Læknablaðið - 01.04.1954, Page 18
76
LÆKNABLAÐIÐ
r?
ferðar. En þessar ferðir koma
þó að miklu gagni, þvi að á
hverju ári finnast fleiri eða
færri nýir glákusjúklingar,
sem vart liefðu annars fundizt
nægilega fljótt. Einnig er í
þessum ferðum liaft eftirlit
með gömlum glákusjúklingum,
sem gerð hefur verið aðgerð
á. Hin stöðuga liáa blindratala
af völdum gláku sýnir þó, að í
þessum ferðum finnast ekki
nógu margir með sjúkdóminn
á hyrjunarstigi. Til þess að ná
til sem flestra glákusjúkra í
tíma, væri æskileg skipulögð
leit meðal allra eftir 60 ára
aldur á vissu millibili. Hvern-
ig þetta skal framkvæmt á sem
hagkvæmastan hátt, skal ekki
rætt að sinni, en væri þessi
leið farin, mundi glákan
oftast finnast á byrjun-
arstigi og það auðvelda mjög
lækningu hennar. Þykir rétt í
þessu samhandi að minna á,
að eftir þvi sem árin líða kom-
ast fleiri og fleiri í eldri ald-
ursflokkana, þar sem glákan
er ríkjandi og' mest her á gláku-
hlindu, samanber töflu 1, sem
sýnir að um tíundi hver mað-
ur í aldursflokknum 80—89
ára, er hlindur og að i aldurs
flokknum 90 ára og eldri er
fjórði liver maður blindur. —
Sýnir þetta, að skipulögð leit
að gláku er eigi veigalítill þátt-
ur í almennri heilsugæzlu, og
þolir vart mikla bið. Væri brýn
nauðsyn að hún gæti komið til
framkvæmda sem fyrst. Mjög
mikilvægt fyndist mér,að augn-
læknar sendu sérstaka skýrslu
um alla þá glákusjúldinga, sem
til þeirra koma,með nákvæmar
uiiplýsingar um gang veikinn-
ar, ættgengi og meðferð. Eftir
nokkur ár yrði þá hægt að
segja með nokkurri nákvæmni,
live margir glákusjúklingar
væru hér á landi, og fá ýmsar
upplýsingar um sjúkdóminn,
gang hans og livernig okkur
miðaði í baráttunni við hann.
Einnig legg ég til, að augnlækn-
ar semji nákvæmar blindu-
skýrslur, sem hægt væri að
gera upp á nokkurra ára fresti.
Fyrr er ekki hægt að vita með
nokkurri vissu um blinduor-
sakirnar, live margir bætast í
hóp blindra árlega og hvort
sjúkdómurinn, sem hlindunni
veldur, hefur tilhneigingu til
að aukast eða þverra.
Um aðra blinduflokka skal
ekki rætt ítarlega, þar eð um
svo fá tilfelli er að ræða. Þó
skal það tekið fram, að hinir 7
blindu af völdum cataracta
senilis voru svo ellihrumir, að
þeim hafði ekki verið treyst
til meðferðar, enda höfðu sum-
ir rýrnun á gula dílnum, sein
hefði gert aðgerð árangurslitla.
Hinir blindu af völdum chori-
oretinitis, iridocyclitis og kera-
titis, voru flestir álitnir hafa
berklabólgu i augum, sem tal-