Læknablaðið - 01.07.1950, Síða 10
54
L Æ K N A B L A Ð I Ð
heppilega æð á framhandlegg,
má reyna annars staðar, t„ d.
á handarbaki, fótlegg eöa rist.
Anaerob blóðtaka er gerð
þegar hindra þarf aðgang and-
rúmsloftsins. Blóðið er þá tek-
ið í 10—20 ml. dælu með langri
holnál. í dælunni eru hafðir
1—2 ml. af parafínolíu (paraf.
liq.) og nálin er einnig fyllt af
henni. Við ástunguna er stasis
höfð sem allra minnst og
skammvinnust og verður að
gæta þess að ekkert fari af
parafínolíunni inn í æðina,
vegna emboli-hættu. í stóru
skilvinduglasi er haft lítið eitt
af parafínolíu og ef til vill einn-
ig efni til þess aö hindra
storknun. Þegar búið er að ná
blóði í sprautuna er nálarodd-
inum stungið í botn glassins
og sprautan tæmd og verður þá
blóðið undir parafínolíunni 1
glasinu. Ef notuð eru anti-co-
agulantia verður að láta hæfi-
legt magn þeirra í glasið áður
en. blóðiö er tekið og hræra í
blóðinu með nálinni eftir að
búið er að koma því í glasið. Ef
senda þarf blóðið, verður að
fylla glasið af parafínolíu og
láta þéttan tappa í. Til þess að
ná öllu lofti úr glasinu er hol-
nál stungið milli glasbarmsins
og tappans meðan verið er að
koma honum í. Betra er þó að
bræða dálítið af parafíni
(parafinum solidum) og hella
því yfir olíulagið. Ekki má það
dragast lengi að senda blóðið
og bezt að sem allra skemmstur
tími líöi milli blóðtöku og
rannsóknar.
Við rannsóknir á blóðinu er
ýmist gerð athugun á serum,
plasma eða heilblóðL Ef rann-
saka á serum, verður að skilja
það frá, eftir að blóðið hefir
storknað í glasinu. Ef senda
þarf serum til rannsóknar er
betra að hafa skilið það frá
heldur en að senda blóðið
sjálft. Úr hverjum 10 ml. af
blóði má vinna allt að 5 ml. af
serum, en til þess þarf að hafa
góða skilvindu með 2500—3000
snún.hraða á mínútu„ Þegar
blóðið er orðið vel storknað er
blóðkökkurinn losaður varlega
frá glasbörmunum með hnífs-
oddi eða glerstaut, glasið sett í
skilvindu og skilið í 10—15
mínútur. Serum er síðan sogið
ofan af með augnpípettu og
sett í annað glas. Serum-
vinnslan gengur venjulega bet-
ur ef blóðið hefir staðið nokkr-
ar klukkustundir áður en skil-
ið er.
Til þess að fá plasma eða
halda blóðinu fljótandi verður
að bæta sérstökum efnum út
í blóðið og blanda þeim vand-
lega saman við það. Efni þessi
eru ýmist höfð ómenguð eða í
upplausnum- Sameiginlegt
með þeim er það að þau hindra
coagulatio sanguinis. Gæta
verður þess að þau séu höfð 1
réttum hlutföllum við blóðið.
Helztu anticoagulantia eru: