Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 10

Læknablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 10
fiR L Æ K N A B L A Ð I Ð er all mismunandi á ýmsum stöðum. — Vissulega liefir með- ferð á svo algengum sjúkdómi sem cancer mammæ mikilvæga þýðingu, og því eru þessar linur ritaðar. Nýlega sá ég greinargerð í Act. Rad. ’ 12, frá fundi í Nordisk Förening för medicinsk Radio- logi, en þar var lil umræðu rönlgenmeðferð á cancer mammæ. J. Nielsen (Kpli.) liélt eindregið fram geislun fyrir skurðaðgerð, og taldi árangur áberandi betri en við geislun eftir skurð. í sama streng tóku von Bergen (Gautaborg), Ahl- bom (Stokkh.) o. fl. Prof. G. Forssell lagði áherzlu á það, að ýtrustu varfærni sé gætl við skurðaðgerð, vegna hættu á út- sæði. Hann ráðleggur i því sam- bandi að skipta um verkfæri, sem snert hafa æxlisvef eða vessa, einnig að einangra sem bezt og breiða yfir æxlisvefinn meðan á operation stendur. í því sambandi minnir hann á það, tive auðveldlega æxlis- vökvi sýki vefi við dýratilraun- ir, og það þótt um lítið magn af vökva sé að ræða. Á síðari ár- um fjölgar þeim, sem hallast að svipaðri tilliögun í röntgen- meðferðinni. Gylstorff-Petersen (Árósum) greinir frá 601 sjúkl. með cancer mammæ (Act. Rad. ’44), sem fengu röntgenmeð- ferð 1924—’36. Síðan 1941 er geislun framkvæmd þar fyrir skurðaðgerð, og telur hann það vænlegast til árangurs. Það er atliyglisvert, sem höf. segir úm meinvarp i eitlurn í liolliönd. Hjá 159 fundust engir eitlar kliniskt, en viðsmásjárrannsókn fannst þó æxlisvefur í eitlum hjá 106 þeirra, þ. e. klinisk at- liugun gaf rangar upplýsingar i 67 %. Hjá 40 sjúklirigum, þar sem engir eitlar fundust við skurð, sýndi þó smásjárrann- sókn meinvarp lijá 8 (20%). Hinsvegar fundust iðulega eitl- ar í liolhönd kliniskt eða við skurðaðgerð, en vefjarannsókn reyndist neikvæð. Það sýriist því sjálfsagt að gera ráð fyrir meinvarpi, hvort sem eitlar finnast eða ekki i axilla, og liaga meðferðinni í samræmi við það. Við geislun fyrir skurð minnkar æxlið venjulega tals- vert, og getur jafnvel liorfið á stundum. Við smásjárrann- sókn sjást útbreiddar degenera- liv breytingar i æxlisfrumun- um. Tilgangurinn með geisla- nreðferð er sá, að veikja eða eyða æxlisvefjunum, að sem mestu leyti. Við skurð síðar, er þá talið að minni liælta sé á útsæði. Auk þess eru væntan- lega lakari skilvrði fyrir æxlis- fruniur að seljast að í geisluð- um vef (Scott & Russ, ’27). Það styður og þá skoðun, að rétt sé að geisla eitlasvæðin, hvort sem meinvarp er þar eða ekki. Vegna þeirrar rýrnunar á æxlinu, sem geislameðferðin liefir í för með sér, getur það

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.