Læknablaðið - 01.05.1946, Qupperneq 9
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: BJÖRN
SIGURÐSSON frá Veðramóti og JÓHANNES BJÖRNSSON.
31. árg. Reykjavík 1946 5. tbl. *
^——ngaaj— II ||
Röntgenmeðferð á Cancer mamniæ.
Eftir Gísla Fr. Petersen, dr. med.
Erindi flutt á læknakvöldi í Landspítalanum í marz ’45,
nokkuð stytt.
Eins og kunnugt er, er rönt-
genmeðferð við ýmsa sjúk-
dóma enn mjög á tilraunastigi,
hvað snertir tæknileg atriði og
geislamagn. Þetta gildir ekki
sízt um illkynjuð æxli, þ. á m.
cancer mammæ sem hér er
gerður að umtalsefni. — Enn
er svo, að sumir, og þá sérstak-
lega skurðlæknar, telja að ár-
angur af skurðaðgerð verði
ekki hættur með röntgengeisl-
un. Sjúklingar fái afturkast
engu siður, þótt röntgenmeð-
ferð sé notuð, og það komi jafn
snemma. Það er því eðlilegt, að
þeir vilji losa sjúklinga sina við
þau óþægindi, fyrirhöfn og
tímaeyðslu, sem geislameðferð
hlýtur að hafa í för með sér.
Viðfangsefnið, sem leysa þvrfti,
er:
1) Verður árangur bættur með
því að nota röntgenmeðferð
jafnframt skurðaðgerð, við
cancer mammæ operabilis?
2) Á hvern hált á að haga rönt-
genmeðferðinni, sérstaklega
— á að geisla fyrir eða eftir
skurðaðgerð, eða hvort-
tveggja?
Minna máli skiptir um æxli,
sem ekki eru skurðtæk, því að
þar þykir geislameðferð sjálf-
sögð.
Hér á Röntgend. Landspítal-
ans er svo lílill sjúkbngafjöldi,
að elcki er við þvi að húast, að
neitt verulegl sé liægt að leggja
til málanna, er byggt sé á
reynzlu hér heima. En rönt-
genlæknar munu nú }Tfirleitl
þeirrar skoðunar, að geisla-
meðferð beri að nola við skurð-
læk æxli, en hinsvegar eru ekki
allir sammála um það,' hvort
beila eigi geislun fyrir eða eflir
aðgerðina. Tilhögun geislunar