Læknablaðið - 01.08.1950, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ
83
um ætti að hvetja til rann-
sóknar á colon þar fyrir ofan.
ViS sigmoidoscopi er hægt að
sjá allar lesionir, sem hægt er
að ná til með fingri, og ýmsar
þar fyrir ofan. Sigmoidoscopia
er einhver mikilvægasta rann-
sókn á colon, sem hægt er að
gera, og ætti að vera miklu
meira notuð en er. Við ger-
um sigmoidoscopiu reglulega
og án nokkurs undirbúnings
og í flestum tilfellum nægir
það, en ef faeces eru til hindr-
unar, er vatnspípa 6 klst. fyrir
skoðun bezti undirbúningur-
inn.
Sjúklingarnir eru látnir vera
á hnjám og bringu, og venju-
lega er þá auðvelt að koma
sigmoidoscopinu upp í colon
sigm , ef ekki eru bólgur né
óvenjuleg lega á colon til hindr-
unar.
Ég vii nú leggja áherzlu á
endurtekna sigmoidoscopiu ef
fyrsta skoðun hefir ekki verið
fullnægjandi. Fyrir mörgum
árum kom roskin kona til mín
og kvartaði um að blóð kæmi
með hægðum. :Hún var með
stóra gyllinæð. Proctoscopia
var ekki fullnægjandi, vegna
þunnra hægða og var endur-
tekin, en þá sáust 3 polypar
efst í rectum. Ekkert blæddi úr
þeim en blóðlituö faeces sáust
þar fyrir ofan Við þriðju skoð-
un, eftir að ristillinn hafði ver.
ið vel hreinsaður, sást lítið, en
illkynja sár neðst í colon sigm.’
sem var síðar skorið burt, og
sjúklingurinn hefir verið viö
góða heilsu síðan í meira en 10
ár. í þessu tilfelli voru þrír
möguleikar fyrir rectal blæð-
ingu. Ef tveir þeir fyrstu hefðu
verið látnir nægja hefði þetta
ehdað með skelfingu fyrir
sjúklinginn. Það virðist full á-
stæða til að leggja áherzlu á
þetta og hafa í huga, að 80%
af ca. coli er hægt að sjá við
sigmoidoscopiu í fyrsta sinn,
er sjúklingurinn kemur til
skoðunar..
Röntgen-rannsókn er einnig
mikilsverð, og innhelling
langtum áreiðanlegri en pas-
sage-myndir sem heldur lítið
er upp úr að leggja. Þetta er
bæði af því að ristillinn fyllist
langtum betur við innhellingu'
og að hægt er um leið að sjá
hvernig kontrast-efnið rennur
um hann, en rétt er að minn-
ast þess að sum tilfelli af ca,
er varla unnt að sjá á mynd-
um sérstaklega þau, sem in-
tussuception fylgir og ég man
eftir mörgum tilfellum þar sem
ómögulegt var að sjá defect á
röntgenmyndum, þó aö allstór
tumor væri til staðar. Rétt er
að geta þess að þegar um ob-
struction er að ræða, getur
passage eða barium enema
stundum verið hættulegt
Aðgreining á cancer og
diverticulosis coli.
Diverticulosis kemur fyrir 1