Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1950, Blaðsíða 6

Læknablaðið - 01.07.1950, Blaðsíða 6
50 LÆKNABLAÐIÐ milli plasma og blóðkorna vegna langvarandi stasis við blóðtökuna t. d. Cl-íona flutn- ingur frá plasma til blóðkorna við aukningu á C02 í blóðinu. Þessar staðreyndir þarf að þekkja og taka tillit til þeirra, áður en ráðist er í sjálfa blóð- tökuna, sem ekki er óþæginda- laus fyrir sjúklinginn þótt ekki sé hún stór aðgerð. Blóð þolir illa geymslu og flutning, eink- um eru blóðkornin viðkvæm og fer jafnan bezt á því að blóðið sé tekið þar sem rannsóknin fer fram, og ef rannsaka á efni í serum þá er betra að skilja það frá og senda það heldur en heilblóð, sem viðkvæmara er. Til mælingar á hæmoglobini, talninga á r„ og hv. blk. og fl. rannsókna má nota háræða- blóð, sem tekið er úr eyrna- snepli eða fingurgómi, ef rann- sóknin er gerð á staðnum, en fullt eins heppilegt er að nota venublóð, sem haldið er fljót- andi með því að láta oxalat eða citrat út í. Aðferð við blóðtöku úr eyra: 1) Eyrnasnepillinn nuddaður þangað til hann er orðinn rauður, háræðarnar víkka, blóðsókn eykst og blæðing verður örari. 2) Þvegið með alkoholi eða ether og síðan þerrað með vatnssækinni bómull. 3) Gerð rispa með flugbeitt- um mjóum hnífsoddi langs um í brúnina á eyrna- sneplinum. Til þess að nóg blæði verður rispan að vera ca. 4 mm„ djúp og ca. 4 mm. löng. 4) Fyrstu blóðdroparnir eru þerraðir með bómull og síðan er látinn myndast svo stór dropi að unnt sé að fylla pipettuna í einu. Blóðsúlan í pipettunni er látin komast rétt upp fyr- ir mælistrikið, pipettan þurrkuð vandlega að utan og síðan er blóðinu, sem umfram er, rennt varlega úr pipettunni þangað til . blóðsúlan er við strikið. Blóðinu er síðan blásið úr pipettunni í blöndunar- glasið og allt blóð skolað úr henni með því að sjúga blöndunarvökvann nokkr- um sinnum upp í hana. Vatnssækin bómull er höfð yfir stungusárinu þegar búið er að taka blóðið og á milli þess sem pipetturnar eru fylltar, og verður að þerra allt blóð vand- le°-a í burtu áður en nýr dropi er tekinn í pipettu. Ef eyrnasnepillinn er ekki nuddaður á undan blóðtöku er hætt við að lítið blæði, vegna bess að háræðarnar eru þá ekki nægilega víkkaðar. Hætt er þá við að blóðið storkni í pinettunni. Við samdrátt á háræðunum er hætt við bví að hlutfallið á milli r. blk. og plasma raskist rhlk. í vil og af

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.