Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.08.1920, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ ii 7 Hklega hundafækkunar, er enn eitt atriði, sem vafalaust vinnur í söniu átt og þetta, og þaS er flutningur fólks til bæjanna á síð- ari árum. Þar hlýtur miklu minni hætta aö vera, því þar er svo litiS af hundum og fáir þar sem umgangast þá aö nokkrum mun. í hinni skemtilegu ritgerö Guöm. próf. Magnússonar í Árbók Háskólans 1912—13. heimtar hann upplýsingar um árangur hundahreinsunarinnar, um fyrirmælin um eyöileggingu sulla úr sláturfé, og þar er bent á, hvað frekar þurfi aö gera: aö taka upp rannsóknir Krabbes á) sláturfé og hund- um, og meö réttu telur hann það ekki vanvirðulaust, að ekkert hafi þá verið gert i þá átt í 50 ár. — Síðan þetta var skrifað, veit eg eigi til, að neitt hafi verið gert til að hrinda þessu máli áfram. Nú eru 4 dýralæknar hér á landi, sem óefað munu fúsir til að taka þetta mál að sér. Á þeim stendur varla, en fjárveitingavaldið verður að veita þá peninga, sem til þessa þarf, og sóma síns og landsins vegna er óhugs- andi, að þar verði nein veruleg fyrirstaða. — Læknablaðið og læknastéttin á ekki að þagna um þetta mál fyr en þvi er borgið á viðunanlegan hátt. Sæm. Bjamhjeðinsson. Skipulag heilbrigðismála. Nokkrar endurbótatillögur. Fæstir munu gera sér ljósa grein fyrir því, hve skamt er liðið siðan læknaskipun landsins komst í skaplegt horf. Fyrsti læknirinn, Bjarni Páls- son landlæknir, settist hér að 1670. Um aldamótin 1800 voru læknarnir 5, en fram undir 1870 að eins 7. Auðvitað gátu fæstir náð til þessara fáu lækna, og mátti svo heita, að svo stórt land væri læknislaust fyrir þeim. Eftir 1864 fór læknum stöðugt fjölgandi, en þó voru ekki fleiri en 30 héraðslæknar um aldamótin 1900. Síðan hefir þeim fjölgað upp i 48. Það er þvi fyrst eftir síðustu aldamót, sem læknaskipun er komin í það horf, að nálega öllum er giert það kleift að vitja læknis. Að vísu er það mikilvæg undirstaða að hafa fengið nægilega marga hér- aðslækna, en upprunalega mun mönnum ekki hafa verið það ljóst, að mörgu þarf við að bæta til þess að viðunandi sé. Skipulag heilbrigðis- mála vorra er yfirleitt enn i bernsku, svo sem vonlegt er. Það þarf að hreyta því og fuflkomna það á ýmsan há'tt, en til þess að það tákist vel, er nauðsynlegt að málið sé rætt, ekki síst af héraðslæknum vorum, sem finna betur en flestir aðrir, hvar skórinn kreppir. Eftirfarandi tillögur eru gerð- ar til þess að hreyfa málinu, og í þeirri von, að aðrir auki þær og endur- bæti. Það er til litils fyrir lækna að treysta Alþingi og yfirvöldum i blindni. Þeir verða sjálfir að berjast fyrir góðu skipulagi á heilbrigðis- málunum, gera sjálfir tillög.ur um það alt. Og vér meguin alls ekki miða alt við gamla botnlausa hripið: lækning og hjúkrun sjúkra. Hitt varðar jnestu, og v e r ð u r m e ð tímanum a ð' a 1 s t a r f 1 æ k n a, að kyti-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.