Læknablaðið - 01.02.1947, Blaðsíða 14
24
LÆKNABLAÐIÐ
sj úkdóma, einkum fibroma
plantae, periarthrosis humeri,
helodermia, induratio penis
plastica. Sambandið á milli
þeirra er óþekkt.
Það liafa verið gerðar marg-
ar vefjarannsóknir á þessum
sjúkdómi, en þó er eðli lians
óþekkt ennþá. Ekki er þarna
um bólgubreytingar að ræða,
en þetta er lieldur ekki venju-
legur örvefur. Á byrjunarstigi
sjúkdómsins liafa Janssen og
fleiri fundið ankna blóðsókn,
með nýmyndun á æðum og
aukna bandvefsmyndun. Oft
er svo mikill aragrúi af hnatt-
frumum, að myndin líkist mest
sarcomi og liefir verið villst
á þessu. En þetta er aðeins í
byrjun. Þegar lengra er kom-
ið, sést við smásjárrannsókn-
ina harður bandvefur, líkast-
ur sinum.
Sjúkdómurinn byrjar í ap-
oneurosis palmaris, í yfir-
borðslaginu, sem liggur langs-
um í lófanum og út á fingurna.
Smám saman breiðist hann
niður i hin dýpri lög sinabreið-
unnar og út á fingurna. Um
leið og sjúkdómurinn grefur sig
dýpra, umlykur liarður band-
vefur artariae og nervi digi-
talis, og þar sem þarna er mik-
ill herpingur geta æðar og taug-
ar dregizt heilli fingurbreidd til
iiliðar uppi í lófanum. Þetta
þarf að hafa liugfast við skurð-
aðgerðina. Fituvefurinn í lóf-
anum minnkar snemma og
hverfur alveg með tímanum.
Flexorsinarnar taka aldrei
þenna sjúkdóm, og er það
gagnstætt þvi, sem menn áður
hafa haldið.
Einkennum sjúkdómsins
þarf ekki að lýsa liér, þau eru
velþekkt. Þegar verst gegnir
geta verið verkir og eymsli,
sérstaklega er kvartað um
verki að nóttu til, en oftast er
2. tafla. Sjákar hendur.
Höfundur Tala Báðar liendur Hægri liönd Vinstri hönd
Keen 184 103 58 23
Anderson 39 24 10 5
Hume 118 40 57 21
Black 240 104 • 89 47
Byford 38 25 9 4
Kanavel, Koch, Mason 29 17 4 8
Meyerding 273 175 69 29
Eigin athuganir 111 53 35 23
1032 541 331 160