Læknablaðið - 01.06.1954, Blaðsíða 14
90
LÆKNABLAÐIt)
Þetta er sjúkdómsmynd, sem
ekki finnst í kennslubókum. í
þessu barni fundum við cox-
sackievírus og að sjúkdómn-
um afstöðnum voru í blóði
hennar mótefni, sem gátu
neutraliserað þetta vírus. Það
er því naumast vafamál, að á
tímabilinu sýktist hún af cox-
sackievírusi. Þar með er þó
ekki sagt, að það vírus hafi
endilega valdið sjúkdómsein-
kennunum, sem ég taldi upp.
Ég segi einungis frá þessu
hér til að minna fundarmenn
á, hve mikið er óunnið og hve
lítið við vitum, um ýmsar af
þeim sjúkdómsmyndum, sem
fyrir koma í daglegu lifi. Kerf-
un kennslubókanna er alltof
ósveigjanleg. Bezt gæti ég trú-
að, að minni liluti þeirra in-
fections sjúkdóma, sem fyrir
koma umhverfis okkur, sam-
rýmist kerfun kennslubók-
anna.
Sláturbóla.
Hér á landi kemur fyrir
kvilli, sem sumir kalla slátur-
bólu eða hornasótt, læknar
nefna hann stundum granu-
loma, og fleiri nöfn eru til á
honum. Sláturbóla er rauðleitt
þykkildi i húðinni oft dálítið
uppmjótt með sári í toppinn og
kemur oftast á hendur eða and-
lit.
Þið kannist allir við þessar
bólur og eins við hitt, að menn
fá þær venjulega eftir að hafa
handleikið sauðfé eða slátur
af sauðfé og þá fyrst og fremst
kannske hornin eða hausa og
lappir. Af ofansögðu mætti
ætla, að sýkillinn eigi heim-
kynni sitt í sauðfé og berist að-
eins endrum og eins til manna.
Hvað er nú hæft i þessu?
Fyrst þyrfti að athuga, hvort
í sláturhóluskemmdum i fólki
finnst eitthvað, sem getur sýkt
sauðfé. Ég hef prófað það
þrisvar sinnum. I tvö skipti
fannst vírus, sem olli ntjög sér-
kennilegum sjúkdómi í húð
kindanna. í þriðja skiptið
tókst ekki að finna neitt vírus,
enda var það húðstykki, sem
þá var prófað mjög illa kom-
ið og naumast von um að finna
vírus í því, þótt það hefði ver-
ið þar í upphafi. Sé þessurn
vírusum núið inn í húðrispu
á kind grær rispan eftir tvo til
þrjá daga, en eftir fjóra lil
fimm daga fer hún að roðna
að nýju. Bóla eykst í nokkra
daga, myndar mjög fallegar
pústúlur, sem hrúðra og gróa
síðan aftur á þrem til fjórum
vikum.
Ég tel nær vafalaust, að það
vírus, sent hér urn ræðir, sé hið
sama og veldur „contagious
pustular dermatitis“ i sauðfé.
Þetta er sjúkdómur, sem leggsl
á ungt sauðfé, veldur þar ból-
um og pústúlum, aðallega á
haus og löppum. Sjúkdómur-
inn kemur fyrir um allan heim
að haldið er, m. a. viða liér á
landi. Þessi sjúkdómur gerir
ekki verulegan skaða, þó ferst