Kraftur - 01.11.2010, Blaðsíða 2
2 KRAFTUR
STUÐNINGSFÉLAG FYRIR UNGT FÓLK SEM GREINST HEFUR MEÐ
KRABBAMEIN OG AÐSTANDENDUR
Skógarhlíð 8 / 105 Reykjavík.
Sími: 540 1915 / Stuðningssími: 866 9618
Skrifstofan er opin á mánudögum og miðvikudögum frá 9:00-16:00.
Reikningsnúmer: 327-26-112233 / Kennitala: 571199-3009
www.kraftur.org / kraftur@kraftur.org
Framkvæmdastjóri: Hulda Bjarnadóttir / hulda@kraftur.org
Stjórn Krafts: Ásta Hallgrímsdóttir, Unnur Guðrún Pálsdóttir, Árni
Gunnlaugsson, Jóhannes Þorleiksson, Harpa Víðisdóttir, Dóróthea
Jónsdóttir og Hlín Rafnsdóttir.
Ritstjóri: Hlín Rafnsdóttir, hlinrafns@gmail.com
Blaðamenn: Hlín Rafnsdóttir og Hulda Bjarnadóttir
Hönnun og umbrot: Hilmar Þór Jóhannsson / hilmartj@gmail.com
Forsíða: iStockphoto
Ljósmyndari: Matthías Árni Ingimarsson / matthias@matthiasarni.com
Annað myndefni: Christer Magnusson / Myndasafn Krafts / Úr einkasafni
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
RafRæn jólakveðja
sem styðuR gott
málefni
Kraftur býður nú fyrirtækjum að senda rafræna jólakveðju sem
sparar tíma, fyrirhöfn og er um leið umhverfisvæn. Fyrirtækin styrkja
félagið og Kraftur aðstoðar við að undirbúa útsendingu.
Sandra Oddsdóttir teiknaði jólakort Krafts í ár, hún er menntaður
prentsmiður og hefur unun af því að blanda teikningum sínum
saman við stafræna þekkingu og hefðbundnar grafískar aðferðir.
Sandra hefur hannað tvær tegundir af jólakortum og má sjá þau
dæmi hér til hliðar. Við aðstoðum við að setja lógó fyrirtækisins inn
í kúluna ef þess er óskað og fyrirtækin setja inn texta að eigin ósk.