Læknablaðið - 01.07.1950, Blaðsíða 16
60
LÆKNABLAÐIÐ
íslands hálfu tilnefnd sem
svæðisvinnustofa fyrir ísland.
Hér verður stuttlega sagt
frá fyrsta influenzufaraldrin-
um, sem upp kom hér á landi,
eftir að til þessarar alþjóðlegu
samvinnu var istofnað.
í október 1948 kom upp in-
fluenza samtímis víðsvegar um
eyna Sardiníu. Þaðan barst
hún til meginlandsins, fyrst
til Ítalíu, síðan til Frakklands,
Sviss og Niöurlandanna. í
Frakklandi fannst hún fyrst í
byrjun janúar 1949. Fyrstu in-
fluenzusjúklingarnir hér á
landi í þessum faraldri munu
hafa verið skráðir á Keflavík-
urflugvelli um og eftir 20. jan-
úar. Um svipað leyti komu
upp nokkur tilfelli í Þingeyrar-
héraði. Var talið, að til beggja
þessara staða hefði influeuzan
borizt beint frá útlöndum.
Skömmu seinna barst svo in-
fluenzan til Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur að því er virðist
enn að nýju frá útlöndum. Á
töflu 1 má sjá influenzutilfell-
in eins og þau voru skráð á
öllu landinu. Þau héruð, sem
ekki eru tekin með í töflunni,
skráðu ekki influenzusjúklinga
í þessum faraldri.
Það er athyglisvert um þenn
an faraldur, hversu lengi hann
stóð yfir. Hann byrjaði seint í
janúarmánuði og má segja, að
hann hafi enzt út júní. Þetta
mun vera óvenjulegt um influ-
enzufaraldra og t. d. mjög ó-
líkt faraldrinum í Reykjavík
1943, sem lauk sér alveg af á
5 vikum. Annað atriði, sem er
athyglisvert um þennan far-
aldur, er að á nokkrum stöð-
um komu af honum tvær bylgj-
ur og varð algjört eða nær al-
gjört hlé á milli. Þetta á við
um Keflavíkurhérað, um Þing-
eyrarhérað og að nokkru leyti
um Ólafsvíkurhérað. Héraðs-
læknirinn í Þingeyrarhéraði,
Kolbeinn Kristófersson, skýr-
ir frá því í bréfi til landlæknis,
að báðar þessar bylgjur megi
rekja til Reykjavíkur. Fyrri
bylgjan náði aðallega til nokk-
urs hluta héraðsins og alllöngu
eftir að hún dó út, barst sýk-
ingin að nýju frá Reykjavík og
byrjaði seinni bylgjan í þeim
hluta héraðsins, sem hafði
sloppið í fyrra skiptið, þótt hún
næði síðar einnig inn á Svæði,
sem fyrri bylgjan hafði herjað,
og tók jafnvel eitthvað af fólki,
sem sýkzt haföi í fyrri bylgj-
unni.
Seint í febr. voru hafnar til-
raunir til þess að grafast fyrir
um orsök þessa faraldurs*), og
þá fyrst og fremst til þess að
einangra virus frá sjúklingum.
Alls voru prófuð hálsskolvötn
frá 10 sjúklingum, 5 frá Hafn-
arfirði og 5 frá Reykjavík. Tafla
2 gefur nokkrar upplýsingar
*) Rannsókn þessi var gerð að
tilhlutan héraðslæknisins i Reykja-
vik og sýnishornum safnað á hans
vegum.