Kraftur - 01.05.2010, Qupperneq 13
13KRAFTUR
Á næstu vikum kemur út bæklingur sem
Kraftsmeðlimurinn Edda Björk Pétursdóttir
setti saman. Nicorette, Svansprent og
NordicPhotos styrkja útgáfuna. Þar má
finna ráðleggingar handa aðstandendum
krabbameinsgreindra en hugmyndin
kviknaði þegar Edda Björk gekk nýlega í
gegnum krabbameinsmeðferð og langaði
að koma ýmsum atriðum á framfæri við
aðstandendur, byggðum á eigin reynslu.
(Inngangur bæklingsins)
„Í janúar árið 2009 greindist ég, aðeins
24 ára gömul, með illkynja krabbamein. Í
kjölfarið fylgdi skurðaðgerð, þar sem æxlið
var fjarlægt, sex þungar lyfjameðferðir
sem kröfðust innlagnar á sjúkrahús í þrjá
sólarhringa í senn og tuttugu geislameðferðir.
Í veikindaferli mínu var ég svo lánsöm að
eiga marga góða að, en veitti því athygli að
sumir vissu ekki alveg hvernig þeir áttu að
bera sig að.
Markmið þessa bæklings er að vekja
aðstandendur til umhugsunar um það
hvernig hægt er að létta líf sjúklings á
meðferðartímabilinu. Hafa ber í huga
að atriðin hér að neðan, byggja ekki á
rannsóknum heldur persónulegri reynslu
minni af þessu flókna og erfiða ferli. Þau
atriði sem ég nefni – gætu því ef til vill
hjálpað einhverjum.“
Tvö ráð úr bæklingnum
• „Það getur verið erfitt að hafa marga
gesti í einu og fá heimsóknir án nokkurs
fyrirvara.“
• „Góð nærvera skiptir höfuðmáli. Einfalt
atriði eins og að halda í höndina á
sjúklingi eða gefa honum faðmlag getur
þýtt meira en þig grunar. Að sitja saman
í hljóði getur oft verið meira virði en
þúsund orð.“
Nú gefst Kraftsfélögum, ásamt vinum og
vandamönnum, tækifæri til að styrkja Kraft
með beinum fjárstuðningi um leið og þeir
dæla bensíni á bílinn. Á dögunum var skrifað
undir samstarfssamning við Atlantsolíu um
að Kraftsfélagar fái 4 krónu afslátt á öllum
sjálfsafgreiðslustöðvum Atlantsolíu þegar
bensíni er dælt á bílinn með dælulykli,
sérmerktum Krafti. Dælulykilinn má sækja
um á heimasíðu Krafts, www.kraftur.org og
fæst lykillinn sendur heim til viðkomandi. Ef
Kraftsfélagi er nú þegar með dælulykil frá
Atlantsolíu þá nægir að fara inn á heimasíðu
þeirra og endurræsa lykilinn til að virkja
Kraftsafsláttinn.
Starfsmenn Atlantsolía hafa reynst Krafti
vel og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir
stuðninginn. Síðari hluta árs 2009 hlupu
starfsmenn félagins til styrktar Krafti í
Reykjavíkurmaraþoninu og á dögunum
afhenti Atlantsolía Krafti hluta af söluágóða
nýrrar stöðvar sem opnuð var á dögunum í
Breidd.
Atlantsolía hyggst nú á næstunni draga
út 4 heppna Kraftsfélaga sem hafa
sótt um dælulykil og verðlauna þá með
eldsneytisúttektum.
Samstarfsaðilar
Atlantsolía er í samstarfi við fyrirtæki sem
veita dælulyklahöfum Atlantsolíu afslætti
af rekstrarvörum. Þessi fyrirtæki versla m.a.
með varahluti og rekstrarvörur fyrir bifreiðar.
(sjá einnig á www.atlantsolia.is). Einungis
þarf að sýna dælulykil til að njóta sérkjara.
örfá ráð til aðStanDenDa
KrabbaMeinSSjúKra
ný fjáröflunarleið KraftS
þú Dælir og StyrKir félagið þitt uM leið
Reykjavík
Kemi ehf 15% afsláttur
aB Varahlutir ehf 12% afsláttur
málningaVörur ehf 15% afsláttur
aÞ-Þrif ehf 25% afsláttur
gúmmíVinnslan ehf 15% afsláttur
akuReyRi
K2m ehf 15% afsláttur
gúmmíVinnslan ehf 15% afsláttur