Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1952, Page 23

Læknablaðið - 01.10.1952, Page 23
LÆKNABLAÐIÐ 15 einkum að þvo hendur sínar, sjálfur var hann til fyrirmyndar um slíkt í starfi sínu og snyrli- legri umgengni. Hann var jafn- an glaður og reifur heim að sækja þrátt fyrir margskonar erfiðleika, vonbrigði og mis- skilning, sem við læknar förum sjaldan varhluta af, en hann var líkur gullinu, sem skírist í eld- inum: hinir miklu kostir hans komu æ betur og betur í ljós með aldrinum, hann reyndi að koma sem víðast fram til góðs. Ölafur Lárusson var heilsu- hraustur um dagana og seiglan virtist óbilandi, hann þakkaði það kjarngóðu uppeldi á Vatns- leysuströndinni, en fyrir 2—3 árum kendi hann þvagtregðu (hypertrofia prostatae) og kvið- slits báðu megin og var hann skorinn í Landspítalanum við þessu öllu í einu. Hann þoldi aðgerðina vel og var hinn liress- asti á eftir og fór til Danmerkur sér til upplyftingar, en um líkt leyti tók meinsemd í andlits- beinum að grafa um sig og hefir nú þessi illkynjaði sjúkdómur lagt hann að velli. Eitt sinn skal hver deyja, og sjálfsagt er okkur læknunum ekki vandara um en öðrum, þó mundu það flestir mæla, að ekki hafi verið valið af betri endan- um dánarmeinanna handa Ólafi Lárussyni, og ekki þarf að ætla að hann hafi farið í grafgötur um sjúkdóm sinn því að fyrir rúmu ári sagði hann við mig, að hann mundi verða sinn ban;, en hitt jafnvíst að hetjulund sú, er hann sýndi í þessum ægilega sjúkdómi, var honum og hverj- um öðrum lækni samboðin. Ólafur Ó. Lárusson kvæntisl 24. nóv. 1906 Sylviu Nielsinu Guðmundsdóttur útvegsbónda og kaupmanns að Stóru Háeyri á Eyrabakka. Þeim varð 10 barna auðið og eru 9 á lífi. -— Mikill harmur er kviðinn að þeim við fráfall hins ágæta föð- ur og eiginmanns. Vér collegar Ólafs hér kveðjum hann með þakklæti og söknuði. Vestmannaeyjum 5. okt. 1952 E. Guttormsson. Aðalfuiidiir Læknafél. íslands 12.-14. júní 1952 Fundarstjórar voru þeir Baldur Johnsen og Jón Steffen- sen, en fundarritarar Ólafur P. Jónsson og Ólafur Bjarnason. Fundarsókn var ekki mikil, t. d. komu engir læknar frá Norðurlandi austan Blönduóss eða Austurlandi og frá Suður- landi austan Hellisheiðar að- eins einn. Frá Mið-Vesturlandi komu fjórir læknar, Vestfjörð- um einn, Norðvesturlandi þrir. Suðurlandi (utan Reykjavíkur- svæðisins) einn og Vestmanna- eyjum einn, allt héraðslæknar.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.