Læknablaðið - 01.10.1952, Síða 9
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: JÚLÍUS
SIGURJÓNSSON og ÞÓRARINN GUÐNASON.
37. árg. Reykjavík 1952 1. tbl. '
Aldursskipting sjjii klinga í
Vífilsstaðahæli 1910—1950
Erindi flutt í L. R. í janúar 1952*)
€ft ir Ofaf Cjeiriion,
Heilsuhælið á Vífilsstöðum
hóf starf sitt 1910, og var fyrsti
sjúklingurinn skráður þar þ.
5. sept. Fram til ársloka 1910
komu í hælið 49 sjúklingar,
allir innan fimmtugs. Aldurs-
skipting þeirra var ekki frá-
brugðin þvi, sem gerðist fyrstu
árin þar á eftir, og er þessum
sjúklingum sleppt, en athuguð
aldursskipting þeirra sjúk-
linga, 15 ára og eldri, er komu
í hælið á fjórum næstu 10 ára
tímabilum á eftir, þ. e.: 1911
—’20, 1921—’30, 1931—’'40 og
1941—’50.
Barnadeild starfaði í Vifils-
slaðahæli 1921 til 1938, en var
þá lögð niður. Fjöldi barna, á
áðurnefndum tímabilum, er
því mjög misjafn og ósam-
*) Nokkuð stytt.
bærilegur frá einu tímabili til
annars, og s. 1. áratug má heita
undantekning að börn hafi
verið vistuð í hælinu. Hér verð-
ur því ekki rannsökuð aldurs-
skipting barna, heldur einung-
is þeirra, sem eru 15 ára gaml-
ir eða eldri.
Aldur sjúklinganna er mið-
aður við komudag. Sjúklingar,
sem koma í hælið oftar en einu
sinni, eru skráðir í sörnu
sjúkraskrá, ef þeir konta aftur
á samá ári, og verða því ekki
tvitaldir eða margtaldir, nema
]ieir komi aftur á öðru alman-
aksári en áður.
Ég hef athugað aldursflokk-
un karla og kvenna hvors í
sínu lagi ár hvert, en síðan
slegið þeim saman í 10 ára
tímabil, til þess að fá liærri
tölur. Linurit yfir aldur karla