Læknablaðið - 01.07.1950, Síða 7
L Æ K N A B L A Ð I Ð
51
því leiðir of háa útkomu við
talningu á þeim og mælingu á
Hb %, en öfugt verður þetta
hlutfall ef eyrnasnepillinn er
kreistur vegna þess, að vefja-
vökvi blandast þá blóðinu.
Þegar blóð er tekið úr eyra
til blóðsykursmælingar (Hage-
dorn og Jensens eða Crece-
lius-Seiferts aðferð) þarf ann-
aðhvort 0,1 eða 0,2 ml. af því
og gerir ekkert til þótt eyrna-
snepillinn sé nuddaður eða
kreistur lítið eitt. Blóðsykurs-
pipettunni er haldið lárétt eða
skáhalt lítið eitt upp á við og
blóðið látið sjúgast upp í hana
með hárpípukrafti. Eyrnasnep-
illinn er nuddaður lítið eitt eða
kreistur til þess að örfa blóð-
rás, Verður að gæta þess að
kreista ekki of fast og sleppa
takinu á milli, til þess að blóð
geti runnið fram í eyrnasnepil-
inn. Ef þetta er vanrækt vill
oft ganga ótrúlega illa að ná
nægu blóðmagni úr eyranu.
Úr fingurgómi má taka svip-
að blóðmagn og úr eyra og er
aðfn"Ö n > 'böruðatvifiiTm gú
sama. Aðgerðin er heldur sár-
ari og infectionshætta talsvert
meiri og er því jafnan betra að
taka heldur blóð úr eyrna-
snepli. Til þess að örfa blóðrás
fram í fingurgómana má láta
sjúklinginn halda hendinni
nokkrar mínútur í vel volgu
vatni og þerra hendina vand-
lega áður en stungan er gerð.
Ef nota þarf meira blóðmagn
til rannsóknar verður að taka
það úr bláæð með ástungu.
Til þess eru notaðar fremur
víðar, stuttar holnálar með
stuttum beittum oddi (vene-
punctionscanylur). Holnálar,
sem ætlaðar eru til inndælinga
undir húð eða í vöðva eru ó-
heppilegar, vegna þess að þæi
eru of grannar og vill því blóð-
ið storkna í þeim eða að þær
bogna og ganga þá fljótt úr
sér. Ef oddurinn er langur er
hættara við hæmatomum og ef
nálin bítur illa gengur ver aö
hitta á æðina og stungan verð-
ur sárari en ella.
Nálarnar eiga að vera þur-
dauðhreinsaðar með því að
hita þær í 3 klst. við 140°C,
Óheppilegri eru nálar, sem
hafa verið soðnar í vatni eða
geymdar í alkoholi og eru
rakar, vegna þess að þá bland-
ast vökvinn í þeim blóðinu og
af því hlýzt nokkur hæmo-
lysis. Til þess að forðast það
verður að láta fyrstu blóð-
dropana renna í burtu og
fleyo'ia því blóði, Nálar, sem
geymdar hafa verið í alkoholi,
eru vitanlega óhæfar til þess
að taka með blóð, sem ætlað
er til alkoholmælingar.
Ekki er heppilegt að eldbera
blóðtökunálar. Vilja þær þá
skjótt verða bitlausar.
Blóðtökunálarnar þarf að
skola, eftir hverja notkun, 1
rennandi vatni og síðan alko-
holi eða ether áður en þær eru