Læknablaðið - 01.07.1950, Side 8
52
LÆKNABLAÐIÐ
þurkaSar og dauðhreinsaðar.
Það borgar sig illa að van-
rækja þetta því þá stíflast
nálarnar og blóðið, sem eftir
situr í þeim, harðnar svo, að
ógerningur er að hreinsa þær.
Blóðið er ýmist tekið í glös
eða dælu og skal jafnan leitazt
við, ef taka þarf blóð til
margra rannsókna, að það sé
allt tekið í einu, til þess að
ekki sé verið að margstinga
sjúklinginn., Ef blóðtakan er
rétt undirbúin er oftast hægt
að koma því við.
Blóðglösin eru ýmist skil-
vinduglös eða tilraunaglös. Ef
vinna skal serum eða plasma
úr blóðinu svo nokkru nemi
verður að taka það í hæfilega
stórt skilvinduglas. Má gera
ráð fyrir að úr hverjum ml. af
blóði fáist hálfur ml. af serum
eða plasma.
Venjulegustu tegundir glasa
eru þessar:
1) Wassermannsglös: 100x10
mm taka 5—10 ml. (sívöl
með ávölum botni).
2) Stór skilvinduglös: 20x95
mm taka 25 ml. (sívöl með
ávölum botni).
3) Lítil skilvinduglös: 10x110
mm taka 15 ml. (keilulaga,
dregin fram 1 odd)„
4) Lítil tilraunaglös: 8x50
mm, taka 3—4 ml.
5) Venjuleg hettuglös: taka
10 eða 25 ml. (t. d„).
6) Venjuleg tilraunaglös,
taka 20—25 ml,
Glös sem notuð eru undir blóð
þurfa að vera hrein og þurr.
Blóðið er tekið úr yfirborðs-
æð, oftast í reg. cubiti eða á
framhandlegg.
Inspectio: Reg. cubiti at-
hugaðar á báðum handleggj-
um og þeim megin sem yfir-
borðsbláæðar virðast gildari,er
mjúkri 5—6 mm gildri gúmmí-
slöngu brugðið um upphand-
legginn með lykkju, sem gerð
er á annan endann og fest und-
ir hinn, svo auðvelt sé að losa
slönguna með einu handtaki.
Lykkjan er höfð lateralt á
handleggnum en medialt ligg-
ur slangan slétt.
Við þetta kemur fram blóð-
rásarhindrun (stasis) í fram-
handleggsvenunum og ef sjúkl,
er látinn rétta úr handleggnum
og kreppa hnefann nokkrum
sinnum þá fyllast æðarnar af
blóði og koma þá oftast vel í
ljós. í stað gúmmíslöngu má
nota blóðþrýstingsmæli til þess
að fá stasis. Er þá dælt lofti í
gúmmíhólk hans upp í 70—80
mm. hg„þrýsting. Áður en stasis
er gerð skal hafa allt tilbúið til
ástungunnar„
Bezt er að stasis sé sem allra
minnst og stytzt og er þá ann-
að hvort að framkalla alls ekki
stasis eða losa gúmmíslönguna
eftir að nálin er komin inn í
æðina, en þá verður að nota
dælu við blóðtökuna (þegar
tekið er blóð til C02 og C1
mælingar).