Kraftur - 01.11.2010, Qupperneq 15
15KRAFTUR
Fullfrískt fólk þekkir það eflaust að maður getur þurft að hafa heilmikið fyrir því að líta
sómasamlega út dagsdaglega. Útlitið er stór partur af sjálfsmynd margra og við tölum um
,,bad hairday“ eða slæman hárdag. Ímyndaðu þér þá hvernig það er að vakna hárlaus, fölur,
þrútin með bjúg, ör og önnur útlitslýti sem eru oftar en ekki fylgifiskar krabbameinsmeðferðar.
Veikindin ein og sér eru erfið og því er allt vel þegið sem getur auðveldað þessa hluti.
Björg Júlíana Árnadóttir greindist með brjóstakrabbamein árið 2004 og aftur 2010. Þegar
hún greindist í seinna skiptið sendi hún bréf til Sjúkratrygginga og óskaði eftir því að nýta
hárkollustyrkinn til þess að kaupa höfuðfatnað sem hentaði henni og láta húðflúra á sig
augabrúnir og augnlínu. Reglugerð um styrki vegna hjálpartækja skilyrti að gerviaugabrúnir
og augnhár skyldu vera úr hárum. Enginn þeirra snyrtifræðinga sem Björg talaði við hafði
slíkar augabrúnir til sölu og þar að auki þurfa manns eigin augnhár að vera til staðar til
að festing sé möguleg fyrir gerviaugnhár. Eftir allmikil samskipti við Sjúkratryggingar
og Úrskurðarnefnd almannatrygginga var samþykkt að fallast á rök Bjargar á þá leið að
ekki væri framkvæmanlegt fyrir krabbameinssjúkar konur að líma á sig augabrúnir og
gerviaugnhár. Það var því ekki fyrr en formleg kæra barst þeim í hendur að málið var tekið
fyrir af alvöru. Skilyrði fyrir styrk er að húðflúrið sé gert af þeim aðilum sem hafa tilskilinn
leyfi frá landlæknisembættinu og heilbrigðiseftirliti.
Samkvæmt vefsíðunni brjóstakrabbamein.is
er mælt með húðflúri úr náttúrlegum efnum
(henna) sem hverfur smá saman á tveimur til
þremur árum. Varast skal varanlegt húðflúr við
augu því blekið sem notað er í þannig húðflúr
kann að innihalda málmkennd mólekúl sem
geta brugðist við segulmögnun. Það getur gert
MRI tölvusneiðmyndatöku erfiðari seinna meir.
Samskipti Bjargar Júlíönnu sýna okkur þau áhrif
sem vandaður málflutningur getur haft til að ná
fram breytingum til batnaðar. Nú hafa verið gerðar
breytingar á ofangreindri reglugerð nr. 1138/2008
og í grein 0630 um gervilhluti aðra en gervilimi
kemur eftirfarandi fram:
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Aukalán vegna sérþarfa
Þeir sem hafa skerta starfsorku, eru fatlaðir eða hreyfihamlaðir geta fengið
aukalán til að gera breytingar á íbúðarhúsnæði eða til að kaupa eða byggja
húsnæði vegna sérþarfa sinna. Lánið kemur til viðbótar 20 milljóna króna
hámarksláni Íbúðalánasjóðs eða öðrum fasteignaveðlánum að hámarki 20
milljónum. Einnig er heimilt að veita aukalán til forsvarsmanna þeirra sem
búa við sérþarfir.
Íslensk framleiðsla
á stílabókum og gjafaöskjum fyrir handverksfólk og verslanir
Úrval af allskonar öskjum, tilvalið fyrir handverksfókið
Stílabækur A4 og A5 fjórir litir
NÝTT
48 BL
S
Stílabækur,
stórar og litlar,
fjórir litir
Verkefna- og
úrklippubók, fjórir litir Bæjarhrauni 20 – Sími 553 8383
Veittur er styrkur til kaupa á:
• Hárkollum og/eða sér-sniðnum höfuðfötum,
gerviaugabrúnum og augnhárum, við hárleysi
vegna krabbameinsmeðferðar. Styrkur er
hámark 77.000 krónur á ári, óháð því hvort
um er að ræða hárkollur, sérsniðin höfuðföt,
gerviaugabrúnir eða augnhár.
• Gervibrjóstum og/eða sérstökum
brjóstahöldum fyrir gervibrjóst, og sérstökum
sundbolum með gervi-brjósti/gervibrjóstum
vegna brjóstmissis kvenna. Styrkur er hámark
kr. 77.000 á ári vegna missis annars brjósts og
hámark kr. 154.000 á ári vegna missis beggja
brjósta nema í fyrsta sinn. Þá nemur hann kr.
105.000 á ári vegna missis annars brjósts og
kr. 176.000 á ári vegna missis beggja brjósta.
Styrkurinn er veittur til eins eða tveggja ára í
senn eftir eðli vandans.
sPegill, sPegill
heRm þú méR
Ítarlegt viðtal birtist við Björgu Júlíönu í Tímariti hjúkrunar-
fræðinga sem kemur út í desember.
Mynd: Christer Magnusson