Fréttatíminn - 03.02.2012, Qupperneq 4
www.mulakaffi.is I mulakaffi@mulakaffi.is
OKKAR LANDSFRÆGU HJÓNABAKKAR
OG ÞORRATROG HENTA VEL FYRIR
STÓRA OG SMÁA HÓPA
MUNIÐ AÐ PANTA TÍMANLEGA!
SÍMI 553 7737
Prentminjasafn á Hólum
Michelsen_255x50_B_0911.indd 1 28.09.11 15:10
Einkareknar læknastofur
rannsakaðar
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra
hefur ákveðið að stofna ráðgjafahóp til
að fara í saumana á faglegum þáttum í
starfsemi einkarekinna læknastofa og gera
tillögur til úrbóta eftir því sem þörf krefur.
Tilefnið er álitaefni í tengslum við innflutning
og notkun gallaðra brjóstapúða. Velferðar-
ráðherra segir, að því er fram kemur á síðu
ráðuneytisins, þetta mál hafa vakið upp fjöl-
margar spurningar sem tengist einkarekstri
í heilbrigðisþjónustu almennt, einkum vegna
þjónustu sem veitt er án greiðsluþátttöku
ríkisins. Magnús Pétursson ríkissáttasemjari
er verkstjóri ráðgjafahópsins. - jh
J óhanna Sigurðardóttir forsætis-ráðherra hefur óskað eftir því að fjármálaráðherra og vel-
ferðarráðherra geri grein fyrir því
hvers vegna kjararáð ákvað að lækka
laun framkvæmdastjóra Fríhafnar-
innar þegar kona tók við starfinu af
karli; frá fjármálaráðherra því kjara-
ráð heyri undir hann – frá velferðar-
ráðherra því jafnréttismál eru á hans
könnu.
Fréttatíminn sagi frá því í síðustu
viku að Ástu Dís Óladóttur hafi
verið úrskurðað sömu dagvinnu-
laun en 85 þúsund krónum lægri
heildarlaun þegar hún tók við starfi
framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar af
Hlyni Sigurðssyni. Hún er með meiri
menntun og reynslu. Einnig kom
þar fram að konur undir kjararáði fá
að meðaltali 654.092 fyrir dagvinnu
en karlar 698.355. Meðalheildar-
laun kvenna eru svo 731.936 en karla
878.083 krónur. Þá undraðist Ásta
Sigrún Helgadóttir, Umboðsmaður
skuldara, að hún fengi einungis tíu
einingar fyrir álag og yfirvinnu, sem
er langtum minna en mörgum karl-
anna hefur verið úthlutað.
Forsætisráðuneytið vísar til þess,
eftir ósk Fréttatímans um viðtal við
forsætisráðherra, að Jóhanna hafi
hvorki lagalegar heimildir né aðrar
forsendur til þess að beita sér beint í
málum af þessu tagi. Jafnréttisstofa
geti hins vegar beitt sér fyrir því að
Kærunefnd jafnréttismála taki mál til
skoðunar.
Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu, segir
að þar sem Kærunefnd jafnréttismála
hafi vísað máli Ástu Dísar frá í kjölfar
þess að kjararáð hækkaði laun henn-
ar til jafns á við laun forverans og
greiddi henni mismuninn, geti Jafn-
réttisstofa ekki beðið nefndina um
að taka málið upp aftur. Hins vegar
skoði hún hvort biðja eigi Kærunefnd
jafnréttismála um að skoða hvort
kjararáð hafi úrskurðað að konur
skuli hafa lægri lægri laun en karlar.
Svanhildur Kaaber, formaður
kjararáðs, sagði að hún gæti ekki
KJararáð áKvörðun um lægri laun Konu en Karls
Jóhanna spyr hvers vegna
kjararáð lækkaði laun konu
Forsætisráðherra krefur fjármála- og velferðarráðherra svara við því hvers vegna laun
framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar lækkuðu um 85 þúsund krónur þegar kona tók við starfinu af
karli. Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu skoðar hvort hún biðji Kærunefnd jafnréttismála að fara
yfir úrskurði kjararáðs með það fyrir augum að úrskurða hvort það fari að lögum.
Ennþá gamlir, svart hvítir tímar – þegar sjálfsagt þótti greiða konum lægri laun en
körlum, eða hálfkláruð ákvörðun kjararáðs um að lækka laun forstöðumanna ríkis-
ins? Um það er deilt. Ásta Dís Óladóttir, framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar.
tjáð sig við Fréttatímann þar sem
hún væri erlendis. Í samtali við
RÚV hafnaði hún því að kjararáð
úrskurðaði konum lægri laun
en körlum. Ástæða þess að Ásta
Dís Óladóttir hafi í fyrstu fengið
lægri laun en forverinn væri sú að
kjararáð hefði ekki verið búið að
lækka launin fyrir þau störf sem
fóru undir kjararáð árið 2009 til
fulls vegna meðalhófsreglunnar –
um að lækka laun forstöðumann-
anna ekki óhóflega mikið.
„[Þ]ar af leiðandi fannst okkur
rétt í ljósi ábendinga Ástu Dísar
að hækka hana upp í þá fjárhæð
sem forveri hennar var í,“ sagði
hún við RÚV. Staða Umboðs-
manns skuldara, sem Ásta Sigrún
Helgadóttir sinni, sé hins vegar
ný og hún er því með sambærileg
laun á við aðra í svipaðri stöðu.
Fimm sitja í kjararáði. Þrjú
eru kosin af Alþingi. Einn valinn
af Hæstarétti og annar af fjár-
málaráðherra. Kjararáð ákveður
starfskjör þjóðkjörinna manna,
ráðherra og dómara og margra
annarra ríkisstarfsmanna.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
„Úrskurðurinn með
ólíkindum“
„Það er með ólíkindum að svona úrskurður
geti legið eftir kjararáð og með nokkrum
ólíkindum þegar maður plægir í gegnum
málið að þetta hafi verið niðurstaðan eftir
skoðun á stöðu þessara einstaklinga hvað
varðar menntun og hæfi og allt annað.“
Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson, formaður
allsherjar- og menntamálanefndar á Alþingi
á þriðjudag.
„Það kallar auðvitað á útskýringar og
áminningu til allra, bæði kjararáðs og allra
annarra sem að fara með launamál og annað
sem snertir jafnrétti kynjanna og stöðu fólks í
samfélaginu,“ bætti hann við.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, spurði Björgvin út í málið
á Alþingi. Hún vill að ríkisstjórnin fari ofan í
saumana á störfum kjararáðs í kjölfar þess
að kjararáð lækkaði laun framkvæmdastjór-
ans með nýjum úrskurði.
„Ég vil að þau í kjararáði íhugi hvað þau
eru að gera og hvernig þau vinna vinnuna
sína. Það er mjög alvarlegt ef að þau í kjarar-
áði eru að brjóta jafnréttislög,“ segir hún.
Björgvin sagði á þingi að það væru engir
afslættir veittir á jafnréttislögum frekar en
öðrum landslögum.
Á vegum vígslubiskupsembættisins
á Hólum er hafinn undirbúningur að
stofnun prentminjasafns. Prentminjarn-
ar sem fundist hafa, útgefnar bækur frá
Hólaprenti sem gefnar voru kirkjunni á
900 ára afmæli biskupsstóls á Hólum,
prentvélar og tæki sem einnig hafa
verið gefin og sú staðreynd að útgáfa
var rekin á Hólum í 230 ár eru undir-
staða slíks prentminjasafns – sem sýna
myndi um leið prentsögu Íslands, segir
á síðu innanríkisráðuneytisins. Verið er
að kanna fyrirkomulag og fjárhagshlið á
slíkum rekstri. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fundaði um síðustu helgi
með Jóni Aðalsteini Baldvinssyni vígslubiskupi og öðrum Hólamönnum þar sem
málið var rætt. - jh/Ljósmynd innanríkisráðuneytið
Ferðaþjónustulán
Byggðastofnunar 4,6
milljarðar
Heildarútlán Byggðastofnunar í árslok
til fyrirtækja í ferðaþjónustu voru
um 4,6 milljarðar króna. Þar af voru
tæpir 1,4 milljarðar til fyrirtækja í
fjórum sveitarfélögum; Hornafirði,
Mýrdalshreppi, Skútustaðahreppi og
Skaftárhreppi, að því er fram kemur hjá
iðnaðarráðuneytinu. Þau ferðaþjón-
ustufyrirtæki sem tekið hafa lán hjá
Byggðastofnun eru dreifð vítt um land
en ekkert sveitarfélag hefur yfir 8
prósent af heildarútlánum stofnunar-
innar til ferðaþjónustu. - jh
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Veðurvaktin ehf
Ráðgjafafyrirtæki í eigu
Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Veður-
vaktin býður upp á veður-
þjónustu fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og opinbera
aðila í ráðgjöf og úrvinnslu
flestu því sem viðkemur
veðri og veðurfari.
Veðurvaktin ehf
Eikarási 8, 210 Garðabæ
Sími: 857 1799
www.vedurvaktin.is
S- oG SV-StrekkinGur. Hiti VíðASt
ofAn froStmArkS oG úrkomulAuSt
um miðjAn DAGinn.
HöfuðborGArSVæðið: ÞURRt FRAMAn
AF dEGi, En StoRMUR MEð SlyddU
RiGninGU UndiR KVÖldið.
HVöSS SV- oG V-Átt oG él VeStAn-
til, en birtir uPP norðAnlAnDS
oG AuStAn.
HöfuðborGArSVæðið: KRAPAÉl
oG FREMUR HVASSt lEnGSt AF dEGi.
Veðrið lAGASt mikið um morGuninn,
læGir oG kÓlnAr í bili, Áður en Aftur
VerSnAr SunnAnlAnDS SíðDeGiS.
HöfuðborGArSVæðið: SKAPlEGt VERðUR UM
MoRGUninn, En HlýnAR MEð RiGninGU UndiR
KVÖldið.
Þrjár lægðir á þremur dögum
Í byrjun febrúar verða oft hvað órólegustu
dagarnir á vetri hverjum. Við erum nú orðin
vön ýmsu þennan veturinn, en samt virðist
veðrið ætla að fylgja „reglunni“ því þrennum
skilum er spáð yfir landið á rúmlega þremur
dögum. Kortin miðast við hádegi. Veður
næstu daga verður almennt verra að kvöldlagi og
nóttuni en að degi til. lægð seint á
föstudag og laugardag gæti orðið
skeinuhætt með stormum, einkum
vestan- og suðvestanlands. Með
þeirri sem væntanleg er seint á
sunnudag gerir góða leysingu,
annars snjóar á fjallvegum.
2
3 4
1
3 2
3 4
5
3
0
0 0
-2
-1
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 3.-5. febrúar 2012