Læknablaðið - 01.04.1954, Page 10
68
LÆKNABLAÐIÐ
tölur frá hinum Norðurlönd-
unum eru sennilega ekki sam-
bærilegar við okkar tölur, þar
eð þau virðast hafa haft
þrengra blinduhugtak en við.
og miða sínar tölur meira við
áætlanir en við höfum gert.
1 Bandaríkjunum er áætlað
1950 að um 260.000 manns séu
blindir þar í landi eða nálægt
1,7%0 landsmanna og að um
22.000 bætist þar við hóp hinna
blindu á hverju ári (5).
Prestar landsins liafa und-
anfarna áratugi skráð blint
fólk á manntalsskýrslur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá bisk-
upsritara, skrá þeir yfirleitt að-
eins þann blindan, sem er
steinblindur eða hefur aðeins
skímu. Samkvæmt manntölum
(6) voru
árið 1890 um 3,8%0 blindir af landsmönnum
— 1910 — 3,6%0
— 1920 — 4,1 %o
— 1930 — 3,4%o
_ 1940 — 3,1 %0
— 1950 — 3,0%o
Árið 1950 er Reykj avík og
Akureyri ekki með talin á
hlindraskýrslum prestanna og
var því tekið tillit til þess, er
hlutfallstala hlindra fyrir þetta
ár var reiknuð út.
Sjálfsagt eru þessar skýrslur
hvergi nærri nákvæmar, eink-
um hvað stærri kaupstaðina
snertir, og þá helzt Reykjavík.
en þær gefa þó dágóða hug-
mynd um blinduna hér á landi
undanfarna áratugi. Þessi tafla
sýnir okkur, að í rúma hálfa
öld hefir hlutfallstala blindra
nærfellt staðið í stað. Við fyrstu
athugun virðist manni þetta
furðulegt, þar sem nágranna-
þjóðir okkar hafa stórkostlega
lækkað blindratölu sína á und-
anförnum áratugum og að á
íslandi er almennt ástand i
heilbrigðismálum litið eða
— (alls 305)
_ (_ 387)
— (- 371)
— (— 379)
— (— 252)
ekkert lakara en í nágranna-
löndunum. En hér er það hin
illkynja glákublinda, sem aðr-
ar þjóðir hafa ekki eins við að
stríða, sem orsakar stöðugt
þessa háu blindratölu. eins og
síðar skal vikið að. Og þegar
athugað er, að blinda af þess-
ari orsök gerir ekki vart við
sig fyrr en á efri árum og hlut-
fallslega fleiri ná háum aldri
nú en áður, þá henda þessar
tölur þó á nokkra framför.
Tafla 1 sýnir skiptingu
blindra eftir aldri og kyni og
eru 243 karlar (56%) og 191
kona (44%) blind hér á landi.
Ef tafla 1 og 2 eru hornar sam-
an, sést að blind börn hafa
mjög svipaða hlutfallstölu á
íslandi og Englandi. Á síðast-
liðnum 2—3 áratugum hafa
Englendingar lækkað blindra-