Læknablaðið - 01.07.1950, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ
55
1) Kalium oxalat (K2C204,
H20). Natrium oxalat (Na2-
C204). Hæfilegt er aS nota af
þeim 2—3 mg. í hvern ml. af
blóði, 0,1—0,2 ml. af 3% upp-
lausn eða 2 dropa (miðaö við
normal-dropastærð). Ef efnin
eru notuð hrein,er bezt að hafa
þau fínmulin, og er hæfilegt
að taka rétt framan á mjóan
hnífsodd í ca. 3—4 ml. af blóði.
Flestum hættir til að nota allt
of mikið af oxalati og sulla því
út í blóðiö af handahófi í stað
þess að láta það í glasið áður
en blóðið er tekið. Réttast er
að mæla hvorttveggja ná-
kvæmlega, blóð og oxalat. Með
því móti verða hlutföllin ætíð
rétt.
Oxalatglös: Þægilegt er að
hafa til taks nokkur glös með
Na- eða K-oxalati. Af 3% upp-
lausn er tekið hæfilegt magn
eftir stærð glassins og þess
blóðmagns, sem taka á í
það síðar. Má t. d. mæla
með pípettu eða dælu ákveðið
rúmmál, gera merki eða rispu
í glasið, mæla síðan oxalat-
upplausnina, leggja glasið á
hliðina og velta því nokkrum
sinnum á hliðinni á borði og
láta upplausnina síðan þorna
upp í glasinu. Þegar vatnið er
gufað burtu, situr saltið eftir
innan á glasinu, og blandast
auðveldlega blóðinu er það
rennur í glasið. Gott er að hafa
glerperlu í glasinu, það flýtir
mjög fyrir að blöndunin verði
fullkomin. K- eða Na-oxalat
má alls ekki láta út í blóð, sem
ætlað er til K, Na eöa Ca-mæl-
inga.
1.3% natriiunoxalatuppl.
er nokkurn veginn isoton og
má nota hana í hlutfallinu
1 + 9.
2) Natrium citratupplausn-
ir (Ph. dan): 3,7—3,8% uppl.
er notuð þegar tekið er blóð-
sökk í hlutfallinu 1+4.
Við aðrar rannsóknir t. d.
frumutalningar o. fl. er notuð
3% uppl.
3) Heparin: Af því nægir 0,2
mg. 1 1 ml. af blóði.
Heparinglös: í 10 ml„ glas er
hæfilegt að láta 0,1 ml. (2 dr.)
af 2% heparinuppl. og láta það
þorna í glasinu.
4) Hiruidin: Af því þarf ca.
0,2 mg„ 1 1 ml.
Natriumfluorid er sett sam-
an við blóð, sem senda þarf til
blóðsykursmælingar, til þess
að hindra glycolysis og er mátu
legt að hafa 10 mg. af því í 1
ml. Auk þess er haft 2—3 mg.
af K- eða Na-oxalat dufti. Þeg-
ar blóð er sent til rannsóknar
skal hafa það í vel fylltum,
vandlega lokuðum glösum með
þéttum kork eða gúmmítappa
(ekki bómull), einkum verður
að gæta þess þegar rannsaka
skal alkohol. Glösin verða bezt
varin hnjaski ef utan um þau
er haft hylki úr pappa, tré eða
málmi, Glösin eiga að snúa
rétt í flutningi.