Læknablaðið - 01.04.1921, Qupperneq 14
6o
LÆKNABLAÐIÐ
um dansfundum og öðrum mannfundum utan heimilis, þar veröur erfitt
aö sýna hvar hver hafi smitast af jafn-langvinnri og hægfara veiki og
berklav. þráfaldlega er, ekki síst er því er jafnframt haldiö fram, aö
smitunin veröi oftast mörgum árum eöa áratugum fyr en fer aö bera á
veikinni. Meöan nefndir siöir haldast, sé eg ekki betur en aö smitunar-
færi geti veriö hvar sem vera skal aö kalla, og sakna eg því þess, aö nefndin
hefir ekki teljandi minst á neinn af þessum „þjóölegu" siöum, sem eg
er sannfæröur um, að liér eru langoftast „fons et origo mali“.
Þetta er líklega þegar oröiö full-langt fyrir Lbl., og skal þvi hér látið
staöar numið. Er þó ekki alt taliö, sem eg lít nokkrum öörum augum á
en nefndin, og aö kalla ekki minst á hitt, sem eg gæti fylgt henni i óskor-
aö. Hvernig sem litið er á einstök atriði -— og hver hefir sina kreddu, svo
aö ekki verður öllum gert til hæfis — þá hefur nefndin leyst af henidi
mikið starf, og gott, þegar á alt er litið. En aö eg hefi fundið aö ýmsu
])ví hjá nefndinni, er kemur í bág viö mínar kreddur, á því á formaður
nefndarinnar mesta sök, næst sjálfum mér, því aö hann, sá kennara minna,
sem eg held aö eg eigi allra-mest að þakka og vildi helst líkjast, kendi
mér aldrei meö orðum né eftirdæmi, að „jurari in verba magistri“.
Dalvik, 16. mars 1921.
Sigurjón Jónsson.
Smágreinar og athugasemdir.
Greining og meðferð hixta. (Að mestu eftir A. Martinet). 1) M i ð-
s t ö ö v a r ý f i'n g: Chloral, brom, morphin, scopolamin. 2) Heili.
Psychönevroses, hysteria, meningitis: Suggestio reeducatio, punctio lumb.,
lyf. 3) B r j ó s t. Mb. cordis et aortae, pericarditis, plevritis (diaphragm.).
Hjartalyf, revulsio praecordialis, brunaplástur o. þvíl., punctio pericardii.
4.) K v i ö u r. Magi (dyspepsia, dilatat, aerophagia), pcritonitis, helmin-
thiasis: Diæt, magaskolun, magalyf, sultur, opiata, operationes, vermi-
fugae. -—• Viö þetta má eflaust bæta ýfing á þind viö lifrarsjúkd., sulli o. fl.
Bólusetning við berklaveiki. 1913 skýröi svissneskur bakteríufræöingur,
Henri Spahlinger, frak'kneska Académie de Medicine frá því, að hann
heföi fundið nýja bólusetning gegn berklav. (antiserum), sem reynst hefði
öllum vonum framar. Lofaði aö skýra nánar frá þessu síðar. Nýlega hefir
hann sent félaginu skýrslu um tilraunir sínar undanfarin 6 ár, og auk þess
frakkneskra og enskra lækna, sem hafa reynt meðferöina. Eftir henni eiga
iafnvel þungt haldnir sjúklingar (t. laryng. & pulm.), sem heilsuhælis-
meðferð hreif ekki á, aö hafa læknast. — Frakknesk og ensk dagblöð
hafa náð í þessa frétt og láta mikið yfir, segja, aö hér sé um óbrigðult
lyf aö ræöa á hvaða stigi, sem veikin er! Lancet 19. febr. segir, sem satt
er, að lítiö sé upp úr slíku aö leggja, en segir frá fréttinni. Annars viröist
sjálf ritgerðin ekki hafa verið komin til Englands um þaö leyti.