Læknablaðið - 01.02.1953, Blaðsíða 20
96
LÆKNABLAÐIÐ
*
Ur erl. læknaritum
Erythromycin.
Nýtt lyf hefut' enn bæt/t í hóp
mycinanna og nefnist erythromy-
cin eða „ilotycin“, unnið úr strepto-
myces erythreus.
Erythromycin er lútarkennt efni,
og leysast 2 mg. í hverjum ml. vatns.
Það er miklu áhrifameira í lútar-
kenndum en súrum vökva.
Gram-positivir sýklar eru næmir
fyrir lyfinu, einnig neisseria og'
hæmophilus. Hæmolytiskir keðju-
sýklar mjög næmir, en klasasýklar
nokkru minna. Corynebacteria þola
ákaflega illa erytliromycin, hins
vegar er það áhrifalaust á coli.
Erythromycin getur komið að góðu
gagni á sýkla, þótt þeir standist
önnur antibiotica.
Dagsskammtur er 1—3 gr., og lyf-
ið er gefið á 3.—G klst. fresti.
(Úr. Brit. Med. Journal, 15. nóv.
1952, yfirlitsgrein).
Ó. G.
Embættispróf í lækrtis-
fræði
í jan. 1953.
Davíð Davíðsson, f. í Reykjavík
7. nóv. 1922. Foreldrar: Davíð Jóns-
son, lögregluþj. og Kristin Guð-
mundsdóttir k. h. Einkunn I, 163%.
Gunnar Kvale, f. í Osló 3. marz
1923. Foreldrar: Ivar Andreas Kvale
stórkaupm. og Marie kvale k. h.
Einkunn I, meðaltal 10% stig (í próf-
greinum siðasta hluta og meina-
fræði. Lauk prófi í efnafræði, 1.
hluta og' lyfjafræði í Svíþjóð með
I. einkunn).
Halldór Arinbjarnar, f. á Gunn-
fríðarstöðum á Ásum 4. sept. 1920.
Foreldrar: Kristján Arinbjarnar
læknir og Guðrún Arinbjarnar k h.
Einkunn I, 160%.
Krú #./.
Alþjóðaráðstefna um
gigtarsjúkdóma.
(Internat. Congress of Rheumatic
Diseases) verður haldin í Genf 24.
—28. ágúst 1953.
L. í. liefur borizt tilkynning um
ráðstefnu þessa frá dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu með ósk um, að
tilkynnt verði liið allra fyrsta, hvort
íslenzkir læknar liyggjast sækja ráð-
stefnuna.
Frá Alþjóðalæknafélaginu (WMA)
hefur L. í. borizt tilkynning um að
Nassau Hospital, Mineola, New
York, gefi erlendum lækni kost á
að starfa þar sem „Fellow in Ortho-
pedics“ frá 6. okt. 1953 (væntan-
lega um eins árs skeið). Kjör: Fæði,
húsnæði og 50 í? á mánuði.
Nánari upplýsingar gefur stjórn
L. í.
JYt/ir tannlaiEinaw
Heilbrigðismálaráðuneytið hefir
liinn 3. og 6. júní 1952 gefið út leyf-
isbréf handa Hauki Clausen, Ólafi
P. Stephensen og Grimi M. Björns-
syni, til þess að mega stunda tann-
lækningar liér á landi. Þeir luku ail-
ir prófi í Tannlæknaskóla íslands í
vor.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er L Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.
Félagsvrentsmiðjan h.f.