Kraftur - 01.05.2010, Side 9
9KRAFTUR
Starfsmaður Krafts,
Hulda Bjarnadóttir, sá um
verkefnastjórn á pinnasölu
Krabbameinsfélags Íslands í
tengslum við árverknisátakið
Karlar og krabbamein. Um var
að ræða landssölu laugardaginn
6. mars og var Kraftur því í
samstarfi við aðildarfélög KÍ
á landsbyggðinni. Átakið var
þríþætt en auk pinnasölunnar var um að
ræða mottumars og landssöfnun í sjónvarpi.
Karlmenn á Íslandi voru hvattir til þess
að safna yfirvararskeggi í mánuðinum
til að sýna samstöðu og safna jafnframt
áheitum til styrktar baráttunni gegn
krabbameini með því að skrá sig til þáttöku
í yfirvararskeggkeppninni á vefsíðunni www.
karlmennogkrabbamein.is
Óhætt er að segja að átakið hafi vakið
verðskuldaða athygli sem sjá mátti með
óheftum skeggvexti á efri vör fjölda
karlmanna á öllum aldri við við mismikla
hrifningu hins kynsins. Skyndilega voru
ótrúlegustu menn komnir með myndarlegt
yfirvaraskegg og léku sér að því að snyrta
það og móta á ýmsa vegu.
En tilgangurinn var einnig að
minna karlmenn á að vera
vakandi fyrir einkennum
algengustu krabbameina,
þekkja líkama sinn og þreifa
t.d. reglulega punginn í leit að
einkennum eistnakrabbameins,
líkt og konur eru hvattar til
að þreifa brjóst sín vegna
möguleika á brjóstakrabbameini. Á síðu
átaksins fer fígúran Steinar sérstaklega
yfir það hverju karlmenn þurfa að
vera vakandi fyrir og þar má finna
leiðbeiningar um hvernig á að
skoða líkamann.
Sérstakur bæklingur var
gefinn út samhliða
mottukeppninni til
að fræða karlmenn
um hvernig minnka
má líkurnar á því að
fá krabbamein en
rannsóknir sýna að
koma mætti í veg
fyrir 1 af hverjum 5
krabbameinstilfellum ef karlmenn temdu
sér heilbrigðan lífsstíl. Má þar nefna aukna
hreyfingu, hollt mataræði og hóflega
áfengisneyslu en forðast neyslu hvers
kyns tóbaks, hættuleg áhrif sólarljóss og
ljósabekkja.
Mottumars lauk formlega með söfnunarþætti
á Stöð 2 þann 26.mars, söfnunin gekk vonum
framar en heildarupphæðin var rúmar 42
milljónir króna.
KarlMenn og KrabbaMein
Kveðja
Okkur hjá Krafti langar að minnast fallins félaga, Rúnars Arnar
Hafsteinssonar, sem lést 8. nóvember síðastliðinn eftir langa baráttu
við beinkrabbamein. Rúnar Örn var virkur í Stuðningsneti Krafts og
deildi þannig langri og erfiðri reynslu sinni með fólki sem á þurfti
að halda og veitti þeim ómetanlega hjálp og styrk. Við þökkum það
óeigingjarna starf sem Rúnar Örn vann í þágu Krafts og sendum
hlýjar kveðjur til eiginkonu hans og dóttur, Unu Bjargar og Örnu Eirar.
Minningin lifir.
STUÐNINGSSÍMI KRAFTS ER 866-9618
Síminn er opinn allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Ekki hika við að hringja vanti þig að heyra í einhverjum sem hefur velt fyrir sér sömu hlutum og þú, upplifað sömu tilfinningar og óvissu, eða
skilur að stundum þarftu bara að tala!