Læknablaðið - 01.08.1943, Síða 14
24
LÆKNABLAÐIÐ
vel geti fariö um hann og tök eru
á eða að festa liðina neðan völu-
(arthrodesis sub talo). Óþægindin
sem sjúkl. hefir á þessu stigi stafa
eins og fyrr er sagt aöallega frá
fótarliöunum og þá sérstaklega
þeim, sem hverfingin (supinatio
— pronatio) fer fram i, en það
eru neðri og fremri völuliðurinn
(artt. talocalcanea og talo-navi-
cul.) og liðurinn milli tenings og
hælbeins. í þessum liðum er enn
dálítil hreyfing, nóg til þess að
valda ■ sársauka og batnar líðanin
ef þeir eru festir. Þessi aögerð er
líka oft notuð við ilsigi, sem or-
sakast hefir af slysum á fæti, sér-
staklega eftir hælbeinsbrot og
raunar af mörgum við sum ný
hælbrot, en ekki skal hún frekar
gerð að umtalsefni hér.
Við önnur slys og infectionir
fer meðferðin eftir því hvernig
slysunum eða sjúkleikanum er
háttað og ber fyrst og fremst að
keppa að því, að ekki nái að koma
ilsigið og vera óragur að gefa fæt-
inum þá hvíld, sem ilstoðir mega
veita, unz hann hefir fengið full-
an styrk. En nái ilsigið að mynd-
ast er meðferðin eins og áður er
lýst.
Sé um lamanir að ræða, eru
þær langoftast afleiðing mænu-
veiki, má stundum hjálpa með
flutningi á vöðvum, en dugi það
ekki og komi ekki ilstoðir eða
skófatnaður að fullu gagni, verð-
ur einatt að grípa til aðgerða á
beinum fótarins eins og fy.rr er
sagt, ellegar að sjúkl. verður að
ganga með varanlegar umbúðir.
Meðfætt ilsig er stundum á háu
stigi. Verður þá að rétta fótinn og
er • það oftast auðvelt, ef það er
gert á börnunum ungum, en hitt
er venjulega erfiðajra að halda
honum í réttum skorðum. Þarf
til þess langvarandi gibsumbúðir
og er sjúkl: Iátinn ganga í þeim
ef hann er svo stálpaður. Þegar
gibsumbúðum sleppir, verður
sjúkl. að hafa leðurumbúðir um
nætur og ganga í valgusskóm og
þarf enda stundum að hafa á þeim
spangir, sem ná upp undir hné.
Diagnosis liggur í augum uppi,
ef um greinilegan pes plano valgus
'er að ræða, en sé aðeins um in-
sufficiens að ræða, getur fleira
komið til greina og raunar allt,
sem orsakað getur verki i fótum
og mjóbaki. Um verki í fótum
hefir Kristján Hannesson skrifað
i Læknablaðið 27. árg. 1. tbl., en
greining verkja i mjóbaki liggur
fyrir utan ramma þessarar grein-
ar.
Þó er einn krankleiki, sem eg
vildi rétt minna á, en það er end-
angitis obliterans (Búrger). Lík-
lega er harin sjaldgæfur hér, a.
m. k. hefi eg lítið orðið hans var,
en það er nokkuð algengt að þess-
ir sjúkl. séu sendir orthopaedisk-
um deildum vegna ilsigs, meðan
sjúkdómur er á byrjunarstigi. En
iþví riiinni ég á hann, að þýðingar-
laust er að ætla að hjálpa þessum
sjúkl. með ilstoðum og eins vegna
hins, að helzt er von um að geta
haldið í við sjúkdóminn, ef menn
gera sér nógu snemma ljóst hvað
um er að ræða, en hinsvegar er
þessi sjúkdómur svo dapurlegur,
þegar hann er kominn á hátt stig,
að allt er reynandi til þess að halda
honum i skefjum.
(Líffæraheitin eru tekin eftir
bók Guðmundar próf. Hannes-
sonar: íslenzk líffæraheiti.)