Læknablaðið - 01.10.1952, Blaðsíða 10
2
LÆKN ABLAÐIÐ
og kvenna á sömu árabilum ástæða til að halda kynjunum
urðu svo lík, að ekki virtist aðgreindum.
Tafla I.
Aldursskipting sjúklinga 191L—1950.
Aldur 15—19|20—24|25—29 30—34 35—39 40—44 45—49 50—54 55—59 yfir 60 Alls
1911—’'20 226 294 230 132 99 64 32 17 5 1 1100
% 20,55 26,73 20,91 12,00 9,00 5,82 2,91 1,55 0,45 0,09
1921—’30 244 393 311 170 115 58 37 19 7 3 1357
% 17,98 28,96 22,92 12,53 8,47 4,27 2,73 1,40 0,52 0,22
1931—’40 203 366 244 161 128 84 41 29 12 9 1277
% 15,89 28,66 19,11 12,61 10,02 6,58 3,21 2,27 0,94 0,70
1941—’50 241 344 275 207 119 121 63 53 40 32 1495
% 16,12 23,01 18,39 13,85 7,96 8,09 4,21 3,55 2,68 2,14
Fyrsta tafla sýnir aldurs-
skiptingu karla og kvenna
samanlagt 1911—1950, skipt í
4 áratugi. Þar eð tölurnar eru
allháar, hef ég leyft mér að
flokka aldurinn í 5-ára bil.
Samanhurður á árabilunum
sýnir, að nokkur hreyting hef-
ur orðið i aldursskiptingunni,
og er einlcum síðasti áratugur-
inn, 1941—’50, frábrugðinn
hinum.
f fyrsta aldursflokki, 15—19
ára, eru frá 20,55%, 1911—’20,
og niður í 15,89%, 1931—’40.
Sé um raunverulega lækkun
að ræða, byrjar hún á tímabil-
inu 1921—1930. Aldursflokk-
urinn20—24 ára er mannflest-
ur öll tímabilin og mjög svip-
aður þrjá fyrstu áratugina eða
26,73%—28,96%, en nokkru
lægri siðasta tímabilið, 1941—
’50, þá rúmlega 23%. Aldurs-
flokkarnir frá 25 ára og allt
fram undir fimmtugt breytast
lítið eða ekki teljandi. T. d. eru
30—34 ára 12% 1911—’20, og
13,85% 1941—’'50, og hin ára-
bilin liggja þar á milli (12—
13%). Hærri aldursflokkarnir,
50 ára og eldri, breytast heldur
ekki verulega tvo fyrstu ára-
tugina, liækka nokkuð 1931—
’40, en síðasti áratugurinn
stingur mjög í stúf við liina,
og ber hvað mest á fjölgun þar
í síðasta aldursflokki, 60 ára
og eldri. f þeim flokki er að-
eins einn sjúkl. allan áratug-
inn 1911—’20, (0,09%), en 32
sjúkl. (2,14%) 1941—’'50.
Elzti sjúklingurinn kom í
hælið 1943, karlmaður 82 ára.
Sjúklingafjöldinn, sem hér
um ræðir, er samtals 5229.
Fyrsta línurit er gert sam-
kvæmt 1. töflu til gleggri sam-
anburðar á áratugunum.
Það er kunnugt, einkum af
rannsóknum dr. Sigurðar Sig-
urðssonar,1) og á það bent í
doktorsritgerð hans, að berkla-
smitunin á sér stað síðar á æfi