Læknablaðið - 01.07.1950, Blaðsíða 18
62
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla 2.
Tafla um sjúkling'a, sem reynt var að einangra virus frá.
Nr. Sjúkling ur Hei mili Dags. Virus[ Sjúk. dagur Hiti hæstur
1 K. J. M. <7 Hafnarfirði 23.2 0 4
2 A. Ó. ? Hafnarfirði 23.2 R 1 4
3 S. Þ. ? Hafnarfirði 23.2 0 8
4 Ó. G. ? Hafnarfirði 23.2 0 10
5 T. M. <? Hafnarfirði 23.2 0 7
6 B. S. ? Reykjavik 9.3 R 3 2 38.5°
7 M.N. <7 Reykjavik 16.3 0 4 38-39°
8 B. Þ. <7 Rey kjavík 16.3 R 2 4 um 87.2°
9 E. J. <7 Reykjuvík 24.3 R 4 4 um 39°
10 G. S. c? Reykjavik 24.3 0 2 38,5°
hænsnafóstrum. Hálsskolvatn-
iS hafði áður verið blandað
penicillini svo að svaraöi til
500 til 1000 eininga í ml af
vökva. Eggin voru því næst
geymd í fjóra daga við 35° hita
á Celsius, þá var amnion-vökv-
inn hirtur og leitað að virusi í
honum með agglutinations-að-
ferö Hirsts. Ef ekki fannst vir-
us, var vökvanum aftur dælt á
sama hátt inn í amnion eggja-
fóstra, og fimm dögum síðar
leitað að agglutinini í þeim. Ef
ekki fannst virus í annarri at-
rennu, var ekki leitað frekai'.
Við serologisk próf reyndist
enginn hinna þriggja nýein-
angruðu stofna svara til klass-
isku influenzuvirus-stofnanna
A, B eða svína-virus, en hins
vegar virtust þeir vera sam-
kynja innbyrðis.
Seint í marz/sendum við þrjá
af stofnum okkar til miðstöðv-
arinnar í London, og þar voru
þeir bornir saman við influ-
enzustofna, sem fundizt höfðu
á meginlandi Evrópu í far-
aldrinum skömmu áður um
veturinn. Það kom í ljós, að
stofnar okkar voru nákvæm-
lega samkynja stofnum, sem
fundizt höfðu í Frakklandi og
Hollandi skömmu áður. Þessir
stofnar eru taldir afbrigðilegir
A-stofnar, jafnvel þótt þeir
sýni lítinn sem engan skyld-
leika við hinn klassiska A-stofn
PR8.
Með einangrun þessara vir-
usstofna úr faraldrinum hér á
landi, og samanburði á þeim og
virusstofnum, sem fundizt
höfðu í sama faraldri annars
staðar, var náð höfuðtilgangi
rannsóknanna að þessu sinni.
Eigi að síður var gerð til-
raun til að mæla hækkun á
mótefni í blóði 14 sjúklinga