornleifarannsókna í Skálholti.
Hann taldi allt eins líklegt að taflmennirnir væru
upprunnir héðan eins og frá Noregi en hald manna
var að þeir hefðu verið gerðir í Þrándheimi. Enn væri
ekkert hægt að sanna í þeim efnum.
Guðmundur telur að nafn fundarstaðarins, Uig, sé
dregið af íslenska orðinu Vík og skammt þar undan
er staðurinn Islivik sem gæti verið dregið af nafninu
Íslendingavík. Svipmót taflmannanna bendir til þess
að þeir séu af norrænum uppruna, hrókarnir eru í
berserkslíki og riddarinn á smáhesti og ekki síst
Íslandstenging biskupsins. Í Noregi heitir biskup
hlaupari en Guðmundur telur að biskupsheitið sé í
enskri tungu fyrir íslensk áhrif.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Slíkt er
ekki boð-
legur máti
vitsmuna-
legrar
umræðu.
Guðmundur G. Þórarinsson flytur fyrirlestur á ráðstefnu um Lewis-taflmennina á ráðstefnu í Skálholti í ágúst síðast-
liðnum. Kenning hans um íslenskan uppruna þeirra byggist ekki síst á biskupnum. Ljósmynd Eydís Einarsdóttir
10 fréttir Helgin 3.-5. febrúar 2012